07.05.1942
Efri deild: 51. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 748 í B-deild Alþingistíðinda. (2157)
66. mál, eignarnámsheimild á heitu vatni og landi í Siglufirði
Bernharð Stefánsson:
Ég vil þakka hv. allshn. fyrir, að hún hefur afgreitt þetta mál, þó að mér sýnist nú, að ef þessu þingi lýkur á skaplegum tíma, þá sé nú komið svo, að nokkur hætta sé á, að það geti þá ekki orðið að l. sölum tímaskorts.
Hvað snertir brtt. þá, sem hv. n. ber fram, þá vil ég taka það fram, að hv. frsm. gerði fullmikið úr minni þátttöku í henni. Það, sem ég gerði í því sambandi, var það, að ég flutti skilaboð um það, að ef þessi tilhögun væri tekin, sem í till. greinir, þá mundi ekkí verða ágreiningur um þetta mál milli eiganda landsins og a.m.k. meiri hlutans í bæjarstjórn Siglufjarðarkaupstaðar. En það var ekki beinlinis, að ég bæri fram neinar persónulegar óskir í því efni. En á hinn bóginn vil ég segja það um þessa brtt., að með, tilliti til grg. þeirrar, sem fylgdi frv. í fyrra, og bréfa, sem prentuð voru þar sem fylgiskjöl, frá bæjarstjórn Siglufjarðarkaupstaðar, þá sýnist mér, að öllum þeim óskum, sem þar er getið um, sé fullnægt með þessari brtt., eins og hún liggur fyrir. Því að tilgangurinn með frv. og ástæðan til þess, að bæjarstjórn Siglufjarðarkaupstaðar óskaði eftir, að það væri borið fram, var að fá aðstöðu til þess að hagnýta þetta heita vatn, sem er þarna í Skútudal. Og sé ég ekki annað en að þó að brtt. sé samþ., þá sé öllum óskuð í þessu sambandi fullnægt. Ég hef um þetta ekki borið mig neitt saman við meðflm. mína að frv. og get þess vegna ekki sagt um það, hvort hinir flm. fallast á þessa brtt. En ég fellst algerlega á hana.