22.05.1942
Neðri deild: 64. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 754 í B-deild Alþingistíðinda. (2198)

118. mál, eignarnám landa á hverasvæðinu í Ölfusi

*Eiríkur Einarsson:

Ég get verið fáorður um lessa brtt., sem ég ber hér fram, því að ég gerði að nokkru leyti grein fyrir henni v ið 2. umr.

Ég vil taka sérstaklega fram, að með brtt. þessari vil ég á engan veg verða til þess að tefja þetta mál. Ég vænti þess, að hað þurfi ekki að koma til, því að ef brtt. verður samþ. nú, þá þarf hún aðeins að fara til einnar umr. í Ed., en þar mun enginn ágreiningur vera um það.

Brtt. er borin fram til öryggis því, hvert stefnt er með þessu frv. Hún er í raun og veru til fyllra samræmis við málefnið, eins og það lá hér fyrir upphaflega í þeirri þáltill., sem hv. þm. S.- Þ. bar fyrst fram, sem snerist svo til þessa lagafrv. Það er tekið fram, að eignarnámsheimildin nái einnig til lands Kaupfélags Árnesinga í Hveragerði. Þar sem það var fellt úr í frv., þótti mér réttara að taka þetta fram, af því að ég veit, að það er meining málsins. Mér er tjáð, að kaupfélagið vilji selja hetta land, og hlutaðeigandi íbúar í Hveragerði vilja, að ríkið eignist það. Til þess að greiða fyrir málinu og til aukins öryggis um, að lagaheimild nái til þessa landsvæðis, hef ég flutt hér þessa brtt.

Ég hef borið þetta mál undir færustu lögfræðinga, og eru þeir á einu máli um það, að heppilegt væri, að brtt. mín yrði samþykkt. Ég álít þetta nú næga skilgreiningu fyrir því, sem ég flyt hér.

Mér hefur enn fremur dottið í hug, hvort ekki væri rétt að flytja aðra brtt., en ég hef nú ekki gert það. Það er hvergi tekið fram í l., að eigi eða megi reyna fyrst til hlítar samkomulagsleiðina um kaup og sölu þessara lóða. — En mér hefði þótt það miklu viðkunnanlegra. Ég hef nú ekki borið fram till. í þessa átt. En hitt hef ég skýrt, og vænti ég þess, að hv. deild finnist það eðlilegt og réttmætt að greiða þeirri till. minni atkvæði.