21.05.1942
Neðri deild: 63. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 768 í B-deild Alþingistíðinda. (2267)

125. mál, verðlagsuppbót embættismanna og starfsmanna ríkisins

*Haraldur Guðmundsson:

Brtt. sú, er ég hef leyft mér að flytja hér við frv., er þess efnis, að ríkisstj. heimilist að greiða 10–20% verðlagsuppbætur á laun opinberra starfsmanna fyrir árið 1942. Skuli greiðslunni hagað svo, að þeir, sem hafa lægstu launin, fá hæsta uppbótina. Uppbót þessa skal þó ekki greiða á laun, sem fara fram úr 9000 kr. í grunnlaun á ári.

Ástæðan fyrir þessari till. er sú, að á þessu ári hefur flestum launastéttunum auðnazt að fá kjör sín bætt að einhverju leyti. Ég minnist þess t.d., að spítalarnir greiða nú 30% launauppbætur til starfsfólksins, og hygg ég, að gerðardómurinn hafi á það fallizt. Reykjavíkurbær hefur svo nýverið hækkað laun starfsmanna sinna allverulega. Hefur hann gert það með því t.d. að greiða eftirvinnukaup og áhættuþóknun, sem eigi var áður gert.

Það hefur borið talsvert á því, að fólk leitaði frá opinberum stofnunum og til einkafyrirtækja.

Þau hafa meira rými til þess að greiða hærra kaup í ýmsum myndum heldur en opinber fyrirtæki. Hefur það þá um leið verið svo, að það er einkum hæfasta starfsfólkið, sem leitar á brott, og ef slíkt heldur áfram, er mikil hætta á því, að opinberar stofnanir verði rúnar bezta hlutanum af starfsfólki sínu. — Það er ekki heldur hægt að loka augunum fyrir því, að laun opinberra starfsmanna eru mjög lág.

Mér þykir eðlilegt, ef till. þessi verður samþ., að ríkisstj. hafi samvinnu við stjórn Bandalags opinberra starfsmanna um framkvæmdir í þessu máli. Stjórn bandalagsins kom til viðræðu til fjhn. og gaf ýmsar fróðlegar upplýsingar, en þær mun ég ekki rekja hér að svo stöddu. En ég vildi mælast til þess við hv. deild, að hún sjái sér fært að samþ. þessa till.