22.05.1942
Neðri deild: 64. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 770 í B-deild Alþingistíðinda. (2278)
125. mál, verðlagsuppbót embættismanna og starfsmanna ríkisins
*Haraldur Guðmundsson:
Það hefur orðið samkomulag um þessa brtt., sem hæstv. forseti hefur nú lýst. Þar hafa mætzt á miðri leið mismunandi skoðanir í fjhn. Þessi uppbót er hugsuð þannig hjá n., samkv. því, sem hv. þdm. hafa heyrt, að þessar 300 kr., sem uppbótarupphæðin á að nema á ári fyrir hvert barn, skoðist sem hvort tveggja í senn, viðbót við grunnlaun og verðlagsuppbót á þá viðbót, svo að launin samsvari núverandi dýrtíð, þannig að þetta muni samsvara h.u.b. 165 kr. grunnkaupshækkun yfir allt árið fyrir hvert barn innan 14 ára aldurs, sem viðkomandi launþegi hefur á framfæri sínu.
Ég hefði áskað þess sjálfur, að lengra hefði verið gengið í þessu efni, en um petta náðist samkomulag. Og fyrir þá, sem lægst eru launaðir í þessu landi, er þetta nokkur leiðrétting á þeirra kjörum, sem ég fyrir mitt leyti vil stuðla að, að nái fram að ganga. Ég mun því taka aftur brtt. mína á þskj. 417, ef það mætti verða til þess, að þessi brtt. yrði samþ.