19.05.1942
Neðri deild: 61. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í B-deild Alþingistíðinda. (2288)

141. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

*Flm. (Bjarni Ásgeirsson):

Þetta frv. er fram borið vegna óska húsmæðra og kvenfélaga í Borgarfirði. Það er mjög almenn skoðun ar efra, að ekki muni heppilegt að hafa þennan væntanlega skóla að Reykholti, heldur verði valinn staður út af fyrir sig, og hefur verið kosin n. til þess að velja staðinn. Það hafa komið fram ýmis tilboð um skólastað, og hefur meir í hl. þessarar n. fallizt á að mæla með þeim stað, sem í frv. er nefndur, Stafholtsveggjalaug. Þarna er heitur hver, og hefur Stafholtstungnahreppur tryggt skólanum nægilegt heitt vatn og býðst til að gefa honum það, ef skólinn verði settur á þennan stað.

Ég held, að ég megi fullyrða, að það sé skoðun þeirra manna, sem að málinu standa, að heppilegra sé að hafa skólann annars staðar en í Reykholti, en til þess að það sé hægt að framkvæma það, þarf að breyta ákvæðum I. um húsmæðrafræðslu, og það er nauðsynlegt að fá þessa breyt. í gegn, til þess að hægt sé að hefjast handa um að laga til í kringum þennan væntanlega skóla, leggja vegi o.s.frv. Það þarf því að slá því föstu, að skólinn geti fengið þennan stað.

Ég vil svo mælast til þess, að málinu verði vísað til landbn., vegna þess að hún hafði þessi l. til meðferðar, þegar þau voru afgr. í þinginu fyrir nokkrum árum.