25.02.1942
Efri deild: 5. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 105 í B-deild Alþingistíðinda. (229)
9. mál, eftirlit með ungmennum o.fl.
*Sigurjón Á. Ólafsson:
Ég verð að segja, að mér var ekki ókunnugt um á síðasta þingi, að löggjöf um þetta mál væri í uppsiglingu. Ég sé, að eins og frv. lítur út, þá er þar um að ræða allverulegar breytingar, en það er náttúrlega vandi að gagnrýna frv. á þessu stigi málsins. frv. mun því í aðalatriðum leiða það hjá mér, ekki sízt fyrir þá sök, að málið fer til n., sem ég á sæti í. Ég vil benda á það, sem er töluvert atriði í frv., að barnaverndarn. eiga að fá völd yfir ungmennum að 20 ára aldursskeiði. Hér er tekið stórt skref, og það getur orkað tvímælis, hvað aldurstakmarkið á að vera hátt, og hvort barnaverndarnefndir eigi að hafa völd yfir ungmennunum fram eftir öllum aldri.
Sú till. hefur ekki verið tekin til greina, og hygg ég þó, að hún hafi legið fyrir þeirri n., sem mér skilst, að sé höfundur frv., en það er hin svonefnda ástandsnefnd. Ég bendi aðeins á þetta, en vel má vera, að ekki hafi þótt fært að taka það til greina, sem ég er nú að tæpa á, en ég vil þó gjarnan heyra rök hæstv. ráðh. um þetta atriði, hvort hann sem gamall lögreglustjóri og núverandi dómsmrh. telji það langt frá vegi að mynda siðferðislögreglu.
Mér skilst einnig á frv., að af því muni leiða allverulegan kostnað. og er að sjálfsögðu ekkert við því að segja, ef það nær tilgangi sínum, en ég hefði gjarnan viljað fá að vita, hvort hæstv. ráðh. getur gefið okkur nokkra hugmynd um, hver þessi kostnaður mundi verða, því að það hefur þó nokkra þýðingu, hvort verið er að stofna til kostnaðar, sem menn hafa ekki meir en svo trú á að borgi sig.
Hitt er það, sem við bentum, á í þingn. okkar, sem hefur nokkuð verið tekið til greina, en það er, að ekki má líta aðeins á annan aðilann, þann, sem er undir þyngstum áfellisdómi hjá almenningi. Mér skilst, að frv. sé fram komið mest vegna ungra kvenna, og vil ég þá geta þess, að í okkar till., og eins má sjá þess merki í 8. og að nokkru leyti í 9. gr., er ætlazt til, að tillit sé tekið til þess, að til er fólk, karlar sem konur, sem leiðir þessi ungmenni á glapstigu. Spurningin er sú, hvort í þessum l. eru nógu sterk ákvæði gagnvart þeim, sem eru að meira og minna leyti óbeinir hvatamenn þess, að ungar stúlkur og kannske ungir piltar leiðast á glapstigu, og hvort nógu sterkt eftirlit er með því, en slíkt er ekki verk barnaverndarn., heldur lögreglunnar, og er þá komið aftur að þeirri spurningu, hvort ekki þurfti að vera siðferðislögregla, sem sérstaklega hefði svona mál með höndum, sérstaklega í bæjum eins og Reykjavík, þar sem mannfjöldinn ei mestur, bæði íbúar og útlendingar.
Hæstv. ráðh. gat þess, að þrautaúrræðið gati orðið að koma einhverju af þessu unga fólki á hæli, og er þá sennilega búið að tryggja byggingu slíks hælis. Það getur vel verið, að þetta sé rétt stefna. Veldur mjög miklu, hver þar stjórnar. Sennilega yrði það kona. Er mjög mikið undir því komið, að hún sé þeim vanda vaxin að leiða þær ungu sálir, sem í almennings augum hafa lent á glapstigum. Mér virðist þessu vera sérstaklega beint gagnvart beim ungmennum, sem í augum borgaranna áttu ekki marga málsvara eða mikils úrkosti, m.ö.o., að efnaðri borgarar slyppu við slíka typtun, en þeir efnaminni yrðu fremur fyrir henni. Og ef við förum í alvöru og einlægni að tala um þetta ástand, þá vitum við, að þess eru alveg eins dæmi um hina efnuðu, sem hina fátæku, að þeir leiðist út á þá braut, sem í augum Íslendinga er talin miður æskileg. Þess vegna legg ég mjög mikið upp úr því, að l. séu látin ganga jafnt yfir alla.
Ég skal ekkert segja um, hvort hér er rétt stefnt eða ekki, en ég hef heyrt, meira af afspurn en eigin raun, að þetta hafi verið reynt í nágrannalöndum okkar og árangurinn hafi orðið mjög vafasamur. Ég er samþ. í meginatriðunum efni og anda þessa frv. Ég álít, að eitthvað verði að gera. Spurningin er bara, hvaða leið á að fara.
Ég veit ekki, hvort það er goðgá að minnast á það, en mér skildist á hæstv. ráðh., að frv. það um vegabréf, sem lá fyrir d. í gær, væri í nánu sambandi við þetta mál. Ég veit, að ég hef ekki leyfi til að tala um það mál nú, en ég hefði gjarnan viljað óska eftir upplýsingum um, hvers vegna varð að grípa til þess að fara að fyrirskipa mönnum að bera vegabréf og gefa út um það brbl. Það getur verið, að hægt verði að fá þann fróðleik inn í n., en engum blandast hugur um, að undirbúningur þess frv. var ófullkominn, því að það er torvelt fyrir íbúa Reykjavíkur að fá ljósmyndir af sér, og þar að auki er þetta nokkur skattur á menn, 5–8 kr. á nef, þó að ef til vill megi segja, að menn muni ekki mikið um það nú, en ljósmyndararnir segja, að þetta hafi komið eins og þruma yfir þá, því að þeir höfðu t.d. ekki nægan ljósmyndapappír fyrir allar þessar myndir. Annars skal ég ekki fara að ræða það frv. nú, því að það mál liggur ekki fyrir, en ég vona þá, að hæstv. ráðh. geti rætt um þetta mál við n. og skýrt henni frá því, hvað hér á bak við býr.