25.02.1942
Efri deild: 5. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (236)
9. mál, eftirlit með ungmennum o.fl.
*Forsrh. (Hermann Jónasson):
Hv. 1. landsk. heldur fast við þetta virðingarleysi gagnvart Alþingi. En nú er það svo, að næstum því hver þm. fyllir þá flokka, er stóðu að ríkisstjórninni. Þess vegna, er hann talar um virðingarleysi, er stjórnin sýnir þinginu, á hann við virðingarleysið fyrir kommúnistaflokknum. Þetta er aðalatriði málsins, og í kringum þennan kjarna hefur hv. 1. landsk. alltaf verið að snúast.