23.03.1942
Neðri deild: 24. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í B-deild Alþingistíðinda. (2399)
38. mál, stjórnarskipunarlög
Sveinbjörn Högnason:
Þegar þetta frv. kom fram í d., kvaddi ég mér hljóðs, sökum þess að ég óskaði að gera aths. við það, eins og málið lá fyrir þá, en ég gat ekki verið á síðasta þingfundi, svo að ég er ekki kunnugur þeim umr., sem þá fóru fram, og bið ég menn að gæta þess, ef ég skyldi endurtaka eitthvað af því, sem sagt var hér á föstudaginn var.
Hv. 1. flm. bar fram ýmislegt í framsöguræðu sinni, sem vert er að gefa gaum nú þegar, vegna þess að í því, sem hann dró þar fram, var ýmislegt, sem er ekki sem bezt samræmi á milli. og er ekki heppilegt, að svo mikilsverðu máli sé hleypt til n., án þess að bent sé á það í upphafi. Því miður er hv. flm. ekki viðstaddur í d. Vildi ég gjarnan, að hæstv. forseti gerði ráðstafanir til, að hann hlýddi á mál mitt, ef unnt væri. (Forseti JörB: Það er upplýst, að hann er ekki nærstaddur.) Hann mun telja annað nauðsynlegra en að sinna þessu máli, og mun það ekki vera rangur skilningur hjá honum, en ég vona þá, að hv. meðflm. hans heyri það, sem ég hef að athuga við þetta frv. og ræðu hans.
Hv. 1. flm., þm. V.-Ísf., fullyrti í upphafi ræðu sinnar, að með stjórnarskrárbreyt. 1933 hefði verið viðurkennd sú meginregla, að flokkarnir fengju þingsæti í sem nánustu samræmi við atkvæðamagn. Þessum manni ætti að vera kunnugt, hvað kosningal. hafa inni að halda, þar sem hann var skipaður forseti ráðuneytis, sem átti að leiða það mál til farsælla lykta árið 1933. Ég vil því beina til hans þeirri spurningu, hvar í þessum l. þessi regla er viðurkennd, og ef hún er viðurkennd, hvaða þörf er þá á að breyta þessum l., sem hann kom á. Þetta segir hann, að sé meginkrafan í því frv, sem hann flytur hér, að tryggja sem bezt, að atkvæðamagn flokkanna sé í sem nánustu samræmi við þingsætafjölda. Þá gat hann einnig þess, að ekki væri óeðlilegt, að oft þyrfti að breyta kjördæmaskipuninni til þess að ná þessu: Það var annað meginatriðið, þar sem hann vildi afsaka, að þetta undraplagg, sem hann afrekaði að koma fram í sínu stjórnarstríði 1932, að ekki væri óeðlilegt, að þyrfti að breyta :þessu fullkomna verki hans, sem hann taldi sig leysa fyrir flokk sinn og þjóðina í heild. Er það í allmiklu ósamræmi við þá fyrstu meginyfirlýsingu hans, að í þessum stjórnskipunarl. frá 1933 sé viðurkennd sú meginregla, að svo skuli vera, því að ef svo væri, þá væri ekki ástæða til að breyta I. fljótt aftur, og þá skyldi maður halda, að þetta réttlæti gæti haldið sér frá ári til árs, nema réttlætið sé eitthvað annað 1942 en það var 1933, og skal ég koma að því síðar, sem er ekki ósennilegt, að búi á bak við þetta frv. hv. flm. og þá sérstaklega hv. 1. fim., þm. V.-Ísf. Loks var þriðja atriðið, það, að hala taldi, að þessar till. væru miðaðar við þá þróun, sem orðið hefði síðan 1933. Ég bið menn að athuga það, að hér er ekki miðað við réttlæti, heldur þá þróun, sem orðið hefur í þessu efni.
Það er út frá þessum þremur sjónarmiðum, sem hv. þm. leggur þetta mikilsverða mál fyrir Alþ., og út frá þeim ber að lita á þessar merkilegu og frumlegu till., sem hér eru lagðar fram.
Er þá fyrst að spyrja að því, sem fyrst er nefnt. Hvað gera þessar till. til þess að tryggja flokkunum þingsæti í samræmi við atkvæðamagn? Til þess að tryggja þetta á að fjölga þm. í Reykjavík um tvo og taka upp hlutfallskosningu í tvímenningskjördæmum og búa til þrjú ný kjördæmi. Nú skulum við líta á þessar till. Geta þær orðið til þess að jafna á milli flokka og tryggja þá meginreglu, að flokkarnir á hverjum tíma fái þingsæti í samræmi við atkvæðamagn sitt? Ég segi nei. Það getur ekki orðið til að jafna milli flokka, þó að hlutfallskosning sé tekin upp í tvímenningskjördæm,um, sen getur tryggt rösklega 1/4 kjósenda áhrifavald til jafns við allt að 3/4. Það getur jafnað milli flokkanna, eins og þeir eru nú, en veitir enga almenna tryggingu. Þetta sýnir, að frv. er miðað við að flokkaskipunin eins og hún er nú, sé óbreytanleg.
Þá er það atriði, að Reykjavík fái tvo þm. í viðbót. Það gefur möguleika til, að þeir, sem hafa minnst atkvæðamagn bak við hvern þm., fái kosinn þm. í Reykjavík. Ekki bætir það úr skák um að jafna milli flokka, en þar er sama sagan, að það er gert ráð fyrir, að flokkaskipunin og flokkamagnið verði óbreytanlegt. M.ö.o., þessar till., sem hér liggja fyrir, eru yfirlýsing um, ef á að taka þær alvarlega, að sá flokkur, sem nú er í meiri hl. í tvímenningskjördæmunum öllum, geti ekki tapað, vegna þess að ef aðrir flokkar, sem nú hafa meira atkvæðamagn bak við hvern þm., fá meira en helming tvímenningskjördæmanna, þá jafnar það meira en ef hlutfallskosning er í þessum kjördæmum. Ef maður lítur á þau fyrirhuguðu nýju kjördæmi, Akranes, Siglufjörð og Norðfjörð. sér maður undir eins, að vel getur verið, að sá flokkur, sem minnst atkvæðamagn hefur á bak við hvern þm., fái kosna þm. þar.
Dettur þm. Alþfl. í hug, að þeir eigi um alla eilífð ákveðinn hóp kjósenda á vissum stöðum á landinu. Ég sé ekki neitt atriði í þessu frv. sem stuðlar að þeirri framtíðarlausn, sem hv. aðalflm. var að tala um. Allt frv. er miðað við núverandi flokkaskipun, eins og hún sé eilíf eg óumbreytanleg.
Alþfl. hefur, sem sagt, gefið upp alla von um að vinna ný kjördæmi, en vill koma ár sinni þannig fyrir borð, að honum verði not að atkvæðum, sem greidd eru honum víðs vegar um landið, þó að ekkert kjördæmi vilji þá fyrir þm. En svo getur farið; að þótt ný kjördæmi séu stofnuð fyrir þá, að atkvæðin týnist og verði þeim ekki að tilætluðum notum. M.ö.o., frv. gengur allt út á það að segja við kjósendur: „þó að þið viljið okkur ekki fyrir þm., skuluð þið samt hjálpa okkur til þess að koma mönnum á. þing“.
Það má hlæja að þessu, en það er um leið grátlegt, að svona skuli farið með alvarlegasta mál þjóðarinnar, og það á þessum tímum.
Frv. er á allan hátt miðað við núverandi ástand, en ekki við framtíðina. Þeir flokkar, sem eru að tapa fylgi hjá þjóðinni, ætla að reyna að ráða eins miklu og þeim er unnt. — Auk þess þarf oft að breyta kjördæmaskipuninni, eins og hv. frsm. sagði, — og ef til vill vonast hann eftir að verða forsætisráðh. á ný, en engan mun samt langa til að hlíta hans forustu á nýjan leik. — Það er skoðun flestra hugsandi manna, að fyrsta ómyndin hafi komið inn í okkar kosningalög með uppbótarþingsætunum. Það var fyrsti veikleikinn í okkar stjórnskipun. En ef á að tala um réttlæti, og það er talið réttlæti, að allir flokkar hafa jafna atkvæðatölu á bak við hvern þm., þá næst það ekki nema með algerum hlutfallskosningum. Ef þetta er réttlæti, þá eiga allir kjósendur að hafa sama rétt. Það er heldur ekkert réttlæti, að flokkur þurfi að koma að manni í einhverju kjördæmi, til þess að hann fái rétt til uppbótarsæta. Það er t.d. nokkurn veginn fullvíst, að Bændafl. fær engan mann kosinn í kjördæmi við næstu kosningar, en hann gæti hins vegar fengið svo mörg atkvæði víðs vegar um landið, að nægði til þess að koma inn manni. — Hvaða réttlæti er það þá, að hann skuli engan rétt eiga til uppbótarsæta? — Nei, hann er þvert á móti beittur ranglæti, ef um það er að ræða. Hins vegar er það öllum ljóst, að ef um algera hlutfallskosningu er að ræða, þá fara atkv., sem á þann hátt safnast saman, ekki til gömlu flokkanna, heldur til nýrra.
Nú er mikil ólga hjá þjóðinni, eins og alltaf er á erfiðum tímum, þegar gera þarf miklar ráðstafanir. Mér kæmi ekki á óvart, þó að út úr kosningunum í sumar kæmu helmingi fleiri flokkar en nú eru, ef þessi aðferð er höfð á kosningunum. Ótal smáflokkar yrðu stofnaðir. Svona var það í Þýzkalandi á síðustu stundum lýðræðisins þar. Þar voru um 50 flokkar. Á Spáni voru þeir um 30. — Enda er það mjög auðvelt í eins litlu þjóðfélagi og hér að safna saman svo miklum atkvæðafjölda, að nægi til þess að stofna flokk. Ein stór fjölskylda, sem hefur sterka aðstöðu, getur nægt. Ef 2–3 hreppar í tvímenningskjördæmi taka sig saman, dugir það til þess að koma að manni og stofna flokk. En ótal margir flokkar leiða af sér upplausn í þjóðfélaginu og beina einræðinu brautina. Ég vil benda þeim hv. veiðimönnum á, sem flytja þetta frv., að það er öldungis óvíst, að þeir hreppi atkvæði í þau sem sem þeir hyggjast. nú að leggja. Þau geta alveg eins farið til nýrra flokka. En þessu fylgir augljós upplausn þingræðis og frelsis í landinu. Nei, það er alveg víst, að fyrir flm. þessa frv. vakir ekki það að bæta úr misrétti kjósendanna, heldur það, að þeir miða við þróun Alþfl. síðan 1933, og Sjálfstfl. líka, og þeir sjá, að betur þarf nú að smala, og nú segja þeir bara við kjósendur: „Þið skuluð kjósa okkur, þó að þið viljið ekkert af okkur vita“. Það er þessi þróun niður á við, sem vakir fyrir flm. þessa frv., en ekki nein réttlætishugsjón. — Það er sérhyggjan og síngirnin á hæsta stigi, sem fyrir þeim vakir. —- En , því er ekki talað um jafnrétti á fleiri sviðum en þessu? Hv. þm. V.- Ísf. (ÁÁ) hefur t.d. rétt til allra skóla hér í Rvík handa sinum börnum, langt fram yfir okkur, sem úti í dreifbýlinu búum og getum ekki notið þessara skóla nema þá að leggja í ærinn kostnað. Þeir, sem í bæjum búa, hafa yfirleitt miklu betri skilyrði til þess að lifa menningarlífi heldur en þeir, sem búa úti um sveitir landsins. — Er það ekki óréttlæti? Hvers eiga þeir að gjalda, sem búa í sveitunum? Nei, ég skal segja ykkur það, hv. flm., að það tekur enginn mark á því, sem kallað er réttlæti, þegar græðist á því, en annars gleymt. — Þegar svo fyrir þetta frv. er beitt sama manni og þeim, sem 1933 taldi lífsspursmál að hafa ekki nema 6 þm. í Rvík, en er nú óspar á að fjölga þeim. Heldur hann, að nokkur taki mark á þeim orðum hans, að hér sé um réttlætismál að ræða? Nei, þetta er vesalt verzlunarmál, flutt einungis í því skyni að verzla með rétt og réttindi fólksins. Hvernig stendur annars á því, ef réttindi sveitafólks eru mun meiri en þeirra, er í bæjunum búa, að, fólkið leitar unnvörpum til bæjanna?
Þessi straumur úr sveitunum er eitt mesta áhyggjuefni þjóðarinnar, og vitað mál er það, að er þessu óvenjulega ástandi lýkur, sem nú er, fara þúsundir manna á vonarvöl í bæjunum. Það er líka öllum ljóst, að þing og stjórn verða að róa að því öllum árum að styðja og efla landbúnaðinn, ef framtíð þjóðarinnar á ekki að vera stefnt í beinan voða.
Þetta frv. er fyrsta kveðjan, sem sveitafólkið fær. Það á að afhenda þau réttindi, sem það hefur haft. Á hinn bóginn óttast ég ekkert að leggja þetta mál undir dóm kjósendanna í landinu Ég get ekki hugsað mér að hafa betra skjal upp á vasann út í kosningabaráttuna en þetta frv.
En það kostar geysilega baráttu í þjóðfélaginu, sundrung og klofningu, en um það skeytir Alþfl. lítið, sem hefur nú dregið út sinn ráðh. og varpað af sér allri yfirskinsábyrgðartilfinningu. En ég er sannfærður um það, að svar þjóðarinnar verður á einn veg, og trúað gæti ég því, að þeir, sem nú flytja þetta frv. í því skyni að sjá fylkingar sínar vaxa, sæju þær hverfa, og er það ekki annað en við má búast, er menn bjóða þjóðinni naglasúpu í stað réttlætis.