24.03.1942
Neðri deild: 25. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 827 í B-deild Alþingistíðinda. (2405)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Einar Olgeirsson:

Herra forseti! Það hefur verið rætt margt í sambandi við þetta frv. um stjórnarfarið, sem ætti að vera eftir stríðið, um sjálfstæðismálið og hvort rétt sé að leggja út í eins harðvítugar deilur og breyt. á kjördæmaskipuninni mundu valda. Ég ætla ekki í svipinn að taka þátt í þeim umr., en ræða fyrst og fremst höfuðatriðin í því máli, sem hér liggur fyrir.

Það er þá í fyrsta lagi það, sem ég álít, að sé höfuðatriðið, hvort eigi að koma á meira jafnrétti meðal kjósenda í landinu, stefna ákveðnar í þá átt að jafna kosningarréttinn. Þetta er það, sem fyrst og fremst liggur fyrir. Síðan má, ef menn eru sammála um að skapa meira jafnrétti, deila um, hvaða aðferð sé heppilegust. Það er ekki víst, að þessar nýju till. séu endilega þær heppilegustu, og má kannske finna betri aðferð. En það væri þá mál, sem hægt væri að athuga í þeirri n., sem skipuð verður í þetta mál, og rannsaka nánar í einstökum atriðum, hvaða breyt. á kjördæmaskipuninni væru beztar til þess að ná þessu takmarki.

Ég skal í þessu sambandi skjóta því inn, út af því, sem hv. 1. þm. Rang. sagði í ræðu sinni, að ekki lægi síður á að skapa jafnrétti í ýmsum öðrum málum, að ég er honum þar alveg sammála. En þar við er það að athuga, að með kosningaréttinum fær almenningur aðaltækifærið til þess að skapa slíkt jafnrétti. Það hefur farið svo, að um sama leyti, sem sá flokkur bregzt, sem hann mun telja sig til, sem er vinstri armurinn í Framsfl., þá koma fram nýjar kröfur um meira jafnrétti. Síðast þegar kosið var il Alþ., var skapaður 30 þm. vinstri meiri hl., sem hafði möguleika til að framkvæma stefnuskrá, sem Framsfl. og Alþfl. sögðust berjast fyrir. kjósendurnir höfðu krafizt, að hún væri framkvæmd. En það voru þessir flokkar, ekki sízt Framsfl., sem brugðust þar. Það er því síður en svo tilviljun, að einmitt þegar Framsfl. fer til hægri og tekur upp samvinnu við auðmennina, að kjördæmamálið er borið fram af hálfu verkalýðsins til þess að knýja fram fullan rétt, sem verkalýðurinn á til þm. á Alþ. Vinstri þm. í Framsfl. mega því ekki hvað sízt sjálfum sér um kenna, að kjördæmamálið skuli nú koma upp. Tækifærið til að skapa jafnrétti í þjóðfélaginu hefur verið fyrir hendi allan þennan tíma, ef Framsfl. hefði viljað vinna að því, en þegar hann vill það ekki, heldur vill gera togareigendurna skattfrjálsa ag svo milljónamæringana, sem eru nú að ná tökum á þjóðinni, þá er nauðsynlegt fyrir lýðræðið, að farið sé fram á breytta og réttlátari kjördæmaskipun.

Viðvíkjandi kjördæmamálinu sjálfu er það ekkert spursmál, að breytt kjördæmaskipun, sem tryggir öllum kjósendum landsins sem jafnastan rétt, er eitthvert helzta lýðræðismálið, sem uppi er í þjóðfélaginu. Við vitum, að það er ekki nóg. með það, að núverandi kjördæmaskipun tryggi þetta ekki til fulls, heldur er beinlínis hætta á, eins og kjördæmaskipuninni er nú fyrir komið, að hún verði notuð til þess að stíga stórt skref aftur á bak frá því, sem stigið var 1933. Það hefur komið fram frá formanni 1 ramsfl. og nú frá hæstv. forsrh., að það væri þeirra álit og ég býst við, mesta hluta Framsfl., að ekki eigi að una við núverandi kjördæmaskipun, heldur eigi þvert á móti að koma á eintómum einmenningskjördæmum og að Reykjavík verði líka skipt niður í einmenningskjördæmi. Hvað þýðir þessi skipun? Hún þýðir það, að gengið er eins langt og framast þykir viðeigandi fyrir þá flokka, sem telja sig þingræðisflokka, að afnema lýðræðið í landinu, afnema rétt meiri hl. til þess að ráða málum þjóðarinnar. Með núverandi kjördæmaskipun er vel mögulegt, að 1/3 þjóðarinnar geti haft meiri hl. á Alþ. Það er vel mögulegt, að með samvinnu milli milljónamæringanna í Sjálfstfl. og Framsfl. mætti takast fyrir þá að hafa 26–27 þm. á Alþ., þó að þeir hefðu ekki nema 1/3 af kjósendum á bak við sig. Með þeirri stjórnarsamvinnu, sem nú er milli Sjálfstfl. og form. Framsfl. og, að því er virðist, mestalls flokksins, fer hættan sívaxandi á, að þess háttar samkomulag verði gert til þess, að stórt spor verði stigið aftur á bak í kjördæmaskipuninni á Íslandi. Þetta mundi þýða það, að hægt væri að skapa stj., sem styddist við algert meirihlutavald á þingi, en hefði algerðan minni hl. þjóðarinnar á bak við sig, og gerði þannig Alþ. að skrípamynd af lýðræði og þingræði. Þessi hætta vofir yfir, meðan núverandi kjördæmaskipun helzt, sem getur gefið báðum þessum flokkspörtum nægilega mikið vald til þess að breyta kjördæmaskipuninni þannig. Form. Framsfl. gat þess í grein, sem hann skrifaði ekki alls fyrir löngu, að það, sem lægi fyrir að gera eftir stríð, væri að breyta öllum kjördæmum og einkanlega að skipta Reykjavik í einmenningskjördæmi. Væri fróðlegt að heyra undirtektir sem flestra undir þessa till. Staðfesti þeir hana, veit þjóðin, á hverju hún á von, þegar þessir flokkar vilja fara að endurskoða stjskr., og þá vita þeir flokkar, sem ekki vilja una slíku, fyrir hverju þeir hafa að berjast, meðan tími er til og afstaðan er þannig og hugsanlegt er, að unnt sé að vinna að réttlátri kjördæmaskipun.

Hæstv. forsrh. kom inn á hlutfallskosningar nar, sem erlendis hefðu drepið lýðræðið. Ég held, að þetta sé mjög mikill misskilningur hjá honum. Það, að lýðræðið hefur fallið, eins og raun ber vitni, víðast á meginlandi Evrópu, stafar ekki af neinu teknisku atriði eins og. hlutfallskosningum, þar sem þær hafa verið framkvæmdar út í yztu æsar, eða neinu öðru teknisku atriði við þingræðislegt fyrirkomulag lýðræðisins. Það stafar af meiri grundvallaratriðum í sambandi við þjóðfélagsbygginguna. Það stafaði af því, að stéttin, sem upphaflega skapaði lýðræðið, sem sé borgarastéttin, afturhaldssamasti hluti hennar, gat ekki lengur drottnað með þessu fyrirkomulagi, af því að kröfur meiri hl. þjóðarinnar til .þess að drottna yfir auðvaldinu, eins og, það kom fram eftir þingkosningar hvað eftir annað, voru það harðvítugar, að auðvaldið vildi ekki við það una. Þess vegna magnaði þetta auðvald vopnaða flokka eins og í Finnlandi 1918 eða flokka, sem tókst að „agitera“ sig upp eins og í Þýzkalandi, af því að kröfur verkamanna og bænda gengu það langt, að það var farið að verða hættulegt fyrir auðvaldið.

Svo að ég víki að kjördæmamálinu og afstöðu einstakra flokka til þess, þá virðist mér sérstaklega upp á síðkastið vera stefnt meira og meira að því, að þetta nýja forríka auðvald, sem hefur skapazt í þessu landi með stríðsgróðanum með aðstoð núverandi stjórnarflokka, hugsi meira og meira til þess að styðjast við Framsfl. sem sína aðalmáttarstoð. Það er auðséð, að pólitík Sjálfstfl. upp á síðkastið hefur verið slík, að hann hefur beinlínis verið að sparka frá sér þeim flokksgrundvelli, sem hann var búinn að skoða sér áður. Með einu einasta máli, gerðardómsl., hefur hann lagt verkamannafylgi sitt svo í rústir, að vafasamt er, ð hann fái það nokkurn tíma aftur. Og fylgi það, sem hann átti í millistéttunum, hefur einnig stórkostlega rénað við þessa pólitík. Þetta er varla gert út í bláinn af hálfu þeirra, sem raunverulega fara með völdin. Þessi útreikningur, að standa heldur með Framsfl. og gerðardómsl. í vetur heldur en að halda sömu afstöðu og flokkurinn tók í launaþvingunarmálinu á síðasta þingi og að hægt væri að treysta, að Framsfl. reyndist þeim trúr, ég veit, að sú víssa stafar af afstöðu form. Framsfl. En hvort kjósendurnir fylgja þeirri stefnu við kosningar, er annað mál. Fyrir þessa tvo aðila í landinu, embættismannastétt Framsfl. og milljónamæringa Sjálfstfl., er núverandi kjördæmskipun í landinu tilvalið fyrirkomulag til þess að viðhalda sínum völdum, ég tala nú ekki um, ef þeir kæmu sér saman um að breyta eftir stríðið öllum kjördæmum í einmenningskjördæmi.

Þetta virðist mér vera það, sem nú blasir við í sambandi við þetta kjördæmamál. Framsfl. berst auðvitað á móti, og frá þröngu sjónarmiði þess flokks er það skiljanlegt, og ég þykist vita, að við kosningar muni hann beita öllu, sem hann á til, til þess að hindra, að þetta mál fái framgang. Það hafa ekki enn þá komið fram raddir frá hinum mismunandi sjónarmiðum, sem ætla má, að séu fyrir hendi í Sjálfstfl. til þessa, máls. Þær koma kannske fram, áður en langt um liður. En af þeim mun nokkuð mega ráða, hvers stuðnings Framsfl. muni njóta í komandi kosningum til þess að reyna að hindra framgang kjördæmamálsins. Það er nauðsynlegt, að þeir, sem standa að þessu máli, geri sér ljóst, að það kemur til með að kosta einhverja þá hörðustu baráttu, sem hér hefur verið háð. Siðast kostaði sú barátta þrjú ár. Vil ég í því sambandi spyrja flm. þessa máls, hvernig þeir hafi hugsað sér að koma þessu máli í gegn eða tryggja sigur þeirra, sem með því standa við kosningar. Það væri æskilegt að fá að heyra hér á þingi, hvernig þeir hugsi sér við þær kosningar, sem fram fara, að tryggja, að þeir, sem fylgja frv. nú, skuldbindi sig til að framfylgja því á næsta þingi, ef þeirra flokkar sigra í kosningunum, án tillits til annars en að koma þessu máli fram. Það er vitanlegt, að því harðari sem ganga má út frá, að baráttan verði, — og þar verður kannske ekki, að eiga við Framsfl. einan, heldur ef til vill líka einhvern part af Sjálfstfl., — því meir ríður á að ganga út í baráttuna án nokkurra tálvona og án nokkurra hleypidóma. Ég ætla að bíða með að ræða það frekar, þangað til ég hef fengið svör við þessu, en ég álít það fjörráð við þetta mál að leggja út í baráttu um það án þess að gera allt, sem hægt er, til að tryggja því sigur og án þess að þeir, sem standa með því nú, framfylgi því á næsta þingi, ef þeir sigra í kosningunum.

Það hefur verið gengið út frá því, að þetta mál fari í sérstaka n. Ég vil mælast til þess sérstaklega, að þm. Sósíalistafl. fái að hafa fulltrúa í þeirri n. Ég geng út frá því, að að svo miklu leyti sem um það er að ræða hjá þeim, sem að frv. standa, að vilja koma á jafnrétti meðal kjósendanna í landinu, ætti það að vera meira eða minna fyrirkomulagsatriði, hvernig það verður tryggt, þar sem verður að telja, að hvorki sé rétt, að einstakir flokkar manna hafi nein sérréttindi, né að hlutur þeirra, sem fámennari eru, sé fyrir borð borinn eða vald miðstjórna flokkanna gert óhæfilega mikið. Ég geri því ráð fyrir, að þessi n. komi til með að ræða, hvernig bezt verður að tryggja sem frekast jafnréttið. Það er mikil spurning, hvort rétt er að fara út í fjölgun einmenningskjördæma, eins og frv. gerir ráð fyrir. Ég þykist líka vita, að Alþfl. muni ekki bera till. fram af því, að hann sé meira með þeim en öðrum aðferðum, heldur muni hann bera þær fram vegna þess, að hann álítur, að með því móti sé hægt að fá meira fylgi í þinginu. En það er atriði, sem mun verða rætt í þeirri n., sem fær málið til athugunar. Þetta álít ég, að sé aðalatriðið, að vilji menn standa að því að auka jafnrétti meðal kjósendanna í landinu, þá verði menn að bindast þeim samtökum, sem þarf til þess að knýja þetta mál fram.