24.03.1942
Neðri deild: 25. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 830 í B-deild Alþingistíðinda. (2406)

38. mál, stjórnarskipunarlög

*Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég sé ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um þetta mál í tilefni af þeim umr., sem fram hafa farið, en vil þó leiðrétta einstök atriði. Yfirleitt hefur málinu verið tekið vel, og einstök atriði frv. eru til samninga í þeirri n., sem væntanlega verður kosin.

Hæstv. fjmrh. skýrði frá því, að það hefði verið stöðvunarvald tveggja flokka, sem hefði komið kjördæmamálinu fram á þingi 1932. Það mætti misskilja hæstv. ráðh. svo, að þetta stöðvunarvald hefði verið notað til þess að þvinga þáverandi stj. til fylgis við málið, en það var ekki tilfellið. Sú stj., sem sett var á laggirnar 1932, hafði tekið þetta mál að sér og bar sjálf fram frv. um málið, sem byggðist á þeim sterkustu líkum, sem þá voru um að fá leiðréttingu á þessum málum, og því fylgdi stj. fram, án

þess að þyrfti nokkuð að þvinga hana. Að öðru leyti fer ég ekki út í sögu þessa máls.

Sumir hafa fundið að því, að sjálfstæðismálið skuli ekki vera tekið upp í þessar till., en flm. þessa frv. töldu réttara að tvískipta þessum breyt. Þingið hefur gert ályktanir, sem marka afstöðuna í sjálfstæðismálinu til ófriðarloka, og má vænta þess, að þingfl. verði sammála um þær breyt., en við hinu má búast, að þetta mál valdi talsverðum deilum. Því þótti okkur réttara að tvískipta þessu. Ef menn vilja koma á formlega þeirri breyt. æðstu stjórnar landsins, sem við það er tengd, að tími dansk-íslenzka samningsins er útrunninn á næsta ári, hvað sem líður skoðunum manna á því, að hann sé áður falinn úr gildi, þá er það vel hægt, og þyrfti vitanlega að setja nú þegar sérstaka n. til að athuga það mál. Yrði að þeirri breyt. horfið 1943, kæmu tvennar kosningar á tveim árum. Ég sé ekki ástæðu. til að blanda þessum málum saman. En það er eins og sumir menn vilji nota sjálfstæðismálið og fleiri óskyld mál til þess að tefja fyrir kjördæmaskipunarmálinu, og það ber vitni um, að lítið sé um rök gegn því máli sjálfu.

Ég var kallaður á fund í viðskiptanefnd og gat því ekki hlustað á ræðu hv. 1. þm. Rang. (SvbH). En mér hafa verið sögð nokkur atriði úr henni. Hann spurði, hvar í stjskr. það væri viðurkennt, að réttur þingflokkanna til þingmannatölu ætti að miðast við atkvæðatölu við kosningar. Það er í þessum orðum 26. gr. c: „— þingmenn til jöfnunar milli þingflokka, svo að hver þeirra hafi þingsæti í sem fyllstu samræmi við atkvæðatölu sína við almennar kosningar“. Í þessu felst skýr ósk um það, að samræmi náist milli atkvæðamagns og þingmannntölu flokkanna.

Ég get ekki sagt, að það sé neitt sérlega seint, sem brtt. koma fram við þá kjördæmaskipun, sem gerð var fyrir tæpum áratug síðan. Aðeins tvennar kosningar hafa farið fram í millitíð og hafa sýnt ranglætið, sem enn er, þrátt fyrir upp.. bótarþingsætin, og þó meir hinar síðari, og nú er eðlilegt, að þessu sé hreyft, er þriðju kosningarnar standa fyrir dyrum. Það er að vísu rétt, sem hv. 1. þm. Rang. sagði, að þessar till. eru að töluverðu leyti miðaðar við það ástand, sem er, og möguleikana fyrir því, að nokkrar umbætur nái fram að ganga. Flm. halda því ekki fram, að hér sé um þær einu réttlátu till. að ræða, og þeir eru til viðtals um allar þær till., sem stefna að sama marki, auknu jafnrétti kjósendanna í landinu. Um það þarf ekki að deila, að till. okkar stefna að því marki, og það læt ég ekki segja mér, að mannréttindin séu hættuleg þingræðinu og frelsinu. Segja má, að með hlutfallskosningum aukist hætta á, að smáflokkar myndist. En með breyt. okkar yrði ekki mikla meiri hætta á því en er. Og móti hættunni mætti vinna með allt öðru en misjöfnum kosningarétti, svo sem með ákvæðum þess efnis, að hvur flokkur þyrfti eins og nú að koma að einam manni kjördæmiskosnum — eða e.t.v. fleiri en einum — til þess að fá rétt til uppbótarþingsæta. Þá væri gengið beint til verks móti smáflokkum, en hitt verður aldrei varið, að beita til þess ranglátri kjördæmaskipun.

Hv. 1. þm. Rang. segir, að ég hafi talið það lífsnauðsyn 1932, að Reykjavik fengi ekki nema 6 þm., eins og Alþ. samþ. þá. Þetta veit hann, að er útúrsnúningur. Sú stjórn, sem ég sat þá í, varð að miðla málum og fylgja því fram, sem unnt var að fá samþ. Hún gekkst fyrir því, að uppbátarsætin yrðu ekki fleiri en 11, en þar af leiddi, að ekki þótti fært, að þm. Reykv. yrðu fleiri en 6. Nokkrir framsóknarflokksmenn lögðu á það mikla áherzlu, að þm. Reykv. yrðu alls ekki færri en 7, því að þá vonuðust þeir eftir að eignast þingmann fyrir Rvík. Þessi krafa var ekki miðuð við almennt réttlæti í landinu, heldur þingmanna- „spekulationir“ einstakra flokka. Þannig hljóta þeir flokksmenn að hugsa, sem líta ekki á landið sem eina heild.

Ef frv. verður samþ. á þessu þingi, er ég ekki ákaflega hræddur um, að það nái ekki samþykki að kosningum loknum. — Núgildandi kjördæmaskipun er ekki afleitari en svo. Ég er viss um, að jafnvel í Rangárþingi hlýtur það að eiga mjög mikið fylgi, ekki aðeins í Sjálfstfl., heldur og hjá fjölda sanngjarnra framsóknarmanna, sem sjá; að ekki borgar sig að spyrna lengur móti broddunum í þessu réttlætismáli.

Í tilefni af því, sem hæstv. fjmrh,. (JakM) sagði, vil ég taka fram, að í umr. um þetta mál 1932 og 1933 dró ég ekki dul á það, að aldrei mundi hægt að stöðva þetta mál, fyrr en sæmilegur jöfnuður væri kominn, á milli flokkanna.