24.04.1942
Efri deild: 40. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í B-deild Alþingistíðinda. (242)

9. mál, eftirlit með ungmennum o.fl.

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég verð að segja það, að ég er mjög undrandi á ræðu hæstv. forsrh. Hann kastar því fram, að allar brtt. séu til ills eins, en gerir svo ekkert til að rökstyðja mál sitt. Frsm. n. gerði ýtarlega grein fyrir brtt. og rökstuddi þær, en hæstv. forsrh. gaf sér ekki tíma til að hlusta á mál hans, og nú þegar ég stend upp, þá gengur hann af fundi.

Ég sé ekki annað en að l. þessi nái tilgangi sínum, þótt aldurstakmarkið sé lækkað og fresturinn lækkaður um eitt ár. Mál þetta er mikið vandamál, og enginn „fasistiskur“ hernaðarandi, að ráða því til lykta hér, því að ég trúi ekki, að harkan ein sé góð til að koma því í framkvæmd, sem gera þarf.

Þar sem hæstv. forsrh. er ekki á fundi, en til hans beindi ég orðum mínum, þá virðist mér tilgangslaust að hafa þessi orð mín fleiri. En ég tel brtt. vera til bóta fyrir málið.