13.05.1942
Neðri deild: 57. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 858 í B-deild Alþingistíðinda. (2423)
38. mál, stjórnarskipunarlög
Einar. Olgeirsson:
Herra forseti ! Ég þarf ekki að eyða mörgum orðum að þeirri hlið þessa máls, sem snertir sérstaklega sjálfstæði okkar íslendinga og það, hvernig eigi að ganga frá stjskr; hvað snerir þá breyt., sem sambandsslitin við Dani gera eðlilega þar á. Mér finnst það liggja í augum uppi, að eðlilegasta aðferðin fyrir hæstv. Alþ. til þess að leysa það mál, sem er vitanlegt, að þarf ekki að vera a.m.k. neitt deilumál milli flokka, svo framarlega sem það er vel og hlutdrægnislaust undirbúið, — mér finnst liggja í augum uppi, að eðlilegasta aðferð Alþ. til að leysa það mál sé sú að afgreiða kjördæmamálið nú út af fyrir sig og taka svo stjórnarskrármálið fyrir að því er sjálfstæðismálið snertir, þannig að hafa það nægilega vel undirbúið, til þess að allir flokkar þingsins geti verið sammála um afgreiðslu þess á þinginu í sumar, láta svo kjósa út frá þeirri nýju kjördæmaskipun og um leið til þess að samþykkja breytingar á stjskr. okkar út af sjálfstæðismálinu. Mér finnst þetta liggja svo í augum uppi, að það þurfi í raun og veru ekki að ræða það mál sérstaklega. Ég hef alls ekki getað skilið þau mótrök, sem hv. frsm. minni hl. n. hefur verið að reyna að flækja þetta mál með. Mér virðist þetta liggja svo í augum uppi fyrir þá, sem virkilega vilja ganga að lausn sjálfstæðismálsins. Hvað svo kjördæmamálið sjálft snertir, þá er það vitanlegt, að hvenær sem það er tekið upp aftur, mundi það gefa tilefni til mjög harðvítugrar baráttu. Og það er ekki nema rétt, að það sé gerð ýtarleg grein fyrir því, hvers vegna nauðsyn er á því að heyja slíka baráttu, því að hún er um það, hvort í þessu þjóðfélagi eigi að vera lýðræðisskipulag, þannig að tryggður sé réttur meiri hl. þegnanna til áhrifa á stjórnarfarið á hverjum tíma, og hvort eigi að koma í veg fyrir það, að minni hl. þjóðfélagsþegnanna, og þá sérstaklega lítill minni hl. þeirra, eigi að geta algerlega drottnað yfir þjóðinni. Er þetta tryggt með núverandi kjördæmaskipun og kosningafyrirkomulagi, að meiri hl. þjóðarinnar ráði í þessum efnum? Og er með núverandi skipun á þessum málum komið í veg fyrir það, að lítill minni hl. þjóðfélagsþegnanna geti ráðið ráðum þjóðarinnar ? Hvernig er skipun þessi nú? Ef gengið er út frá því, sem kom fram við síðustu kosningar, þá er hægt fyrir flokka og flokkasamsteypur, sem hafa á bak við sig 18 þús. atkv. í 2i6 einmenningskjördæmum og tvímenningskjördæmum á landinu, að ná hreinum meiri hluta og hafa þar meiri 26 þingmenn kjörna, þó að allir aðrir kjósendur í landinu, sem ekki kysu þessa þingmenn, geti verið 3/4 hlutar þjóðarinnar. Þó að þessir 3/4 hlutar kjósendanna fengju alla þm. bæjanna kjörna og uppbótarþm. alla og eitthvað af kjördæmaþm., þá mundu þeir hafa 23 þm. kjörna, sem þó hefðu 3/4 hluta þjóðarinnar á bak við sig.
Þessi 1/4 hluti þjóðarinnar með 18 þús. atkv. á bak við sig gæti fengið 26 þm. og ráðið málum þjóðarinnar á þingræðislegan hátt. Og hann gæti gert meira. Hann gæti breytt kjördæmaskipuninni svo, að hún yrði færð í enn meira afturhalds- og einræðishorf, t.d. þannig, að alls staðar yrðu einmenningskjördæmi. Það er þetta, sem skapar hættu fyrir lýðræði þjóðarinnar. Með flokkasamsteypu, sem nær réttum meiri hl. í einmennings- og tvímenningskjördæmum, getur hluti þjóðarinnar náð meiri hl. þings. Þessi hætta felst í núverandi kjördæmaskipun, og það er sérstök ástæða til að reyna að afstýra henni, þegar farið er að bera á þeirri tilhneigingu, að vissir flokkar vilja nota sér þessar misfellur á kjördæmaskipuninni til þess að beita kúgun, sem mundi fylgja því valdi, sem vegna þeirra misfellna væri hægt að ná.
Formaður Framsfl. beitti sér fyrir því, að mynduð yrði flokkasamsteypa, sem hann gæti beitt gegn samtökum verkalýðsins og hagsmunum millistéttarinnar og menntamanna þjóðarinnar. Síðan hafa bæði hann og hæstv. forsrh. verið þess hvetjandi, að landinu væri skipt upp í eintóm einmenningskjördæmi. Það er einmitt þessi tilhneiging, að skapa þingræðismöguleika til þess að drottna með minni hl. þjóðarinnar á bak við sig, sem felur í sér svo stóra hættu fyrir lýðræðið. Frv. það, sem hér liggur fyrir, miðar að því að afstýra þeirri hættu, þó að það gangi ekki nógu langt. Það er því ekki til neins fyrir hv. frsm. minni hl. að tala með þjósti um, að verið sé að gera það, sem lýðræðinu stafi hætta af. Hann snýr hlutunum alveg við. Enda hefur í krafti kosningal. verið stigið hvert sporið á fætur öðru á einræðisbrautinni hér. Það þarf ekkert að velta vöngum um það, að frv. miðar að því að afstýra hættunni á, að þingræðið verði notað sem gríma fyrir einræði. Grundvallar-„principið“ í frv. er hið sama og var að nokkru leyti viðurkennt við stjskrbreyt. 1933, þó að það fengist ekki framkvæmt, sem sé, að allir þegnar þjóðfélagsins hafi jafnan kosningarétt. Þetta frv. miðar að því, þó að tilgangurinn náist ekki fyllilega, að gefa öllum jafnan kosningarétt. Andstæðingar frv. hafa ekki þorað að taka upp deiluna um, hvort Íslendingar eigi að hafa jafnan kosningarétt. Þeir hafa reynt að haga rökum sínum svo, að þeir þyrftu ekkert að fara inn á það, heldur verið með alls konar vífilengjur. Það væri æskilegt, að það kæmi greinilega fram, hvað þeir í raun og veru vilja. Af hverju á ð gera Íslendingum svona mishátt undir höfði? Hvernig dirfist það skipulag, sem kennir sig við mannréttindi, að standa að þessu?
Það væri æskilegt, að frv. gengi lengra í þá átt að tryggja Íslendingum jafnrétti. Ég minnist á það í nál., að bezt væri að hafa fá, en nokkuð stór kjördæmi, t.d. 6 að tölu, með hlutfallskosningum. En það er ekki til neins að bera það fram. Ég get þó þessa til þess að sýna, hvað ég álít réttast.
Hv. frsm. minni hl. talaði um viljann til að vinna fyrir einmenningskjördæmin. Í sambandi við það vil ég benda á, hvers konar áhrif það hefur á þingstörfin, að einmenningskjördæmin skuli yfirleitt vera til. Það leiðir af sér hreppapólitíkina, þetta erfiða vandamál, sem bindur þm. hvern á sinn bás. Hreppapólitíkin gengur svo langt, að það hefur aldrei mátt koma fram með till. um að taka veg upp í þjóðvegatölu, svo að þm. rísi ekki upp hver af öðrum og heimti vegarspotta í sínu kjördæmi í þjóðvegatölu. Fæstir hugsa um, hvar nauðsynin er mest og hvað þjóðarheildinni er fyrir beztu. Síðan verzla þeir sín á milli, kalla hver annan út í horn, áður en atkvgr. fer fram og segja: „Ég skal vera með þínum vegi, ef þú vilt vera með mínum“. Þannig var þetta, þangað til flokkarnir settu handjárn á þm. og bönnuðu þeim að koma með brtt. við fjárl.
Þetta er enn þá hættulegra, þegar um stærri mál er að ræða, t.d. hvar eigi að setja niður síldarverksmiðjur. Hver og einn af þm. norðanlands heldur því fram, að síldarverksmiðju sé sjálfsagt að hafa í sínu kjördæmi. Hitt er aukaatriði, hvað sé heppilegast fyrir síldveiðiflotann. Halda menn, að þetta sé hollt fyrir lausn málanna? Svo er dritað niður smáverksmiðjum hér og þar, sem ekki borga sig, þar til öllu er skellt yfir á ríkið. Spillingin, sem af þessu leiðir, hefur valdið glundroða og axarsköftum, meira að segja líka, eftir að flokkarnir fóru að handjárna þm. Eitt smádæmi eru rafveiturnar. Ég held, að rafveituábyrgðirnar séu komnar upp í einar 9 milljónir. Það er með þessu verið að sundra þjóðinni í smáhreppa og eyðileggja vinnubrögð þingsins.
Þá er bezt að snúa sér að hinni pólitísku hlið málsins. Það er sérstaklega Framsfl., sem hefur grætt á ranglæti kjördæmaskipunarinnar og notað þá möguleika til einræðis. Því meira sem hann hefur unnið á, því meira hefur hann spillzt. Framsfl. hefur á síðustu 12–15 árum breytzt úr tiltölulega róttækum vinstri flokki, með hagsmuni sveitaalþýðunnar fyrir augum, í það að vera svartasti afturhaldsflokkur, sem hefur beitt sér fyrir harðvítugri samvinnu við auðvaldið á Íslandi en áður hefur þekkzt. Sérréttindi Framsfl. hafa spillt honum. Eitt af því, sem er nauðsynlegt til að skapa hér aftur heilbrigðan sveitaflokk, er að taka þessi sérréttindi af Framsóknarflokknum.
Hv. frsm. minni hl. talaði átakanlega um, hvert tjón það væri, að verið væri að stofna til ófriðar. En hvers konar frið hefur hann viljað og samherjar hans? Friðinn um það að mega skipta þjóðinni upp í stað þess að sameina hana? Friðinn um það að ofsækja verkalýðinn og menntafrömuði landsins? Friðinn um það að mega taka þá menn, sem hafa þurft að flýja á náðir sveitarinnar, flytja þá burt og ræna þá öllum mannréttindum? Friðinn um það að mega viðhalda harðvítugu auðvaldi í landinu? Það er hægt að kalla ástandið í kirkjugarðinum frið. Það er hægt að kalla það ástand í þjóðfélaginu, að smælingjarnir eru fjötraðir og réttindalausir, frið. Framsfl. vill þær kosningar, sem geta eflt þann frið. En alþýðumenn í þessu landi eru á öðru máli. Þúsundir þeirra verða þeirri stundu fegnastar, þegar þjóðstj. er ekki lengur til. Þeir vilja sprengja þá fylkingu, sem hefur verið andstæð öllum þeirra hagsmunamálum, og tryggja sig gegn því, að nokkur flokkur geti náð meiri hl. á Íslandi, sem er í minni hl. á meðal þjóðarinnar. Svo talar hv. 1. þm. Rang., frsm. minni hl., um þjóðarnauðsyn og réttlætistilfinningu. Var það af þjóðarnauðsyn, að Kveldúlfur var gerður skattfrjáls? Er það réttlætistilfinning hv. 1. þm. Rang., sem segir honum, að verkalýðnum skuli bannað að bæta kjör sín, en auðkýfingarnir stórauka eignir sínar?
Hv. frsm. talaði um, að verið væri að rjúfa samstarfið og fórna því. Þessu líka þokkalega samstarfi ! Hann talaði um það, að við ættum að verja frelsi okkar í framtiðinni. Er það frelsi verkalýðsins, sem sá flokkur er að verja, sem samþ. þrælalögin?
Þá segir hv. frsm., að það sé verið að reyna að gera sveitakjördæmin áhrifalaus. Ég er nú hræddur um, að það, sem Framsfl. talar um, að eigi að fara að vinna, hafi þegar verið unnið. Hvað gerði form. Framsfl., þegar hann hafði til ráð í sinni hendi? Gerði hann nokkuð fyrir áhrifavald sveitanna? Nei, hann seldi áhrifavald sveitanna, seldi það í hendur Kveldúlfi. Það er því ekki verið að minnka áhrifavald sveitanna. Þegar sveitaafþýðan á Íslandi skipar svo sinni pólitísku forustu, að hún getur unnið með verkamannastétt bæjanna, verða möguleikar til, að hún geti komið fram sinum hagsmunamálum. Framsfl. hefur brugðizt henni.
Hv. 1. þm. Rang. minntist enn fremur á það, að það væri talað um kommúnista og þætti miklu betra að styðja öfgaflokka til alls konar framkvæmda. Það mætti kannske athuga það, hverjir það væru, sem komanúnistar hafa stutt til valda. Ég veit ekki betur en ýmsir af þm. Framsfl. sitji nú á þinginu fyrir atkv., sem þeir hafa fengið frá kommúnistum. Sannleikurinn er sá, að það hefur sýnt sig með kommúnistana, að þeir hafa verið til með að styðja hvert það mál, sem þeir halda, að leiði til meira frelsis fyrir þjóðina, og þess vegna hvatti ég fylgismenn mína 1937 til þess að kjósa framsóknarmenn. En hvernig hafa svo þessir menn farið með það traust, sem þeim var sýnt þá? Þeir hafa notað það til þess að koma á skattfrelsi útgerðarinnar og þar með losað milljónafyrirtæki gins og Kveldúlf undan öllum sköttum. En ég er hræddur um, að verkamenn komi til með að þakka þeim fyrir það við næstu kosningar, og er ég hræddur um, að engan undri, þó að verkalýð landsins finnist tími kominn til þess að skapa réttlæti í kjördæmamálinu og tryggja sér fullkominn kosningarétt.
Þá talaði hv. 1. þm. Rang. um, að hlutfallskosningar hefðu eyðilagt lýðræðið, en það fer fjarri því að svo sé. Það, sem hefur eyðilagt lýðræðið, er það, að flokkar, sem hafa kallað sig lýðræðisflokka, hafa ekki framkvæmt það, sem fólkið hefur falið þeim við kosningar, heldur hafa þeir, þegar til þingsins kom, byrjað að verzla um málin. Það er slík sár reynsla, sem fólkið hefur fengið ár eftir ár, t.d. af flokk eins og Framsfl. Það er því alger misskilningur hjá hv. 1. þm. Rang., að það hafi verið hlutfallskosningar, sem hafa eyðilagt lýðræðið í heiminum. Hann sagði enn fremur, að eftir að keisaradæmið þýzka hrundi til g,runna 1918, hefðu kommúnistar og nazistar komið sér saman um stjskr., sem hefði síðan valdið því, að lýðræðið hrundi til grunna. En það var bara allt annað. Hvorki kommúnistar né nazistar máttu sín verulega á þeim tíma. Meiri hl. þingsins var skipaður þm. frá sósialdemókrötum og öðrum slíkum flokkapörtum. En slíkir flokkar töldu sig lýðræðisflokka.
Ef menn fara að rannsaka þetta, þá munu þeir komast að raun um, að það voru auðmannastéttirnar í Þýzkalandi, sem ekki treystu sér til að láta fólkið hafa kosningarétt, og þá kom einræðið til sögunnar. Það skyldi nú ekki vera, að eitthvað svipað vekti fyrir mönnum þeim, sem hér berjast á móti því, að réttlátara kosningafyrirkomulag komist á, og vilja halda dauðahaldi í það fyrirkomulag, að 1/4 hluti þjóðarinnar geti fengið algert vald yfir hinum 3/4 hlutum þjóðarinna,r?
Þá talaði hv. þm. um það, hversu háskasamlegt það væri, að þjóðin væri nú leidd út í illvígari deilur en nokkru sinni fyrr á slíkum hættutímum, sem nú væru. Því skal ekki neitað, að nokkur hætta vofir yfir okkar þjóð, en má ég spyrja: Var það ekki hæstv. fyrrv. forsrh., sem lýsti yfir því, að það yrðu að vera kosningar í sumar? Var þá ekki gefið, að þjóðin færi út í kosningar? En svo kemur hin spurningin: Hvers konar kosningar áttu þetta að vera? Áttu það að vera kosningar, þar sem Framsfl. átti að halda áfram samvinnunni við Sjálfstfl., eða áttu það að vera kosningar til þess að ræða alla pólitík landsins? Það er alveg óhætt að fullyrða það, að þegar þessir menn eru að tala um friðarkosningar og nauðsyn þess, að allir séu sammála, þá er það ekkert annað en eintóm hræsni, því að einmitt þessir sömu menn eru árið út og árið inn að boða sífelldan ófrið með þessari þjóð, þar sem þeir vilja skipta þjóðinni í tvo hluta og kalla annan ófriðarvaldinn, af því að hann hefur verið útilokaður frá vinnu.
Þá sagði hv. þm., að hér hefðu komið fram verzlunarsamningar á milli flokka, rétt eins og það væri nokkuð, sem aldrei hefði þekkzt hér áður. Mér þætti annars mjög fróðlegi að heyra hv. þm. sýna fram á, að það hefði verið samið um þetta mál. Aftur á móti mun flokkur þessa hv. þm. hafa gert verzlunarsamninga um flest stórmál, sem verið hafa á döfinni undanfarin ár. Það, sem hér um ræðir, er einungis það, að þeir flokkar, sem að þessu máli standa, álíta, að þetta stefni í lýðræðisátt og muni tryggja frelsi og framtíð þjóðarinnar betur en núverandi kjördæmaskipun. Annars vil ég upplýsa það, að daginn eftir að ég stofnaði kommúnistaflokkinn, var okkur boðið upp á verzlun af Framsfl. um það að gera Siglufjörð að sérstöku kjördæmi gegn því, að við styddum frambjóðanda Framsfl. á Akureyri, en því tilboði var hafnað. Ég held því, að hv. 1. þm. Rang. megi tala varlega um verzlunarsamninga í sambandi við þetta mál og ýmis önnur fleiri.
Ég vil svo að lokum segja það, að með þeirri breyt., sem hér á að gera á kjördæmaskipuninni, á að tryggja fólkinu í landinn meiri rétt til þess að hafa áhrif á þingið heldur en verið hefur. Það á með þessu að koma í veg fyrir það, að 1/4 hluti þjóðarinnar geti tryggt sér yfirráð yfir hinum 3/4 hlutum þjóðarinnar og farið með öll völd landinu.