18.05.1942
Neðri deild: 60. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 907 í B-deild Alþingistíðinda. (2442)

38. mál, stjórnarskipunarlög

*Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson):

Afstaða meiri hl. er skýr í þessu máli og leiðir af sjálfri sér. Ef lögleiddar verða hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmunum, verður að sjálfsögðu ekki hægt að skipta þeim í einmennigskjördæmi með einföldum l. Það hefði eins mátt bera fram till. um, að Rvík yrði skipt í mörg einmenningskjördæmi. Að fækka uppbótarþingsætunum úr 11 niður í 8 er bókstaflega á móti anda þeirrar löggjafar, sem hér á að fara að setja. Þingmeirihlutinn mun því greiða atkv. gegn þessum till.