18.05.1942
Neðri deild: 60. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 907 í B-deild Alþingistíðinda. (2443)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Pétur Ottesen:

Ég var fjarverandi 2. umr. um þetta mál hér í hv. d., þar eð ég varð að taka sæti á sýslunefndarfundi heima í mínu héraði. Atkvgr. um brtt. mína var því frestað að ósk minni til 3. umr. Um till. sjálfa mun ég ekki þurfa að fara mörgum orðum. En áður en ég vík beint að henni, vildi ég segja hér nokkur orð almennt í sambandi við þetta mál.

Nú hefur það orðið ofan á hér á Alþ., að horfið hefur verið frá kosningafrestuninni, er samþ. var í fyrra og átti að ná út núverandi kjörtímabil, en þó ekki lengur en til loka stríðsins. En nú er til fulls horfið frá þessari ákvörðun, og var enda farið að örla á því á haustþinginu, að svo mundi fara.

Ég tel það misráðið, að horfið hefur verið frá þessari kosningafrestun, því að ástæður hafa að engu breytzt til batnaðar frá því, sem þá var í þessu efni. Ég verð að láta í ljós hryggð mína yfir því þrekleysi og úthaldsleysi við skynsamlegar ákvarðanir, að horfið skuli nú frá þessu ráði. En ekki tjáir að sakast um orðinn hlut, heldur ber oss nú að horfast í augu við erfiðleikana og mæta þeim með manndómi.

Fyrst horfið er nú frá þessu ráði og gengið til kosninga, tel ég það ekki höfuðatriði, þótt fara þurfi fram tvennar kosningar í stað einna. Fyrst til kosninga er gengið á annað borð, þurfa stjórnmálaflokkarnir að leiða til lykta þau mál, er kosningarnar snúast um.

Það má búast við, að kjördæmamálið verði mikið deilumál. En þótt talað sé um, að kosningar þurfi nú að fara fram með friðsamlegum hætti, hef ég ekki mikla trú á, að það mundi hafa tekizt, þótt þetta mál hefði ekki verið til þess að valda misklið. Reynslan hefur sýnt það, að sí og æ er reynt að þyrla sem mestu ryki upp kringum kosningar, og skoðanir eru túlkaðar á ýmsa vegu frá ólíkum sjónarmiðum flokkanna. Þetta mál þarf því ekki að valda miklum ófriði í rauninni fram yfir venjulega kosningahríð. Hins vegar, eins og ég tók fram áðan, álít ég of mikið gert úr því, þótt fara þurfi fram tvennar kosningar, úr því að annars er kosið. Það leiðir líka af sjálfu sér, að kjósa þarf aftur, því að þegar gerð er breyt. á æðstu stjórn landsins; er ekki eðlilegt, að langt liði ,frá því og, þar til hún yrði tekin upp í stjskr. En þótt þingflokkarnir hafi ekki komið sér saman um margt, hafa þeir orðið sammála um að ganga ekki frá sjálfstæðismálinu á þessu þingi. Virðist því einhlítt um, að það verði ekki afgreitt nú, og tel ég það miður farið. Það hefði að sjálfsögðu átt að taka þessa breyt. nú upp í stjskr. Hins vegar virðist ríkja eindreginn vilji um að ganga frá þessu máli á næsta þingi, og má segja, að það komi rauniar nokkuð í sama stað niður, en mín skoðun hefur ávallt verið sú, að ekkí beri, úr því sem komið er, að draga það að ganga frá endanlegri stjórnskipun landsins. Hef ég áður látið þá skoðun í ljós. Mér finnst eðlilegt og viðkunnanlegt, að kosið hefði verið til þjóðfundar til þess að afgreiða, það mál. Ég er enn ekki horfinn frá þeirri skoðun. Ég tel það vera í samræmi við afgreiðslu slíkra mála hér á landi áður og fyrr. Vitanlega má ég ekki miklu orka hér um. En ég tel, að ekki geti komið til mála að fresta þessu lengur en til næsta þings.

Ég mun hér lítið ræða brtt. mína um skipan kjördæmanna, það yrði hætt við, að um endurtekningar yrði að ræða á því, sem búið er hér að segja um málið. Ég vil aðeins taka fram, að ljúfast væri mér að fylgja þeirri einni breyt. á kjördæmaskipuninni, að upp yrðu teknar hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmunum. Það má vera, að uppbótarþingsætafyrirkomulagið sé ekki sem æskilegast, en að taka upp hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmunum virðist aðeins eðlilegt framhald af hlutfallskosningum í kaupstöðum og falla vel inn í ramma kosningafyrirkomulagsins hér. Með þeim yrði mikill jöfnuður milli flokkanna og gæti leitt til þess, að uppbótarþingsætunum fækkaði, og drægi um leið úr því, er menn telja áfátt við það skipulag. Þessi breyt. liggur og næst þannig, að gera þarf minnsta röskun á kjördæmaskipuninni sjálfri.

Að breyta landinu í eitt eða örfá kjördæmi með hlutfallskosningum, tel ég ófært hér og andstætt þeim skilyrðum, sem við eigum við að búa. Í brtt. minni er aðeins gert ráð fyrir hlutfallskosningum í tvímenningskjördæmunum. Ég tel ekki í sjálfu sér heppilegt eða æskilegt að fjölga þingmönnum frá því, sem nú er. Með brtt. minni marka ég þær breyt., er ég vil vinna að, og er að þessu leyti sammála hv. þm. V.- Sk. (GSv).

Það mun varla fleira, sem ég þarf að segja að svo stöddu. Ég get búizt við eftir því, sem fram hefur komið, að brtt. mín muni ekki ná samþykki, en hvað sem því liður, hef ég með henni markað afstöðu mína til málsins. Þótt hún hins vegar nái ekki samþykki, mun ég engan veginn snúast gegn málinu, því að ég tel það atriði, að teknar verði upp hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmum, svo mikilsvert atriði, og að með því sé ráðin nauðsynleg og sjálfsögð bót á núverandi kosningatilhögun, að ég hika ekki við að fylgja málinu, fyrst á annað borð var horfið frá kosningafrestuninni.