21.05.1942
Efri deild: 63. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 929 í B-deild Alþingistíðinda. (2468)
38. mál, stjórnarskipunarlög
*Frsm. meiri hl. (Magnús Gíslason):
Herra forseti ! Nefnd sú, sem kosin var til þess að segja álit sitt um þetta mál, gat ekki fallizt á nokkra eina lausn málsins. Þegar leitað var atkvæða um það í n., hvort samþ. skyldi frv., eins og það kom frá Nd., féllu atkv. þannig, að 3 nm. hv. þm. Hafnf., hv. 2. landsk. þm. og ég, mæltu með frv. óbreyttu, en hv. 2. þm. Eyf. og hv. þm. S.- Þ. vildu láta fella frv. Um þetta mál hafa farið fram miklar umr., bæði þegar málið var til umr. í Nd. og í útvarpsumr., sem fram hafa farið undanfarin kvöld. Mér þykir þó hlýða að skýra hér í stuttu máli afstöðu mína til þessa máls. Þær aðalbreyt., sem frv. gerir ráð fyrir, að verði gerðar á núverandi stjskr., eru í fyrsta lagi, að bæta einu kjördæmi við, í öðru lagi, að fjölga þm. í Rvík úr 6 í 8, og í þriðja lagi, að teknar verði upp hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmunum. Til þess að gera sér grein fyrir því, hvort breyt. þessar séu til bóta eða ekki, þarf að athuga, í hvaða sambandi þær standa við fyrri aðgerðir Alþ. í þessum málum, hvernig þróunin hefur verið í þessum málum og hvort þessar till. séu í anda lýðræðis, sem á að tryggja með stjórnarskránni. Sé það tilfellið, að hér sé um framhald af áður unnum störfum Alþ. að ræða og till. miða að því að auka lýðræðið, er rétt að samþ. þær. Ég skal þá fyrst snúa mér að því atriði, sem fjallar um fjölgun kjördæmanna. Sú kjördæmaskipun, sem nú er í gildi í landinu, er í stórum dráttum hin sama, sem sett — var með kosningal. 1877: Með þeirri löggjöf var grundvöllurinn lagður undir núverandi kjördæmaskipun í landinu. Þá voru 30 þm. þjóðkjörnir og 6 konungskjörnir. Hinir 30 þjóðkjörnu þm. skiptust þannig, að 18 voru kosnir í 9 tvímenningskjördæmum, en 12 í jafnmörgum einmenningskjördæmum. Það er augljóst, hvað vakti fyrir löggjafanum, þegar hann setti þessi lög. Fyrst og fremst það, að kjördæmin voru bundin við þau lögsagnarumdæmi, sem þá voru í landinu. Í öðru lagi vakti það fyrir löggjafanum, að þm. skiptust jafnt niður á kjördæmin, þannig að fjölmennari kjördæmin fengju tvo þm., en hin fámennari einn, og með þessari kjördæmaskipan hefur verið haft fyrir augum hreint lýðræðisfyrirkomulag. Sú breyt., sem orðið hefur á atvinnuháttum, síðan þessi kjördæmaskipun var sett, hefur haft greinileg áhrif í þá átt, að hlutföllin innan, hinna ýmsu kjördæma á landinu hafa raskazt. Atkvæðafjöldinn í kjördæmunum er misjafnari nú heldur en þá, og breyt., sem gerðar hafa verið á kjördæmaskipuninni í þessi 65 ár, miða að því að jafna þennan mismun.
Árið 1903 er bætt við 3 ,nýjum kjördæmum, Akureyri, Ísafirði og Seyðisfirði. Frá 1903 hefur ekki verið bætt við nýjum kjördæmum, sem. hafa haft í för með sér fjölgun þm. En 3 tvímennings kjördæmum hefur verið skipt í einmenningskjördæmi, en það eru Ísafjarðársýsla, Húnavatnssýsla, og auk þess var Hafnarfjörður verður að sérstöku kjördæmi og Gullbringu- og Kjósarsýslu þannig skipt. Nú er gert ráð fyrir því að bæta við einu kjördæmi á Siglufirði, og mér virðist, að hér sé verið að halda áfram þeirri stefnu, sem Alþ. tók upp 1903, þegar það gerði þrjá mannmarga kaupstaði að sérstökum kjördæmum. Um Siglufjörð er að að segja, að síldariðnaðurinn gerir það að verkum, að kaupstaðurinn hefur sérstaka aðstöðu til þess að hafa rétt til þingfulltrúa út af fyrir sig. Auk þess yrði Eyjafjarðarsýsla með stærri kjördæmum á landinu eftir sem áður. Það virðist því ekkert einkennilegt, þó að Siglufjörður yrði gerður að sérstöku kjördæmi, enda hefur það áður komið til tals. Því var haldið fram við þessar umr. í Nd. af kommúnistum, að þeir hefðu fengið tilboð um það frá framsóknarmönnum að gera Siglufjörð að sérstöku kjördæmi. Ég skil ekki, hvers vegna Framsfl. leggst á móti þessari breyt. nú, þar sem hann hefur áður óskað þess og einnig stuðlað að sams konar breyt., þegar Hafnarfjörður var gerður að sérstöku kjördæmi 1923.
Um Rvík er það að segja, að fyrst var þar aðeins einn þm., enda var fúatalan ekki meiri þar heldur en í hverju öðru einmenningskjördæmi. Við þetta stóð til 1903, að þm. var fjölgað um 2 í Rvík. 1920 var þeim aftur fjölgað um 2, enda hafði þá íbúatalan þrefaldazt. Frá 1903 til 1934 var þm. hér í Rvík. fjölgað upp í 6, og er í þessu frv. farið fram á, að þeir verði 8, enda eru hér nú helmingi fleiri íbúar en 1920, og hafi hlutföllin verið rétt þá, er þessi krafa ekki ósanngjörn.
Þá kem ég að þriðju breyt., sem ætlazt er til, að verði gerð með þessu frv., en það er að hafa hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmunum. 1903 fengum við innlenda ríkisstj. undir forustu hinna mætustu manna, og eftir að stjórnin fluttist inn í landið, fór flokkapólitíkin að láta til sín taka. Síðan 1903 hefur flokkabaráttan stöðugt harðnað, og nú á síðustu árum hafa hlutföllin raskazt mikið milli atkvæðatölu flokkanna úti um landið og fulltrúátillu þeirra á Alþingi. Það fyrsta, sem gert var til þess að ráða bót á þessu, var landkjörið, sem ákveðið var með stjskrbreyt. 1915, og næsta breyt. var ákveðin með hlutfallskosningu þm. í Rvík 1920. 1934 var gerð enn breyt. á stjskr., þegar sett var ákvæði um 11 uppbótarsæti til þess að jafna milli þingflokka, svo að hver þeirra hefði þingsæti í fullu samræmi við atkvæðatölu sína við almennar kosningar. Með þessu ákvæði hafa allir menn á landinu jafna aðstöðu til að, hafa áhrif á gang málanna á Alþ. Ég hygg, að allir flokkar geti orðið sammála um, að rétt hafi verið að setja þetta ákvæði í stjskr. En menn höfðu búizt við, að með þessu mundi verða fullur jöfnuður milli flokkanna. En ef fullur árangur hefði átt að vera, þyrftu uppbótarsætin að vera 26, ef miðað er við kosningaúrslitin 1937. Eftir útreikningi hagstofunnar var meðaltal atkvæða þá á hvern þm. sem hér segir: Framsfl. 766, Sjálfstfl. 1419, Alþfl. 1385; Kommúnistafl. 1644, Bændafl. 1789. Þarna er um greinilegt misrétti að ræða, sem ætlazt er til að verði lagfært að miklu leyti með þessum breyt., sem hér er farið fram á.
Því hefur verið haldið fram af andstæðingum þessa frv., að það væri óeðlilegt og ranglátt að viðhafa hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmum. Annars staðar með Norðurlandaþjóðunum hafa hlutfallskosningar verið teknar upp, þar sem hægt er að koma þeim við, vegna þess að það er talið heppilegasta fyrirkomulagið til þess að ná sem næst sanngirni og rétti í þessu máli. Hér á landi hafa hlutfallskosningar verið teknar upp í mjög mörgum tilfellum, t.d. við sveitarstjórnarkosningar og kosningar til búnaðarþings, og hér á Alþ. eru hlutfallskosningar almennt notaðar við nefndaskipanir og hvar sem þeim verður við komið. Mér virðist, að með því að taka upp hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmunum sé haldið áfram stefnunni frá 1915 og síðar með því að ákveða hlutfallskosningar í Reykjavík, og í samræmi við það er líka ákvæði stjskr. um uppbótarþingsæti þau, sem ákveðin voru til jafnaðar, og með þessari breyt. er stefnt í sömu átt, því að uppbótarsætin koma að betri notum, ef hlutfallskosningar eru í tvímenningskjördæmunum.
Þetta mál hefur jafnan verið baráttumál Sjálfstfl., en hann hefur á undanförnum árum ekki haft bolmagn til þess á Alþ. að koma því fram, því að aðrir flokkar hafa ekki viljað ljá því lið. En þegar svo vildi til í vetur, að Alþfl. bar þetta mál fram og vitað var af yfirlýsingu Hermanns Jónassonar, að kosningar mundu fara fram í vor, þá var sjálfsagt fyrir Sjálfstfl. að taka undir þetta mál og hagnýta sér þetta tilboð. Allt annað frá hendi Sjálfstfl. hefði verið svik við stefnu flokksins í þessu máli og líka svík við kjósendur Sjálfstfl. úti á landi, sem mest hafa orðið fyrir barðinu á þessu kosningafyrirkomulagi. Málið stendur nú þannig á þinginu, að allir þm. standa óskiptir með því nema þm. Framsfl., og ég skil ekki í því, hvers vegna Framsfl. tekur svona harða afstöðu gegn þessu máli. Ég vil benda á það, að þessar breyt. miða allar í lýðræðisátt, og Framsfl. telur sig lýðræðisflokk ekki síður en aðrir flokkar. Það er að vísu svo, að eins og nú er ástatt, er Framsfl. fjölmennur flokkur í tvímenningskjördæmunum úti um landið, eða var um síðustu kosningar, svo að hann nýtur ekki góðs af þessu fyrirkomulagi, eins og er. En mismunurinn á atkvæðatölu Framsfl. og annarra flokka var ekki svo mikill í sumum kjördæmunum, að Framsfl. fái að halda þessari aðstöðu til lengdar, og fari svo, að hann missi þessa aðstöðu, mun þetta fyrirkomulag snúast á móti honum, og hann mun telja sig verða fyrir því sama ranglæti og aðrir flokkar nú telja sig verða fyrir af því. Þær mótbárur, sem Framsfl. hefur fært fram gegn þessu frv., eru slíkar, að mér virðast þær fremur veigalitlar. Því er m.a. haldið fram, og hef er heyrt það í útvarpsræðu, að með þessu sé Sjálfstfl. að stofna til friðslita og illinda um hið viðkvæmasta mál og geti það haft alvarlegar afleiðingar. Ég vil mótmæla því, að hér sé um nokkur friðslit að ræða og að það sé þessu frv. að kenna, að friðslit urðu. Friðurinn var nefnilega rofinn áður. Það var ljóst þegar á haustþinginu. þegar Hermann Jónasson baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt, að grundvöllurinn, sem hér var fyrir þjóðstjórn, var hruninn. Það fór að vísu svo, að forsrh. tók aftur við stjórn með sömu ráðherrum, sem voru í fyrri stj. hans, en um leið og hann tók við stj., lýsti hann yfir því, að hann ætlaði ekki að bera ábyrgð á þeim gerðum, sem þingið væri búið að samþykkja í ágreiningsmálunum, og gaf þar með ótvírætt í skyn, að hann vildi engan. frið og samvinnan yrði að teljast vafasöm. Það er ekki Sjálfstfl., sem á sökina á því, hvernig fór. Það er ekki Sjálfstfl., sem vill kosningar. Hann hefur ekki birt ályktanir um það, en það hafa báðir hinir samstarfsflokkarnir gert.
Ég hef ekki trú á því, að kosningar hefðu orðið mjög friðsamar, þótt þetta frv. hefði ekki komið fram. Halda menn ekki, að kosningar hefðu snúizt fyrst og fremst um þetta mál, eftir að frv. á annað borð var komið fram, og halda menn, að kosningabaráttan verði svo miklu harðari fyrir það, að svolítil breyt., sem miðar í réttlætisátt, er tekin til meðferðar, úr því að kosningar eru fyrirfram ákveðnar?
Framsfl. segir, að með þessu sé verið að taka valdið af sveitunum. Af hverju getur það verið? Ég skil ekki slíka röksemdaleiðslu. Verða ekki kosnir jafnmargir fulltrúar og áður? Hvað breytist þá? Ekki annað en það, að Framsfl. getur ekki framvegis setið yfir hlut annarra flokka, eins og hann gerir nú. Þetta, að verið sé að taka valdið af sveitunum, gæti því aðeins verið rétt, að Framsfl. og byggðavaldið væri eitt og hið sama. En kjósendur utan Reykjavíkur hafa enn ekki viljað trúa Framsfl. fyrir að fara með umboð sitt á þingi, og þeir, sem eru í andstöðu við Framsfl., munu verða þeirri stundu fegnastir, þegar þetta vald, sem fæst með kosningum í tvímenningskjördæmum, verður brotið á bak aftur. Það er þess vegna, sem Sjálfstfl. í sveitum landsins fagnar því, ef þetta mál gengur fram á þingi, og það er þess vegna, sem þeir fylkja sér um þetta mál og munu berjast með hnúum og hnefum fyrir því, að Framsfl. komi ekki þeirri ætlun sinni fram að stöðva málið á næsta þingi. En jafnvel þó að það tækist, mundi það verða fullkominn Pyrrhusar-sigur. Það er alveg tilgangslaust að berjast á móti þessu, eins og barátta gegn mannréttindamálum er alltaf gagnslaus.