27.04.1942
Efri deild: 41. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í B-deild Alþingistíðinda. (247)
9. mál, eftirlit með ungmennum o.fl.
*Sigurjón Á. Ólafsson:
Ég sagði nokkur orð um þetta mál við 2. umr þess, sem var beint til hæstv. forsrh., en hann heyrði ekki. Ég mun ekki endurtaka það, sem ég sagði þá. Ég hygg það rétt, að n. hafi tekið þetta mál alvarlegum tökum og reynt að fara hóflega í sakirnar. Enn fremur hefur hún leitað umsagna þeirra, er l. þessi eiga að framkvæma, og einnig þeirra, er hafa sérþekkingu í svona málum. Niðurstaðan er brtt. þær, er hér liggja frammi á þskj. 216.
Ég hygg, að flestir séu sammála um, að á einhvern hátt sé hægt að ráða bót á því ástandi, er hér ríkir í sambandi við hið svokallaða „ástand“, en ég sé ekki, að brtt. n. torveldi á nokkurn hátt framkvæmdir nauðsynlegra ráðstafana. Hið eina, sem máli skiptir, er, að n. hefur fært aldurstakmarkið niður í 18 ára aldur.
Ég vildi gjarnan, að hæstv. forsrh. gæti hlustað á það, sem ég er að segja. (Forsrh.: Ég er því miður tímabundinn, því að ég hef boðað fund kl. 3 og þarf nauðsynlega að mæta þar.) Ég skal ekki vera langorður. Ég vildi, að hæstv. forsrh. svaraði því, hvað líður þeim undirbúningi, sem gera átti, til þess að l. yrðu framkvæmanleg, og hvar þau hæli séu, sem barnaverndarnefnd og sakadómari geta komið fyrir fólki, er þarf að hafa afskipti af. Einn af aðalmönnum barnaverndarnefndar Reykjavíkur átti við mig ýtarlegt tal um þetta mál í gærkvöldi, og hann sagði, að það, sem torveldaði þeim starfið, væri, að þá vantaði hæli og því um líkt. Brbl. um þetta efni voru sett 9. des. s.l., og ríkisstj. hefði því haft tíma til að gera eitthvað í málinu. — Þessi maður sagði, að barnaverndarnefnd væri í vandræðum bæði með pilta og stúlkur, sem eigi væri hægt að koma fyrir á einkaheimilum. (Forsrh.: Öllu þessu fólki hefur verið komið fyrir.) Jæja, ég held, að þær heimildir, sem ég hef, séu alveg áreiðanlegar. Það er mikill vandi að búa til l., sem bæta úr þessu ástandi, og ég tel hörkuna ekki aðalatriðið, heldur að taka málið sem mýkstum tökum, þó þannig, að almenningur meti það, sem verið er að gera. Till. okkar í n. miða að því að draga úr ýmsu, sem ekki er vel séð af mörgum. Ég játa, að ef til vill hafi okkur sézt yfir ýmis atriði, sem hægt er að gera, og við tökum með þökkum á móti öllum brtt., sem miða til bóta. Ég held, að ekki eigi við að lýsa ástandinu sérstaklega nákvæmlega, því að flestum mun það kunnugt, en það er erfitt að lækna þetta mein, sem er með þjóðinni og að miklu leyti var til orðið áður en setuliðið kom hingað. Það tekur tíma að laga það og verður ekki gert með einu pennastriki frá Alþ.