21.05.1942
Efri deild: 63. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 945 í B-deild Alþingistíðinda. (2476)

38. mál, stjórnarskipunarlög

*Atvmrh. (Magnús Jónsson):

Ég stend upp af kurteisi við hv. 1. þm. Eyf., því að hann spurði mig, hvort ég teldi hugsanlegt, að Framsfl. gæti fengið stöðvunarvald við kosningar með aðeins 25% af kjósendum landsins. Já, ég tel það mögulegt, því að það þarf ekki annað en tilflutning atkvæða í þau kjördæmi, sem Framsfl. vantar lítið til þess að koma að mónnum, t.d. ef atkv. Framsfl. í Rvík væru flutt í eitthvert slíkt kjördæmi. Viðvíkjandi brtt. hv. l. þm. Eyf. get ég sagt það, að ég mundi vera á móti henni, af því að hún væri skerðing á rétti sveitanna, eins og hæstv. forsrh. drap á. Hvert kjördæmi hefur rétt til þess að kjósa þm. innan sinna vébanda og einnig rétt til þess að fara út fyrir kjördæmið í vali sínu.

Það væri mjög æskilegt, að Alþ. gæti lokið störfum fyrir hvítasunnu, því að kosningar þurfa helzt að fara fram ekki síðar en, fyrsta sunnudag í júlí.