21.05.1942
Efri deild: 63. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 945 í B-deild Alþingistíðinda. (2477)
38. mál, stjórnarskipunarlög
*Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson):
Hæstv. forsrh. reifði málið frá sjónarmiði síns flokks og kallaði það gott mál. Hann minntist einnig á sjálfstæðismálið svonefnda, og vil ég gera grein fyrir minni skoðun þar. — Ég tel , heppilegt að flýta skilnaðinum við Danmörku, því að á þessum tímum er ekki hættuláust að draga það mál von úr viti. Ég hef áður bent á, að skilnaðarmálinu eigi að halda í ákveðinni línu, þannig að forseti taki alveg við valdi konungsins, og yrði það sniðið eftir bandarískri fyrirmynd. Breyt. í þessa átt hafa þegar verið undirbúnar af hæfustu lögfræðingum landsins, og þess vegna ekkert því til fyrirstöðu að hefjast handa.
Svo að ég víki að þessu máli, sem er hér á dagskrá, breyt. á stjórnskipunarl. eða kjördæmanálinu, þá er gaman í því sambandi að minnast ummæla hæstv. atvmrh., 1. þm. Reykv., á Alþ. árið 1928. Þar stendur svo í Alþingistíðindunum, bls. 2958, í ræðu, sem hæstv. ráðh. flutti þá og er yfirlesin:
„Ég skal nú ekki fara neitt út í útreikninga, en það þarf ekki annað en benda á það, að listakosning um tvo menn er ekki annað en vitleysa:
Það er gaman að lesa þetta, og ég vona, að hæstv. ráðh. komist brátt á þessa skoðun aftur. Talsmaður Alþfl. í Nd., hv. þm. V. Ísf., sagði, að hv. 1. þm. Rang. hefði sagt á þingi 1333, að Framsfl. vildi hlutfallskosningu í tvímenningskjördæmunum. En það upplýstist, að hv. 1. þm. Rang. var ekki á þingi 1933 sökum veikinda, svo að hv. þm. V.-Ísf. varð að biðja fyrirgefningar, því að hér var nefnilega um ósannindi að ræða. Þetta sýnir þau vandræði, sem þessir menn eru í, með rök fyrir sínu máli. Ég læt svo úttalað um þetta mál við þessa umr.