22.05.1942
Efri deild: 64. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 956 í B-deild Alþingistíðinda. (2492)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég var búinn að biðja um orðið áður og ætlaði að afturkalla það, en satt að segja þóttu mér það svo mikil brjóstheilindi hjá hv. 1. þm. N.- M., þegar hann segir, að hér á þingi sitji enginn með svokölluðu siðferðisvottorði nema hann, að ég varð að standa hér upp. Hvaða siðferðisvottorð hafði hann hér á sumarþinginu á bak við sig? Eitt skeyti með nokkrum kjósendum og eitt skeyti austur á fjörðum með nokkrum nöfnum á, og í von um, að hann fengi meira, sagðist hann sitja á þingi og greiða atkvæði. Ég verð að segja það, að ef menn haga sér svona, að ganga um og nudda sér utan í hverja herkerlingu og fá það skriflegt, að þeir megi sitja á þingi, þá veit ég ekki, hverjir brjóta kosningalögin, ef það eru ekki slíkir menn, með kosningaáróðri sínum, því að það er bannað að safna of mörgum meðmælendum. Þetta er ekkert annað en að safna meðmælendum og búa sig undir næstu kosningar. Það eru fáir, sem vilja leggja sig niður við það að ganga til kjósenda, og það í svartasta skammdeginu, í slíkum erindum. Hv. þm. sagði, að grenjaskytturnar lægju í þm. Ég held það megi segja um þm., að hann liggi á sama hátt í kerlingunum austur þar ! — Það er ekki ég, sem segi þetta. Þetta eru bara hans eigin orð.

Það gengur alveg fram af mér, hvernig hv. þm. getur talað. Hann segir, að sér blöskri að horfa á þessa lögleysu, sem hér sé framkvæmd af öðrum þm. Ég verð að segja, að menn með hans aðferðir eiga sem minnst að tala um aðra, þegar þeir búa í svona glerhúsi, og því kannske brothættu. Þeir ættu sem minnst að tala um menn, sem ekkert gera annað af sér en að ganga að sínum störfum, sem þeir hafa fulla heimild til og skyldan býður þeim.

Um þessa stjskrbreyt., sem hér er til umr., ætla ég ekki að tala, en ég varð að segja þetta, því að mér ofbauð svo tal þessa hv. þm.