06.05.1942
Efri deild: 50. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 961 í B-deild Alþingistíðinda. (2508)
Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.
*Erlendur Þorsteinsson:
Herra forseti 1 Það er sjálfsagt rétt hjá hæstv. forsrh., að það sé ekki þingvenja að svara fyrirspurnum svona, en þetta er þó venja, sem hefur skapazt. Mér er kunnugt um það, að þessi hæstv. ráðh. hefur oft staðið í löngum umr., bæði í d. og sameinuðu þingi, um ýmis dægurmál, sem fram hafa komið fyrirspurnir um til ríkisstj. Hæstv. forsrh. er þó kunnugt, að þegar fram eru bornar hér fyrirspurnir, þá eru þær ekki teknar á dagskrá nema með leyfi ráðh:, og ef hann vill hliðra sér hjá að svara, þá getur hann alveg eins gert það, hvort sem fyrirspurnin er skrifleg eða munnleg.
Ég get ekki hugsað mér, að það þurfi mikil gögn í þessu máli. Hér er aðeins um það spurt, hvort þessi samningur hafi verið gerður eða ekki, og þá með hvaða heimild, og einnig, hvernið frá honum hafi verið gengið. Mér er ekki grunlaust um, að í þennan samning hafi verið sett ákvæði, sem alþjóð á ekki að fá að vita um, og þess vegna vilji hæstv. ráðh. hliðra sér hjá að svara. En hvað sem því líður, þá ber hæstv. forsrh. að standa fyrir gerðum sinum hér á Alþingi og upplýsa það, sem ríkisstj. gerir, og þá sérstaklega, ef hún gerir það, sem telja má, að hún hafi hæpnar heimildir fyrir, eins og ég geri ráð fyrir, að sé um þetta mál.