21.04.1942
Neðri deild: 39. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 965 í B-deild Alþingistíðinda. (2521)
Afgreiðsla mála úr nefndum
*Haraldur Guðmundsson:
Út af ummælum hv. 1. þm. Rang. vil ég segja, að honum væri nær að líta í eigin barm. Mér er ekki kunnugt um að tveimur pundum undanteknum, að skort hafi á, að ég hafi mætt til funda í fjhn. Hitt er ekki mín sök, þó að form n. gleymi stundum að boða fundi eða gleymi að koma þar sjálfur eða stjórni fundum þannig, að helmingur þeirra lendi í meiningarlausu kjaftæði. Ef hv. þm. meinar, að ég sé ekki starfhæfur í n., á hann að kvarta við hæstv. forseta í staðinn fyrir að koma með slíkar árásir sem þessa. Ég hef hingað til setið í n. til jafns við þennan hv. þm., og án þess að raupa, þá hygg ég, að ég teljist fallkomlega jafnhæfur honum til starfa í hvaða n. sem er.