08.05.1942
Sameinað þing: 13. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í D-deild Alþingistíðinda. (2564)
97. mál, bókasafn menntaskólans í Reykjavík
Pálmi Hannesson:
Halda mætti, að um þessa tillögu væri gott eitt að segja af minni hálfu, ef undirstaða hennar væri góður hugur og ekki fjandskapur. En sá fjandskapur kemur allt of bert fram í till. og í framsögu hv. flm. Árið 1940, tólf árum eftir að hann útskrifast úr skólanum, fer hann að kynna sér safn hans og ástand þess. Mér er ókunnugt, hvaða heimildir hann hefur haft til þess. Víst er, að hann lét ekki svo lítið að biðja mig um leyfi til að skoða safnið. Hann ræðst á meðferð þess. Ég hef leiðrétt mjög svipaðar rangfærslur og hans í blaði einu, að gefnu tilefni þar, en hann virðist ekki hafa gert sér málið ljósara eftir en áður. Ég verð því að endurtaka að nokkru þær leiðréttingar. Þegar ég tók við starfi mínu við skólann, var safnið í niðurníðslu. Þá var hv. flm. nýkominn úr skólanum og virðist ekkert hafa haft við ástand safnsins að athuga og ekkert fyrr en núna síðustu árin, er það var komið undir mína stjórn. Þá voru bækurnar geymdar í opnum hillum í óupphituðu húsi og röku, og voru svo rykfallnar, að undrum sætti. Spjaldskrá var ekki nothæf, því að fjölda bóka vantaði. Forráðamenn Landsbókasafnsins höfðu tvívegis látið greipar sópa um þetta safn, og á fleiri vegu hafði það misst bækur. Árið 1930 fór fram aðgerð á skólanum. Þá var sett miðstöðvarhitun í hús bókasafnsins, lestrarsalur gerður á aðalhæð og bækur settar í lokaða skápa við veggi, en aðrar bækur, sem minni þýðingu höfðu, fluttar upp á loftið. Nothæf spjaldskrá var gerð, og mátti nú telja bókasafnið sæmilega komið, úr því sem orðið var. Leið þannig fram til 1937. Þá sýndi það sig, að nemendur vildu heldur annars staðar vera, þóttu stólarnir ekki nógu góðir, og þegar ekki var hægt að fá þeim betra að sitja á, varð að loka lestrarsalnum. Eftir 1937 var mjög lítið um húsið gengið, og leið svo fram til þess, að stríðið hófst. — Haustið 1939 komu þau orð frá ríkisstj., að spara skyldi kol sem mest. Eftir það var farið að hita húsið aðeins tvisvar í viku. Þess hefur þó verið gætt síðan, að raki myndaðist ekki í húsinu, og ef bækurnar eru til muna skemmdar af raka, er það eldri skemmd en frá árunum, síðan miðstöð var þarna sett. Ég vildi óska þess sérstaklega, að sú þingnefnd, sem fær væntanlega málið til meðferðar, komi í safnið og sjái með eigin augum, hvernig þar er um gengið, og dæmi fyrst að því búnu milli mín og hv. flm. Hann talaði um, að mjög dýr verk væru í safninu. Ég veit ekki, hvort hann hefur tekið upp skrá um það sjálfur, þegar hann skoðaði safnið í óleyfi, eða hvort hann hefur fengið þessa vitneskju frá þeim skólabróður sínum, sem þá hafði aðgang að því. (JGM: Væri það nokkuð saknæmt?). Öll upptalning hans bar vott um viðleitni til að koma því inn hjá mönnum, að fjársjóði, sem skólinn hefði átt, væri hann nú að missa fyrir vanrækslu mína. Hitt gat hann ekki um, af ásettu ráði, að tvisvar, eftir að bókagjöfin frá Oxford barst safninu, hefur það verið rænt. Í fyrra skiptið, ég held 1910, voru að sögn fjöldamargir kassar fluttir þaðan á Landsbókasafnið, og hefur varla verið valið af verri endanum. En ekki var skilið eftir svo mikið sem skrá yfir þær bækur, sem teknar voru. Í síðara skiptið, um 1926, fékk Lbs. mikið af bókum til þess að koma bindatölu sinni upp í 100 þúsund. Þegar búið var að taka safnið til notkunar 1930, bauð ég guðfræðideild háskólans að fá mikið af bókum, sem hún kynni fremur að hafa gagn af en skólinn, á hebresku og öðrum málum. En ég fékk þau svör, að guðfræðideildin hefði ekkert rúm fyrir þessar bækur og gæti ekki tekið við þeim. Árið 1939 bað ég Boga Ólafsson yfirkennara að ganga um safnið og taka til athugunar, hvað vantaði í samstæð verk, o.fl., sem bæta þyrfti. Í reglugerð er stoð fyrir því að fela einhverjum kennaranna að líta eftir safninu. Bogi hefur ekki látið nokkurt orð falla um það, að bækurnar væru myglaðar og lægju undir skemmdum, og munu menn þá skilja, að varla séu mikil brögð að. skemmdunum.
Þáltill. þessi fer fram á að láta nú þegar skrásetja safnið og gera það sem þarf, til þess, að það verði opnað til afnota. Ef ástand safnsins er slíkt, sem hv. flm. virðist telja, hví þá eigi að bjarga því fyrst úr þeim stað, þar sem það er, og skrásetja ekki fyrr en hægt er að taka það til afnota í fullkomnari húsakynnum? Eða hversu skynsamlegt mundi að setjast niður og skrásetja safnið innan um það dót, sem nú verður að geyma í húsinu? Enginn getur vitað, hvað yfir dynur, og e.t.v. væri brýnni þörf á að flytja safnið úr bænum, þar sem alkunnugt er, að menntaskólahúsið hefur verið herstjórnarsetur, sem sprengjum mundi verða beint að í loftárásum. — Árið 1940 fékk ég bréf frá kennslumálaráðh., þar sem hann fór þess á leit, að tiltekinn maður fengi að star fa að skrásetningu safnsins. Þá var vitað, að skólinn var á förum úr þessu húsi, og í annan stað byggði ég á því, að Bogi Ólafsson, sem er manna bókfróðastur, mundi gera þær athuganir, sem þyrfti, til þess að unnt yrði að bæta í meinlegustu skörð safnsins. Þess vegna taldi ég rétt að ætla það ekki öðrum manni, sem mér vitanlega er ekkert sérstaklega bókfróður, þótt vel kunni að vera lærður að öðru leyti. Atburðina eftir hernám skólahússins þarf ekki að rekja, enda er þáltill. ekki af þeim sprottin.
Síðast hefur það gerzt, að rektor háskólans ritaði kennslumálaráðherra bréf og bauðst til að losa menntaskólann við safnið. Ekki hafði hann svo mikið við að skrifa mér um það, heldur frétti ég það utan að mér frá einum nemanda mínum. Bréf þetta hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Þar sem svo virðist af blaðaummælum, að bókasafn hins almenna menntaskóla Reykjavíkur sé í mikilli vanhirðu og liggi undir skemmdum, en safnið hins vegar mjög verðmætt, leyfi ég mér í umboði háskólaráðs að bjóðast til þess að taka við safninu til varðveizlu í háskólabyggingunni. — Virðingarfyllst — Alexander Jóhannesson.“
Ég vil spyrja hv. þm. fyrst af öllu, hvort svona bréf sé sæmandi forstöðumanni stofnunar, sem kennir sig við vísindi. Rektor háskólans hefur ekki við annað að styðjast en blaðaummæli um safnið. Og ekki er svo vel, að hann geti haft nafn skólans rétt. Hann heitir: Menntaskólinn í Reykjavík. Háskólanum væri réttara að skrásetja sitt eigið safn, áður en hann seilist í þetta. Honum væri nær að halda við jarðeignum sínum, svo að þær leggist ekki í eyði, en að ásælast þetta. Hinum virðulega forstöðumanni þeirrar stofnunar væri sæmra að sjá til þess, að birtir yrðu reikningarnir yfir kostnað við hið mikla og dýra háskólahús. Það hefur ekki enn verið hægt af einhverjum ástæðum, en sjálfsagt mætti nokkuð á þeim reikningum græða. Það lægi honum nær að sinna sínum eigin málum til hlítar, og elta skyldi hann varlega mínar geitur. Þetta mál er upp tekið til alls annar sem að bjarga safninu, — eins og raunar sést á því, hvernig ræða frsm. stangast við tillgr. sjálfa. Ég tel, að þetta mál allt sé hafið sem eins konar ofsókn gegn mér (JGM: Alrangt. Fullkominn misskilningur.). Ég vil mega treysta því, að þingnefnd sú, sem fær málið til meðferðar, gangi ekki rektor og kennara skólans fyrir bí, þegar þar að kemur. Ég er reiðubúinn að sýna henni allt, sem óskað er, og að því búnu getum við rætt um, hvort það, sem aflaga fer, stafi af trassaskap eða einhverjum öðrum ástæðum.