22.04.1942
Sameinað þing: 7. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 310 í D-deild Alþingistíðinda. (2569)
99. mál, brú yfir Skjálfandafljót
Flm. (Jónas Jónsson):
Þessi brú hefur um nokkur ár staðið á brúalögum, og er mikill áhugi fyrir því þar í sveit, að hún verði smíðuð. Í grg. þeirri, sem fylgir, er skýrt frá allri aðstöðu, og þar sem mál þetta er orðið hv. þm. svo kunnugt, sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um það, en geri ráð fyrir, að málinu verði vísað til fjvn. eins og fleiri slíkum erindum.