20.05.1942
Sameinað þing: 18. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í D-deild Alþingistíðinda. (2630)
132. mál, sauðfjársjúkdómar
Þorsteinn Þorsteinsson:
Ég skal verða stuttorður um brtt. mína. Hún er þannig til orðin, að ég taldi rétt og sjálfsagt, að það kæmi fram, að því fé, er geyma á hér til seinni tíma, skyldi varið til þess að koma fótum undir bændur, er hafa búið við mikinn fjármissi, en ekki eins og ákveðið er í aðaltill., að allur kostnaður við pestirnar skuli greiðast af þessu fé, því að þá hrykki það skammt. Sem dæmi má nefna, að kostnaður við pestirnar árið 1941 nam um 1.8 millj. kr. Féð yrði því fljótt að þverra, ef greiða ætti hann allan. Því vildi ég, að skýrt kæmi fram, að 3 millj. kr. gengju til að hjálpa þeim, er verst hafa orðið úti, svo að þeir mættu koma upp sem þróttmestum fjárstofni gegn mæðiveikinni.
Í öðru lagi yrði fénu varið til styrktar, ef fjárskipti kæmu til greina. Það hafa nú þegar farið fram ein slík fjárskipti, er ég veit um, og kostuðu hvorki meira né minna en 1/4 úr milljón.
Að öðru leyti gæti komið til mála, að til fjárins yrði að grípa áður en styrjöldinni er lokið, þar eð enginn veit, hve lengi hún getur staðið. Ég hef því slegið þann varnagla, að féð yrði ekki bundið fram yfir styrjaldarlok.
Ég býst nú við, að þessu máli verði vísað til fjvn., og þar sem ég á sæti þar, get ég látið þetta nægja nú og lýk því máli mínu.