10.03.1942
Neðri deild: 16. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í C-deild Alþingistíðinda. (297)
30. mál, jöfnunarsjóður aflahluta
*Flm. (Sigurður Kristjánsson):
Þetta mál er kunnugt hér í d. frá fyrri tímum, en ég skal þó rifja upp tildrög þess. Þeirra er að leita til erfiðleikaára útgerðarinnar fyrir stríð. Þá var svo komið, að útgerðartími skipanna var stuttur, og lá oft við, að sum skipanna yrðu ekki gerð út. Var því engin leið, að á smærri skipum gætu sjómenn fleytt fram lífinu af aflahlutnum einum. Það hefur alltaf verið svo, að afkoman hefur verið misjöfn eftir árferði. Aflaleysisár og ár óhagstæðra markaða fara með útgerðina.
Vandræði útgerðarinnar komust á það stig, og tekjuskortur þeirra, sem þar höfðu af lífsviðurværi sitt, varð svo mikill, að sjómenn fóru að krefjast þess, að tryggðir væru aflahlutir fyrir hverja vertíð, en þá kom í ljós, að enginn gat veitt þá tryggingu. Útgerðarmenn voru orðnir snauðir og ekki færir um að standa við slíkar skuldbindingar, og var ekki til annarra að leita en lánsstofnananna, en þær töldu þetta ekki eðlilegan rekstrarkostnað skipanna. Af öllu þessu leiddi verkföll í sumum verstöðvum, sem leiddu bjargarskort yfir sveitarfélögin. Þetta var ástæðan til þess, að frv. kom hér fram 1939, sem ég var flm. að. Frv. var tekið sæmilega hér í hv. d. og afgreitt til Ed. með nokkrum breyt. En tími vannst ekki til að koma því lengra. Ég flutti frv. aftur lítið breytt — en að vísu nokkuð breytt — á aðalþ. 1940. Þær breyt., sem þá höfðu verið gerðar, voru í samræmi við vilja þessarar hv. d. árið áður. Málið var þá nokkuð lengi í d., og lauk því með því, að sjútvn., sem var sammála um, að málið væri nauðsynjamál, kom sér þó ekki saman um, hvernig skyldi afgreiða það á því þ. Meiri hl. vildi láta afgreiða það með rökst. dagskrá, svo hljóðandi: „Þar sem nauðsynlegt verður að teljast, að komið verði á hlutatryggingum á íslenzkum skipum. sem gerð eru út með hlutaráðningu, en mál þetta þarf rækilegan undirbúning og athugun, áður en löggjöf verður um það sett, ályktar d. að fela ríkisstj. að undirbúa, með aðstoð tryggingarfróðra manna, frv. til l. um hlutatryggingar fyrir næsta Alþ. og tekur fyrir næsta mál á, dagskrá.“
Næsta reglulegt Alþ. var svo háð í fyrra, 1941, en ekkert frv. kom frá ríkisstj. Við, sem höfðum látið í ljós áhuga á þessu máli, urðum of seinir til að koma fram með frv. Ég hélt, að ríkisstj. mundi gera eitthvað í þá átt, en sú von brást.
Útgerðarmenn og sjómenn víðs vegar um land hafa látið í ljós óskir sínar um, að löggjöf fengist um þetta efni. Margar fiskideildir hafa lýst vonbrigðum sínum yfir því, að á þessum velgengnisárum útgerðarinnar skuli ekki notað tækifærið til að safna í tryggingarsjóði til erfiðleikaáranna, sem allir búast við, að séu framundan.
Við hv. þm. Ak. höfum talið, að ekki mætti lengra líða á þetta þ., áður en málið kæmi fram, og höfum við því nú flutt það frv., er hér liggur fyrir. Hv. þm. Ak. hefur tjáð mér, að fiskideildir fyrir norðan hafi mikinn áhuga á þessu máli og að honum hafi verið falið að sjá um, að frv. kæmi fram á þessu þ. Ég hef og fengið sams konar áskoranir og taldi mér því skylt að beita mér fyrir málinu: Loks hefur fiskiþingið samþ., að ég held einróma, áskorun um löggjöf í þessa átt.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa framsöguna lengri. Ég geri ráð fyrir, að verði skiptar skoðanir um formsatriði; en um kjarna málsins vænti ég, að menn geti orðið sammála. Ég óska, að frv. verði vísað til sjútvn. að umr. lokinni.