10.03.1942
Neðri deild: 16. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í C-deild Alþingistíðinda. (298)
30. mál, jöfnunarsjóður aflahluta
Skúli Guðmundsson:
Áður en frv. þessu er vísað til n., vil ég segja nokkur orð.
Eins og getur í grg. frv., hafa tvisvar áður verið fluttar hér till. um hlutatryggingar. Fyrir 2 árum var frv. í þá átt afgreitt með rökst. dagskrá, þar sem skorað var á ríkisstj. að undirbúa með aðstoð tryggingarfróðra manna frv. um þetta efni, en ríkisstj. hefur látið hjá líða að verða við þessu, og enn hafa engar till. borizt frá henni. Ég lýsi undrun minni yfir því, að hæstv. atvmrh. skuli ekki hafa sinnt óskum þ. í þessa átt.
Fyrst þegar frv. var flutt, 1939, hlaut það samþ. hér, en málinu varð ekki lokið í Ed. Ég vil benda á það til athugunar fyrir sjútvn., að í Nd. voru gerðar nokkrar breyt., og var aðalbreyt. sú, að tryggingarnar voru gerðar frjálsar, en í þessu frv., sem nú liggur fyrir, er gert ráð fyrir skyldutryggingum. Í frv., eins og það var afgreitt til Ed. 1939, var tekið fram í 1. gr., að „í bæjar- eða sveitarfélagi, þar sem útgerð skipa er rekin á hlutaskiptagrundvelli (þ.e. skipshöfnin tekur kaup sitt í hluta af afla), skal stofna jöfnunarsjóð aflahluta, ef meiri hluti þeirra manna eða fyrirtækja, sem gera út skip með hlutaráðningu á þeim stað, og meiri hluti sjómanna á þeim skipum gera samþykkt þar um.“ Var það álit meiri hl. þessarar hv. d., að skynsamlegra væri að hafa tryggingarnar frjálsar, og var til þess ætlazt, eins og frv. var afgreitt héðan, að stofna sérstakan sjóð fyrir hvert bæjar- eða sveitarfélag, en ekki sameiginlegan sjóð fyrir land allt.
Ég tel heppilegast, að tryggingarnar séu frjálsar, og vil benda á, að þó að ekki væri um einn, heldur fleiri sjóði að ræða, gætu þeir allir verið undir einni stjórn, ef tryggara þætti um ávöxtun fjárins. Ég vildi láta þetta sjónarmið koma fram nú, og vænti ég, að sjútvn. kynni sér rækilega afgreiðslu málsins hér í d. á þ. 1939.
Árið 1940 voru samþ. l. um hlutaútgerðarfélög. Í þeim l. eru fyrirmæli um hlutatryggingarsjóði, sem hafa sama hlutverk og hér er um að ræða. Ef samkomulag verður um almenn l. um hlutatryggingar, þá teldi ég eðillegt, að þar sem ríkið legði fram fé til þeirra, legði það einnig fé til þessara trygginga. Ég vil óska, að n. athugi þau l. um leið og geri till. um breytingar á þeim til samræmis við það, sem ákveðið verður um frv. það, sem hér liggur fyrir.