12.05.1942
Neðri deild: 56. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í C-deild Alþingistíðinda. (319)

11. mál, sauðfjársjúkdómar

*Frsm. minni hl. (Jón Pálmason):

Þetta mál er nú búið að liggja æði lengi fyrir Alþingi og hefur þegar valdið nokkrum deilum utan þings. Bæði í sauðfjársjúkdómanefnd og á búnaðarþingi hefur það verið rætt, svo að dögum skiptir. Meiri hluti landbúnaðarn. byggir skoðun sína algerlega á afstöðu sauðfjársjúkdómanefndar og meiri hluta búnaðarþings, því að þar var meiri hl. og minni hl. Þetta er ekkert undarlegt, en ég tel, að þegar um mikið mál er að ræða, verði Alþingi að fara sínar eigin götur, án tillits til þess, hvort þessi eða hin stofnunin er með á nótunum eða ekki. Þess vegna lít ég svo á, að þeim rökum, sem fram hafa komið frá sauðfjársjúkdómanefnd og búnaðarþingi, beri að taka með varúð. Það er auk þess ekki svo undarlegt, að þessum breytingum sé ekki vel tekið á þessum stöðum, þar sem ætlazt er til að kippt sé fótunum undan því kerfi, sem sauðfjársjúkdómanefnd hefur sett sér og viljað starfa eftir. Auk þess ber að taka það til greina, að sauðfjársjúkdómanefnd og bú naðarþing hafa hina sömu stefnu í sauðfjársjúkdómamálum, nefnilega að keppa beri að því, fyrr en síðar, að skera niður allt fé á þessum svæðum og aðliggjandi sveitum. Miðað við þessa stefnu er það eðlilegt, að þeir, sem vilja fella, vilji ekki stefna að því að koma upp nýjum stofni.

En tildrög þess, að ég flutti þetta frv. ásamt hv. þm. Dal., eru þau meðal annars, að aðalfundur búnaðarsambands A.-Húnv., þar sem þessi mál voru rædd., samþ. með öllum greiddum atkv. að skora á Alþingi að breyta þessum l., og það er það, sem hér er farið fram á. Þau mótmæli, sem fram komu í nál. meiri hl. og í framsöguræðu hv. þm. Mýr., er þannig vaxin, að þeim er að nokkru leyti svarað í nál. minni hl. á þskj. 243, en ég skal þá fara fáeinum orðum um þá aðalþætti málsins, sem hér um ræðir. Til þess að vekja athygli á því, á hvaða rökum þessi mótmæli eru byggð, vil ég benda á það, að þessir menn vilja leggja niður styrk, sem greiddur hefur verið undanfarin ár til vegaframkvæmda. jarðabóta og nýrra umbóta.

Nú er það svo, að til þessara hluta hefur verið varið miklu fé, en ég tel mjög óeðlilegt, að það sé verið að greiða í tilefni af mæðiveiki og garnaveiki, vegna þess að þær fjárhæðir, sem til þess eru látnar, eiga að fara eftir hinum venjulegu leiðum. Ég veit, að hv. fjvn. hefur á undanförnum árum tekið verulegt tillit. til þess, hvort þannig væri ástatt í viðkomandi héruðum, að þörf væri meiri atvinnu en ella vegna þessa fjárdauða. Ég hef leyft mér að bjóðast til þess, ef samkomulag hefði getað um það orðið, að fella niður vaxtastyrk af slíku fé, ef mönnum skyldi vaxa í augum þær fjárhæðir, sem frv. gerir ráð fyrir, að menn fái úr ríkissjóði til uppeldisstyrks samkv. því frv., sem hér liggur fyrir. Ég hef ekki séð ástæðu til þess að leggja fram till. uni að leggja þann styrk niður vegna þess, að ekki er útlit fyrir, að samkomulag geti orðið um afgreiðslu málsins. En vaxtastyrkurinn er svo útlits nú orðið, að það eru í mörgum tilfellum mjög vel efnaðir menn, sem fá mest af honum, ef þeir hafa stóran rekstur og miklar skuldir, því að það fer ekki alltaf eftir því, hvað efnahagur manna er góður, hvort þeir skulda mikið eða lítið. En í mörgum tilfellum fá fátækir menn engan vaxtastyrk, af því að þeir skulda ekki nema litlar upphæðir. Hvort það sé rétt að breyta þessu bótafé, er höfuðágreiningsefni þessa máls, og það er þannig vaxið, að ágreiningur er um það, hvort það á að verr; á valdi Alþ., hvernig þessu fé er úthlutað, eða hvort það á að vera á valdi einnar nefndar. á undanförnum árum hefur meira og minna verið farið inn á það svið, að vald Alþ. hefur verið flutt í hendur einstakra nefnda, sem með það hafa að gera að úthluta peningum og afgreiða málefni, sem beinlínis heyrðu áður undir Alþ. sjálft. Ég tel þessar aðferðir ekki til fyrirmyndar og tel miklu réttara að hafa þá aðferð, sem ég fer fram á, að það sé ákveðið í l., hvernig þessu fé skuli úthlutað.

Að það sé rétt, sem hv. frsm. meiri h). talaði um, að með þessu fengju þeir meiri bætur, sem efnaminni eru, er mjög fjarri sanni, því að það er alveg öfugt. Hér er farið fram á að hafa sama og enga takmörkun á því fé, sem megi veita sem uppeldisframlag til manna, og ég hef boðið meiri til. n. að færa það hámark niður, ef n. hefði getað gengið inn á regluna að öðru leyti. að þetta sé stórt spor aftur á strik, geta þeir menn sagt, sem vilja halda í það, að skipta þessu í fjölda marga smástyrki, en leggja ekki aðaláherzlu á það að hjálpa mönnum til þess að koma fénu upp aftur. En það er grundvallaratriði þessa frv. að koma því til leiðar, að ungir menn í sveitum landsins fái til þess betri aðstöðu en verið hefur að stunda búskap og koma á stofn sauðfjárrækt. Það er mesti misskilningur, að þessir ungu menn hafi ekki orðið fyrir neinu tjóni af völdum veikinnar, þó að ekki hafi drepizt fé hjá þeim. Í sumum sveitum hefur það verið þannig, að þessir ungu menn hafa ekki alið upp neitt fé á undanförnum árum, og það er þess vegna stórkostlegt tjón, sem beinlínis og óbeinlínis stafar af þeim faraldri, sem hér um ræðir.

Um önnur atriði skal ég ekki fara mörgum orðum, en é g vil geta þess, að í nál. mínu er talað um það, hvernig aðstaðan er fyrir menn, eins og t. d. horfir í mínu héraði, A.-Húnavatnssýslu, að ala upp fé og fjölga því. Það virðist vera aðalmótstaðan hjá sauðfjársjúkdómanefnd og meiri hl. landbn. gegn þessu máli, að það sé hætt við því, að þetta verði misnotað á þann hátt, að fénu muni fjölga of fljótt og farið yrði að drepa veturgamlar gimbrar. Þetta er fjarstæða, sem ekki kemur til greina, eins og enn horfir. Í mínu héraði fórst af völdum mæðiveiki á. s.l. ári um 6 þús. fjár, og tjón, sem áætlað er af völdum hennar, var nokkuð á fimmta hundrað þús. kr. Þær bætur, sem komið hafa, eru því ekki nema brot af því mikla tjóni. sem þarna var um að ræða.

Þá var hv. frsm. meiri hl. að tala um það, að það hefðu verið gerðar nokkrar umbætur á reglum sauðfjársjúkdóman. með því að færa gjaldið úr 20% niður í 15%, og þannig hefði skapazt aðstaða fyrir uppvaxandi menn, að því er þetta snertir, og það skal játað — og því má slá föstu —, að þær breyt. hafa orðið nokkuð til bóta og spor í rétta átt. Ég skal þó til sönnunar því, að þessar breyt. á reglum sauðfjársjúkdóman. koma ekki að fullnægjandi notum, að því er snertir unga menn, skýra frá því, hvernig útkoman yrði, ef farið yrði eftir því, sem lagt er til í nál. meiri hl.

Ég hef tekið saman yfirlit yfir framlög til 47 ungra manna í mínu héraði, og niðurstaðan af því er sú, að þessir 47 menn hafa sett á á s.l. ári allt að 20 lömb, og þeir hafa fengið uppeldisframlag að meðaltali á 6 lömb hver. Það eru einmitt þessir menn, sem ég er að fara fram á, að fái uppeldisframlag á öll sín lömb. Og ég býst við því, að ef þeir fengju það, þá mundi það verða þeim hvöt til þess að fjölga fénu. Með því, að það sé svo farið með þessa menn, sem verið hefur eftir reglum sauðfjársjúkdóman. og lagt er til í nál. meiri hl., verður óánægjan svo mikil, að hún veldur því, að þessir menn flytja burt úr sveitunum.

Mér þótti rétt að draga þetta fram, svo að það komi greinilega fram, hvað það er, sem fyrir okkur flm. frv. vakir.

Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri að sinni, en ég vil þó segja það, að mér þykir það furðu gegna, að sumir þeir menn, sem ekki hafa bingað til getað fallizt á, að það væri rétt framtíðarstefna á þessu sviði að skera niður fé á öllum veikindasvæðum, skuli ekki vilja koma í veg fyrir það, að áframhaldandi vonleysi grípi um sig í okkar sauðfjárrækt á þeim sviðum, sem verst er farið.