09.03.1942
Efri deild: 12. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í C-deild Alþingistíðinda. (324)

26. mál, Háskóli Íslands

„Magnús Jónsson:

Ég tafðist á leiðinni hingað og heyrði ekki nema örlítið af ræðu hv. flm. Það er ekki heldur tilgangur minn að tefja fyrir nálinu með löngum umr. nú eða bera fram mikil andmæli gegn því, en vil þó lýsa minni skoðun á málinu.

Ég vil þá fyrst segja, og það án alls hroka, að mér finnst óheppilegt, að menn séu að bera fram frv. um breyt. á stofnun eins og háskólanum án þess að hafa, að því er maður gæti haldið, nein sérstök skilyrði til að geta lagt þar til málanna það, sem heppilegt væri. Við skulum athuga, hvernig stofnun þetta er. Hér er starfandi hópur manna, sem hafa þetta fyrir ævistarf. Þessir menn mynda með sér sameiginlegt ráð, þar sem reynt er, fyrst á fundum í deildum og síðan í háskólaráðinu, að finna það fyrirkomulag á hverju og einu, sem hentugast má teljast. Það er tvímælalaust, að Alþ. hefur vald yfir þessari stofnun, en mér finnst, að það ætti að fara varlega í að gera á henni breyt., sem koma ekki frá stofnuninni sjálfri í grundvallaratriðunum. Nú nýlega eru um garð gengnar þónokkrar breyt. á fyrirkomulagi háskólans, og fyrir stuttu síðan hafa verið haldnir margir fundir til þess að ganga frá reglugerð háskólans í samræmi við þær breyt., sem orðið hafa, og það er ekkert áhlaupaverk. Það er búið að vinna að því mánuðum saman á mörgum fundum að fá það fyrirkomulag, sem menn að fenginni reynslu hafa talið heppilegast. Ég vil taka til samanburðar aðra stofnun, sem ég held, að sé þó ekki eins flókin, Búnaðarfélag Íslands. Ég teldi enga furðu, þó að þessi hv. þm. teldi varhugavert, ef ég færi að bera fram frv. um grundvallarbreyt. á ráðunautastörfum við Búnaðarfélag Íslands, og held ég þó, að ég, sem er gamall sveitamaður, hafi fullt eins mikið vit á málum sveitanna og þessi hv. þm. á fyrirkomulagi Háskóla Íslands. Ég geri ráð fyrir, að hv. þm. mundi segja sem svo: „Við skulum vita, hvað búnaðarfélagið segir um þessa tilhögun.“ Það er t. d. álitamál, hvort betra er að hafa hagfræðideildina alveg sérstaka eða hafa hana í sambandi við lagadeildina, eins og verið hefur. Og ég veit ekki, hvað háskólanum hefði átt að ganga til þess annað en það, að þeir, sem. bezt finna til þess, álíta, að haganlegast sé, að þessar deildir séu sameinaðar. Það kann að vera, að síðar meir verði hagfræðideildin sérstök deild, en nú er ekkert, sem bendir til þess. Deildir háskólans eru mjög sérstakar, hver fyrir sig. Ég hygg samt, að ég sé öðrum deildum háskólans kunnugri en menn, sem eru utan við skólann, en mér dettur þó ekki í hug að stinga upp á grundvallarbreyt. þar á móti þeim deildum sjálfum, af því að þeir kennarar, sem þar starfa, geta bezt sagt um, hvað þar er heppilegast. Í háskólanum er aldrei gerð nein breyt., sem varðar skipulagið, nema málinu sé fyrst vísað til viðkomandi deildar, sem segir álit sitt um málið, en háskólaráðið er nokkurs konar eftirlitsn., sem lítur eftir, hvort álit deildarinnar sé rökstutt.

Einn hv. þm. ætlaði á þinginu í fyrra að gera mig að fífli út af því, að ég hefði ekki vit á kennslu í lagadeild. Þá mætti alveg eins tala um, að forstöðukona kvennaskóla hefði ekki vit á kennslu í stýrimannaskóla. Þó held ég, að það standi nær mér en mönnum, sem standa alveg fyrir utan háskólann.

Þessi breyt. er þó ekki nema fyrirkomulagsatriði, en síðari till. er um algerða grundvallarbreyt. Maður getur sagt, að það séu tvær lífsskoðanir, sem mætast þar. Það er gersamleg stefnubreyt. í málum háskólans, þó að hv. flm. fari þar varlega í sakirnar, þar sem hann tekur aðeins tvær deildir, aðra ófædda. Hér á að leggja út á þá braut, að háskólinn verði að nokkru leyti ekki stúdentaskóli, heldur fyrir hvern og einn, sem stenzt þar inntökupróf. Þetta er algerð grundvallarbreyt., því að háskólinn hefur verið ekkert annað en stúdentaskóli. Það þýðir ekkert að segja, að hann sé æðsta menntastofnun landsins, það getur vel verið, að það sé einhver annar skóli, t.d. alþýðuskóli. Hann er stúdentaskóli og ekkert annað. Reynslan er sú, að það er ekli hörgull á mönnum í háskólann. Það er aðeins guðfræðideildin, sem hefur ekki verið meira sótt en nauðsynlegt er. Það hefur aldrei verið hörgull á mönnum í þær stöður, ef þær hafa verið álitlegar að öðru leyti. Af því að nú hafa heldur verið bætt kjör presta, sækja fleiri um þessa deild en áður, og nú eru þar fleiri en búast má við, að fái stöður innan kirkjunnar, en ástæðan til þess, að stundum hafa ekki fengizt menn í þessar stöður, er sú, við hve dæmalaus kjör þessir embættismenn hafa haft að búa. Stúdentafjöldinn er mesta vandamál innan deildanna, svo að jafnvel hafa verið uppi till. um harkalegar ráðstafanir, svo að það myndaðist ekki lærðra manna öreigalýður. Læknar og lögfræðingar hafa verið miklu fleiri en þörf hefur verið fyrir. Lögfræðingarnir hafa nokkuð spjarað sig, því að lögfræðileg þekking er góð við mörg störf í þjóðfélaginu, en gallinn er sá, hvað mikill tími fer í þetta, því að út úr þessu námi koma menn rosknir, en hefðu getað með þriggja ára verzlunarnámi öðlazt þekkingu, sem hefði verið alveg eins góð fyrir þeirra starf. Læknarnir aftur á móti hafa verið svo margir, að þeir verða að finna nýja sjúkdóma til þess að geta lifað. Þegar þeir hafa lokið háskólanáminu, nema þeir einhverja sérgrein og eru orðnir rosknir menn, þegar þeir hafa öðlazt möguleika til þess að geta lifað. Í Ameríku er læknaplágan verri en nokkur engisprettuplága, og hefur legið við, að hafi orðið að setja sterk l. vegna þessara erfiðleika. En þó að þessu sé sleppt, þá er víst, að það er fjarri því, að hörgull sé á stúdentum í háskólann, svo að það hefur verið talað um að hindra menn frá að komast inn í hann. Með þessari till. er því stigið spor í þveröfuga átt. Ég skal ekki segja, hvort þörf er á mörgum hagfræðingum. Það er sjálfsagt ágætt, að mikið sé til af þeim, en mér virðist nú vera að spretta upp sægur af hagfræðingum, þó að ekki sé farið að tosa mönnum, sem ekki eru stúdentar, upp í hagfræðideild.

Spurningin er þessi: Eigum við að hafa háskólann áfram sem stúdentaskóla? Ég er þeirrar skoðunar, að við eigum að gera það, en ég vil stuðla að því, að mönnum úr verzlunarskólum sé séð fyrir framhaldsmenntun, en þeir, sem geta ekki eða vilja ekki leggja á sig þá fyrirhöfn að verða stúdentar, þeir verði að sjá sér fyrir framhaldsmenntun annars staðar en við háskóla. Ég sé ekki heldur, hvað er unnið við þetta. Hvers vegna má ekki halda háskólanum sem stúdentaskóla? Það er kannske í nafni jafnréttishugsjónarinnar, því að þeir verði svo montnir, ef þeir verða stúdentar, en ég held, að þeir séu nú ekki skoðaðir neinn aðall. Það er öðru nær. Ég vil benda á eitt atriði, sem getur verið varasamt, ef menn meta einhvers stúdentsnám, en það er það, að með þessu mundu menn fara að stytta sér leið. og reyna að taka bara próf inn í háskólann í staðinn fyrir að taka bekk fyrir bekk upp í gegnum menntaskólann, en það teldi ég stórt spor aftur á bak, því ð þótt menn geti orðið góðir starfsmenn, þó að þeir séu ekki stúdentar, þá er ég þó þeirrar trúar, að stúdentsmenntun sé staðgóð og því ekki rétt að setja þá ekki hærra en þá,. sem koma og geta slampazt gegn um próf.

Í sambandi við þessi próf kemur margt til greina, og ég er ákaflega hræddur um, að þetta gæti orðið til þess, að menn reyndu að stytta sér leið, almennt talað.

Ég ætla ekki að fara að halda upp löngum umr., en vildi aðeins gera grein fyrir minni skoðun á málinu. Ég sé annars enga ástæðu til þess að hindra það, að málið fari til 2. umr. og nefndar.