09.03.1942
Efri deild: 12. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í C-deild Alþingistíðinda. (325)

26. mál, Háskóli Íslands

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Þar sem sérstaklega var vitnað til orða, sem ég hafði látið falla í samþandi við annað frv., og jafntframt þar sem ég fer með þessi mál, vil ég segja fáein orð.

Ég lít svo á, að það sé meira en vafasamt að fara að breyta fyrirkomulagi háskólans, svo að segja á hverju ári, með frv., sem fram koma hér á Alþ., án þess að þau séu sérstaklega undirbúin. En þetta er ekki vegna þess, að ég álíti, að það sé ekki þörf á að breyta ýmsu viðkomandi Háskóla Íslands, heldur þvert á móti vegna þess, að ég álít, að það muni þurfa að breyta fyrirkomulagi háskólans, áður en langt líður, og það þarf alveg sérstakan undirbúning. Það er auðsætt, að háskólinn, eins og hann er nú, fullnægir ekki þeim kröfum, sem þjóðin þarf að gera til hans, og nægir í því sambandi að benda á það eitt, að við vitum ekki enn, hvernig á að fara að, þegar tæknar svo að segja verða að finna upp sérfræðingasjúkdóma til þess að hafa eitthvað að gera hér í Rvík, og það er farið að tala um það hér, vegna þess, hvað læknarnir eru margir.

Það mætti nú segja, að nægilegt væri fyrir þessa sérfræðinga að gera í öðrum kaupstöðum og úti um landið, en þangað fæst bara enginn maður. Það kann að vera samfara annarri óáran í mannfólkinu, en þetta er nú svona. Þetta er atriði, sem skólarnir þurfa að lagfæra.

Í Ameríku hefur þessari læknaplágu verið illa við engisprettur. Það eru fundin upp alls konar efni til þess að gera fólkið hálfvittaust út af alls konar sjúkdómadellu. En ég hef enga trú á því, að fyrirkomulag háskólans verði leiðrétt með frv. eins og þessu, án þess að skólinn verði gersamlega endurskoðaður. Það er í sjálfu sér alveg sama að segja um alla þá tugi og hundruð fresta, sem útskrifast frá hákólanum. Þeir eru sendir út um landið og bent á jarðir, sem ríkið á yfir að ráða. Svo sitja þeir þar og geta aldrei komizt í samband við það fólk, sem býr í sveitunum. Það er aðeins bent á þetta sem dæmi. Það er vitanlega gleðilegt að hafa nægilega mikið af verkfræðikandídötum og guðfræðingum, erl það er áreiðanlegt af þeirri reynslu, sem undanfarið hefur fengizt af ýmsum prestlærðum mönnum, að það þarf að breyta stórkostlega til með menntun þeirra, ef vel á að fara. Þetta er annað dæmið.

Ég hef ekki farið inn á ýmis önnur atriði, t.d. eins og fjármálastjórn háskólans, og álít ég ekki rétt að gera það, vegna þess að þetta mál er á undirbúnings- og rannsóknarstigi. Og það þar í mikillar og gerhugullar athugunar við, áður en byrjað er á því að kveða upp úrskurð um það, hvernig skólinn á að vera.

Þetta er ekki sagt til þess að deila á kennara skólans, heldur til þess að benda á það, að fyrirkomulag skólans er orðið í ósamræmi við það, sem hinn nýi tími krefst, og verður sennilega enn þá meir, þegar árin liða. Ég álít, að það skipti í sjálfu sér ekki miklu máli, hvort deildirnar eru 5 eða 6. En í aðalatriðum er ég samhjálp þeirri skoðun, að eins og nú standa sakir, sé ekki óeðlilegt, að deildirnar séu 5, en ekki 6. Fullkomin hagfræðideild kemur að sjálfsögðu til athugunar, en ekki mun rétt að stofna til hagfræðideildar, eins og nú standa sakir, vegna þess að það er nauðsynlegt að fá deildina viðurkennda sem undirbúningsdeild undir hagfræðinám erlendis. Það er eitt af því marga, sem þarf athugunar, og gæti komið til mála að hafa fleiri undirbúningsdeildir í háskólanum, þar sem stúdentar fengju leyfi til þess að stunda nám og búa sig undir framhaldsnám erlendis.

Það hefur verið ákaflega áberandi, að þeir stúdentar, sem stundað hafa nám við erlenda háskóla í 6 ár, hafa, eftir að þeir koma heim, rekið sig á það, að hér heima eru allt aðrir og ger ólíkir staðhættir. Það er deilt nokkuð um það, hvort það eigi að vera eingöngu stúdentar, sem hafa leyfi til þess að stunda nám við háskólann, og hvort það eigi að leyfa próf samkv. frv. því, sem hér liggur fyrir. Ég verð að segja það, að ég sé ekki, að á þessu sé neinn reginmunur. Við vitum það allir, að til skamms tíma hefur verið leyft, að menn færu þá leið, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., því að það hefur verið þannig, að mönnum hefur verið leyft að stunda nám við háskólann eftir nám í 4. bekk menntaskólans. Þessi próf, sem hér um ræðir, eru svo þung, að menn leggja yfirleitt ekki út í það að taka þau, nema þeir séu sérstaklega vel undirbúnir. Mér finnst þess vegna ekkert á móti því, að sérstaklega vel gefnum og duglegum mönnum gefist kostur á því að stytta sér leið á þennan hátt.

En það, sem mér finnst þó aðalatriðið í þessum málum, er það, að það þarf að taka kennslukerfi skólans yfirleitt til rækilegrar athugunar á næstunni, en þeir tímar, sem nú eru, eru ekki vel til þess fallnir vegna þess, að hvernig sem breytt verður fyrirkomulagi skólanna, er það víst, að breytingar hljóta að verða miklar á stjórnskipun okkar og skólakerfi eftir að styrjöldinni lýkur.