09.03.1942
Efri deild: 12. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í C-deild Alþingistíðinda. (328)
26. mál, Háskóli Íslands
Páll Zóphóníasson:
Það er nú í fyrsta lagi upplýst, að hv. guðfræðiprófessornum finnst óþarfi að hafa sérstakt inntökupróf. En ég hefði haldið, að það væru fyrst og fremst mennirnir, sem eiga að kenna á viðkomandi stað, hvar sem er, sem væru allra manna dómbærastir um, hvað nemandinn þyrfti að hafa til að bera, þegar hann kemur inn í skólann, af undirstöðuþekkingu til þess að geta fylgzt með náminu. Og mér finnst það vera vantraust á kennara háskólans í fyllsta máta, ef það er virkilega meining guðfræðiprófessorsins (MJ), að aðrir menn, þ.e.a.s. kennarar í menntaskólanum, séu betur færir að ákveða, hvað nemandi þurfi að hafa af undirbúningsmenntun til þess að geta haft fullt gagn af háskólanámi. Ég held fram, að þeir, sem eigi að kenna, — hvað sem er —, séu helzt dómbærir um, hvaða undirbúningsþekkingar verður að krefjast, til þess að námið komi að notum, en ekki einhverjir aðrir, sem fyrir utan standa. Þess vegna vil ég setja þetta inntökupróf í samband við háskólann, en ekki menntaskólann. Sömuleiðis hef ég hugsað, að það væru viss atriði í stúdentsmenntuninni, sem við förum ekki nánar í, sem gæti verið vafamál, hvort ástæða væri að heimta inntökupróf í, þegar önnur atriði væru til, sem ástæða væri til að heimta, sérstaklega í hagfræðideild. Þessi skoðun kom líka fram á síðasta aðalþingi. Og ég hef ekki heyrt því mótmælt með rökum, að það þurfi aðra undirbúningsmenntun til þess að hafa fullt gagn af viðskiptafræðinámi en stúdentspróf. Og það vakti fyrir mér, að þetta kæmi fram í reglugerð, sem sett yrði af mönnum, sem ættu að kenna við deildina, en ekki af einhverjum öðrum mönnum, sem koma aldrei nærri þeirri kennslu og vita því ekki, hvers þyrfti að krefjast. Ég leit svo á, að aðalatriðið væri, að kennararnir réðu, hvers krafizt væri.
Kennarinn í guðfræðideildinni sagði, að þeir, sem sér væru kærastir, væru þessir trúhneigðu kennarar, sem brotizt hafa í að ná stúdentsprófi. Mér þykir ekki nema vænt um að heyra þetta. Og það styrkir mig í þeirri skoðun, að þessum mönnum eigi að gera sem greiðast að komast þarna inn. Og ef það skyldi nú vera svo, að eins gott væri að fá menn inn í hagfræðideild með ofurlítið öðruvísi námi til undirbúnings en hefur tíðkazt um stúdenta, þá býst ég við, að við ættum að geta orðið sammála um, að þeir eigi að komast inn.
Af því að guðfræðiprófessorinn hefur farið svo víða, leyfist mér líka að fylgja honum eitthvað á leið. Hann sagði m.a., að hann mæti miklu meira langan námsferil en gott próf. (MJ: Námsferil, en ekki fyllirísferil.) Þessa aðstöðu hefur hann sýnt. Það var til tólf ára námsferill, reynt að taka próf, en tókst ekki. Þetta veitti aðgang að prófessorsembætti. Átta ára. námsferill og ekkert próf hefur gefið aðgang að annari stöðu hér í Reykjavík. Sjö ára námsferill með engu prófi hefur gert enn einn mann mjög hátt upp skrifaðan sem ágætan menntamann, af því að hann tók ekki próf. Það vita allir, af hverju þessir menn eru átta ár, tólf ár, eða hvað það nú er, að þessu „námi“. Ég leyfi mér að segja það, að þeir eru að slæpast á fylliríi, og ég stend við það. En ef námsferillinn er nógu langur, þá er það gott. Þá hefur hv.1. þm. Reykv. sýnt, að hann metur manninn góðan fyrir hvaða stöðu, sem er, þótt prófið vanti og ekki hafi verið skrifaður nema helmingur af þeirri ritgerð, sem átti að skrifa.