25.02.1942
Neðri deild: 5. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 62 í C-deild Alþingistíðinda. (345)
4. mál, frestun bæjarstjórnarkosninganna í Reykjavík
*Finnur Jónsson:
Í umr. um þetta mál hefur borið sérstaklega mikið á því, að hæstv. ríkisstj. hefur verið frekar óvær í sætum. Og ég geri ráð fyrir, að taka megi þetta þannig, að hún muni hafa frekar veikan málstað verja og heldur vonda samvizku. Enda er það svo, að þær grg., sem fluttar voru um frv. um brbl. í útvarpið, voru alveg einsdæmi sem slíkar. Það er að vísu alsiða, að grg. fylgi frv., en ég held, að aldrei nokkurn tíma hafi heyrzt aðrar eins grg., þar sem bornar voru á ýmsa menn sakir, sem þeir höfðu ekki neina möguleika til þess að bera af sér. T.d. sagði hæstv. fjmrh. um frv. samverkamann sinn í ríkisstj., Stefán Jóh. Stefánsson, að hann mundi hafa gefið ríkisstj. og Alþingi upplýsingar mót betri vitund. Enn fremur var það borið á Jón Blöndal hagfræðing, að hann hafi átt að skrifa mjög hvatvíslegar greinar í Alþbl. á móti því, að menn fengju fulla dýrtíðaruppbót. Til þess að reyna að sanna þetta á Jón Blöndal, hafði Sjálfstfl. látið prenta eftir honum ýmis ummæli úr Alþbl. En hvergi í þessum ummælum er hægt að finna nokkurn stað fyrir þessum útburði. Á Alþýðuprentsmiðjuna hefur verið borið sviksamlegt athæfi og meðal annars sagt, að forstjóri hennar hafi ekki viljað skrifa undir yfirlýsingu sams konar og aðrir prentsmiðjueigendur, um það að skuldbinda sig til að semja ekki sér við prentara. Nú er það svo um þá yfirlýsingu, sem hér um ræðir, að hún er um ýmislegt annað en sektir. Það er ákaflega algengt í vinnudeilum, að ekki er tekið fyrstu kröfum, sem fram koma frá verkamönnum. Það er reynt að semja. Og hvort sem menn eru hlynntir verkamönnum eða ekki, þá er algengt, að menn taka ekki fyrstu kröfum. Alþýðuprentsmiðjan vildi ekki taka fyrstu kröfu prentaranna, en þegar svo er haldið áfram samningum, er henni boðið að skrifa undir þessa yfirlýsingu, sem hæstv. fjmrh. hefur gert að umtalsefni. En þessi yfirlýsing var meðal annars um það að taka af Alþýðuprentsmiðjunni rétt, sem hún hefur samkvæmt samningi milli Hins íslenzka prentarafélags og prentsmiðjueigenda. Þar er meðal annars sagt, með leyfi hæstv. forseta: „Meðan samningar eru ekki komnir á við Hið íslenzka prentarafélag um kaup og kjör prentara og annarra samningsbundinna meðlima þess félags, er mér óheimilt að starfrækja prentsmiðjuna með öðru starfsfólki en nemendum og öðru ófélagsbundnu fólki.“ Nú hefur Alþýðuprentsmiðjan eftir öðrum samningi leyfi til þess að starfrækja prentsmiðjuna á þann hátt að prenta Alþýðublaðið og það annað, sem prenta þurfti fyrir Alþfl., þó að til verkfalls kæmi. Ef því forstjóri Alþýðuprentsmiðjunnar hefði skrifað undir þessa yfirlýsingu, þá var hann um leið búinn að afsala sér þeim rétti. Það hefur verið reynt að vekja tortryggni með því að segja, að Alþýðuprentsmiðjan hafi ekki viljað skrifa undir sektarákvæðið. En eins og menn heyra af því, sem hér var lesið upp, þá er þessi yfirlýsing, sem farið var fram á, að Alþýðuprentsmiðjan skrifaði undir, um miklu meira en sektarákvæði, meðal annars um að afsala sér rétti, sem hún hafði með sérstökum samningi milli prentsmiðjueigenda og prentarafélagsins.
Nú hefur því verið haldið fram, að þetta haf í verið undirbúin vélabrögð af hálfu Alþfl. En sannleikurinn er sá, að þetta ákvæði mun vera allgamalt og ekki tekið upp í fyrsta skipti í þennan samning 1941. Og ástæðan fyrir því, að prentarar hafa óskað eftir því að fá þetta ákvæði inn í samninginn við prentsmiðjueigendur og þeir fallizt á, er vitanlega sú, að ef til verkfalls kemur, gátu þeir prentsmiðjueigendur, sem vitanlegt var, að fyrst og fremst voru andstæðir prenturum, fengið blöð sín prentuð með prentsmiðjustjóra og lærlingum, og jafnvel fengið verkfallsbrjóta til að prenta blöðin. Slík leið er vitanlega ófær fyrir blað, sem stendur muð prenturum í kaupdeilu. Og prentarar hafa þess vegna talið sér það sem sjálfsagða öryggisráðstöfun, að þeir gætu komið sínum málum á framfæri, ef til verkfalls kæmi, að hafa eitthvað til þess að vega á móti því, sem andstæðingar þeirra gátu komið fram með verkfallsbrjótum.
Ég sé ástæðu til að taka þetta fram, af því að þetta atriði hefur komið fram hvað eftir annað í umr.
Ég vík nú að því, sem hæstv. ráðh. sagði um fyrrv. stjórnarbróður sinn, að hann hefði talað gegn betri vitund. Hæstv. ráðh. kvað hann hafa sagt, að engin hreyfing væri hjá félögum Alþýðusambandsins til grunnkaupshækkunar. En nú hefur Stefán Jóhann ekki sagt þetta. Hann sagði ekki, að það væri „engin hreyfing“ til grunnkaupshækkunar, ekki heldur að engin sérstök hreyfing til grunnkaupshækkunar ætti sér stað hjá Alþýðusambandinu á fundi, sem ég var á ásamt fleiri mönnum með ríkisstj., ég held 17. okt. s.l., heldur að það væri „engin almenn hreyfing hjá félögum sambandsins til grunnkaupshækkunar. (Fjmrh.: Má ég taka fram í? Mér heyrðist þm. Seyðf. lesa: „engin sérstök hreyfing“, og þess vegna hafði ég þetta orðalag.) Þetta var á fundinum; sem við báðir vorum á í stjórnarráðinu, og orðin féllu þannig: „engin almenn hreyfing til grunnkaupshækkunar“. (Fjmrh.: Það var nú engin fundargerð skrifuð þar.) Það er rétt, en við erum það eftirtektarsamir, að okkur er vorkunnarlaust að muna þetta. Að minnsta kosti er vorkunnarlaust að gera upp á milli þess, hvort það er “engin sérstök hreyfing“, eða hvort sagt er, að það sé „engin hreyfing“ til grunnkaupshækkunar. Það að fella svo úr orðið „sérstök“ efur hæstv. fjmrh. tilefni til þess að segja um fyrrv. stjórnarbróður sinn í ríkisstj., að hann hafi farið með ummæli mót betri vitund.
Það hefur nú verið rökfært í hv. d., að hvorki dýrtíðaruppbót né hækkun grunnkaups hafi hrundið af stað dýrtíðinni í landinu, heldur sé hún af allt öðrum orsökum. Mér skilst enginn hafa reynt að færa fram gagnrök. Enda var það svo í síðasta stríði, að grunnkaupsbreyting varð mjög lítil hér á landi, og dýrtíðaruppbótin hækkaði aldrei fyrr en á eftir dýrtíðinni.
Meðan ekki var greidd full dýrtíðaruppbót, hækkaði dýrtíðin mjög verulega, sem vitanl. kemur af því, að ríkisstj. hafði ekki verið þess umkomin að gera neinar þær ráðstafanir, er dugðu, til þess að halda í hemilinn á dýrtíðinni. Þær heimildir, sem ríkisstj. hafði fengið í hendur frá hæstv. Alþ., hefur hún alls ekki notað, og þrátt fyrir gefnar yfirlýsingar hafa ráðh. Sjálfstfl. og Framsfl. látið undir höfuð leggjast að nota þessar heimildir til þess að halda í hemilinn á dýrtíðinni. Ef einhverjir aðrir hefðu gengið framhjá því, sem þeim var upp á lagt að gera, á sama hátt og ráðh., þá er ég ekki í neinum vafa um það, að almenningur hefði sagt, að það væri sama og að svíkjast um að gera skyldu sína.
Ég ætla, að það hafi verið hæstv. fjmrh., sem gerði nokkurn samanburð á tilgangi þessa frv. og þeim ráðstöfunum, sem gerðar hafa verið á Norðurlöndum í þessum málum, og vitnaði hann til Staunings, Nygaardsvolds og Per Albin Hansons. Í þessu sambandi eru vitanlega aðrar ástæður ríkjandi annars staðar á Norðurlöndum heldur en hér. Utanríkisverzlun þessara landa er, eftir því seni sagt er, algerlega í kaldakoli, verzlunarjöfnuðurinn hefur þar verið óhagstæður síðan stríðið hófst, þess vegna gildir allt annað þan heldur en hér. Þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið erlendis til þess að halda niðri dýrtíðinni, eru líka allt aðrar en hér, eins og t.d. í Svíþjóð og Danmörku. Þar hefur verið reynt að halda vörunum í því verði, sem þær voru fyrir stríð, en hér hefur þetta gengið þannig, að fjmrh., sem hafði heimild til þess frá Alþ. síðan í júní í fyrra að gefa eftir tolla af nauðsynjavörum, hefur látið það undir höfuð leggjast. Flokksbróðir hans, hæstv. atvmrh., Ólafur Thors, sem hafði einnig heimild til þess að halda niðri farmgjöldum, hefur einnig látið undir höfuð leggjast að gera það. Hæstv. viðskmrh., Eysteinn Jónsson, sem hafði víðtækar heimildir til þess að hafa hemil á dýrtíðinni í landinu með því að hata eftirlit með verðlagi á erlendum vörum, hefur svo að segja gefið þetta laust, og hæstv. forsrh. hefur verið mjög duglegur að sjá um það, að landbúnaðarvörurnar hækkuðu alltaf á undan kaupgjaldinu og tilkostnaðinum við að afla þeirra. Árangurinn af þessu starfi ráðh. hefur svo orðið hin svo nefndu gerðardómsl., sem gefin hafa verið út og hér liggja nú fyrir þingið til umr. því hefur verið neitað af fjmrh., að það geti haft nokkur áhrif á úrslit kosninganna, þó að kosningum væri frestað með brbl., og ég held að því hafi ekki heldur verið haldið fram af flokksmönnum mínum, en hins vegar var það ákaflega hættulegt fordæmi, sem ríkisstj. var að fara inn á, að færa kosningadaginn til eftir geðþótta sínum. En eitthvað hefur Sjálfstfl. þótt mikið við liggja að færa til kosningadaginn eftir þeim upplýsingum, sem gefnar eru í blöðunum og á Alþ., að hann skyldi heita því að fara úr ríkisstj., ef kosningum yrði ekki frestað. Þó að hæstv. forsrh. sé ekki viðstaddur, get ég ekki komizt hjá því að víkja nokkrum orðum að ræðu hans. Hann talaði meðal annars um það, hvað óheilbrigð stefna Alþfl. hefði verið viðvíkjandi fækkun á mönnum í Bretavinnunni. Hæstv. forsrh. vildi láta líta svo út sem Alþfl. hefði haft til þessa máls allt aðra afstöðu á meðan hann var í ríkisstj. Mér þykir leiðinlegt, að hæstv. ráðh. skuli láta sér þessi orð um munn fara, af því að þau eru ósönn. Það vill svo til, að ég hef fyrir framan mig skjöl, sem sanna þetta að öllu leyti. Um þátttöku íslendinga í Bretavinnunni segir í bréfi frá Vinnumiðlunarskrifstofunni til viðskmrh., dags. J. kt. 1941, að í septemberlok séu 2644 verkamenn og 656 iðnaðarmnenn í Bretavinnu, eða samtals 3300 menn. Í n. þeirri, sem átti að athuga, hvaða tölu væri heppilegast að hafa í þessari vinnu, áttu sæti Steingrímur Steinþórsson, Jóhann Jósefsson, Kristínus Arndal, Jens Hólmgeirsson, Sigurður Bjarnason og Sigurjón Á. Ólafsson alþm. Þessi n. skilaði áliti dags. 26. nóv. 1941, og leggur það til undir lið 1, að til 1. febrúar séu 3 þús. manns í Bretavinnu, frá 1. febr. 1942 til 1. marz 2200, frá 1. marz til 1. maí 1800. Sigurjón Á. Ólafsson skrifaði undir þessa till. með fyrirvara, og ég hef hér afrit af þessu bréfi með eigin hendi Sigurjóns. Þar segir svo: „Sigurjón Á. Ólafsson skrifar undir þetta álit með þeim fyrirvara, að hann telur, að á tímabilinu frá 1. febr. til 1. maí 1942 sé nægilegt að fækka um allt að 600 manns í Bretavinnu.“ Sigurjón Á. Ólafsson, fyrir hönd Alþfl., gerir ágreining hinn 26. nóv. 1941 út af þeirri miklu fækkun, sem n. lagði til, að framkvæmd yrði í Bretavinnu. Hann er þá þegar ósammála meðnm. sínum, sem flestallir munu vera úr öðrum stjórnmálaflokkum. Þetta gerist, eins og menn heyra á dags., löngu áður en Alþfl. fór úr stj., og það er þess vegna algerlega tilefnislaust og ósatt hjá hæstv. forsrh., að Alþfl. hafi aðra afstöðu nú til fækkunar í Bretavinnu heldur en hann hafði á meðan hann átti fulltrúa í ríkisstj. — Ég vænti þess, að þetta nægi til þess að sýna það og sanna, hvað þessi ásökun hæstv. forsrh. er algerlega tilefnislaus.
Ég vil þá næst koma að því, sem hæstv. forsrh. sagði um afstöðu ráðh. Alþfl. til útkomu Þjóðviljans. Hæstv. forsrh. sagði, að ráðh. Alþfl. hefði viljað banna útkomu Þjóðviljans með brbl. Ég held, að ef ráðh. hefði athugað þetta dálítið nánar, þá mundi hann hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að þessi fullyrðing getur ekki staðizt. Hæstv. forsrh. er lögfræðingur, og fyrrv. félmrh. er það líka, og þeim mundi hvorugum hafa dottið í hug, að hægt væri að banna útkomu blaða með brbl. Þó að það sé ekki mikið eftir af stjórnarskránni, þá er það þó eftir af henni, .að slíkt er ekki hægt nema að brjóta í bága við hana. Hæstv. forsrh. hlýtur því að misminna þetta, en það, sem hann mun reka minni til, er það, að Alþfl. hélt því fram, að það bæri nauðsyn til að athuga á hverjum tíma, hvað hægt væri að gera til þess að hefta starfsemi ofbeldisflokka í landinu, og Alþfl. óskaði eftir því, að athugað yrði, hvers konar löggjöf væri hægt að setja um þetta efni, og mun þetta hafa komizt svo langt, að n. var kosin til að athuga þetta. Þetta er vitanl. allt annað en að gefa út brbl. um það að banna einhver ákveðin blöð. Blöð er ekki hægt að banna samkv. stjórnarskránni. Það er aðeins hægt með dómsúrskurði, en ekki á annan veg. Viðvíkjandi útgáfu Þjóðviljans var á það bent nokkrum sinnum af hálfu Alþfl., á meðan Þjóðviljinn hélt uppi hatrömmum áróðri gegn brezka setuliðinu, að nauðsyn bæri til þess að athuga það mál, til þess að koma í veg fyrir, að Bretar gripu inn í íslenzkt réttarfar. Það sýndi sig því, miður, að þessi aðvörun Alþfl. var á fullum rökum byggð, því að Bretar gripu inn í þessi mál á mjög eftirminnilegan hátt, sem Alþ. seinna fann ástæðu til að mótmæla.
Hæstv. forsrh. komst þannig að orði, að Stefán Jóh. Stefánsson hefði með prentaraverkfallinu lokað öllum blöðum fyrir ríkisstj. — Þetta er alveg furðuleg staðhæfing, fyrst og fremst vegna þess, að ríkisstj. hafði það sjálf í hendi sér, hvort blöðin voru gefin út eða ekki. Það var ríkisstj. sjálf, sem lokaði blöðunum að svo miklu leyti sem þeim var lokað. Það var ríkisstj. sjálf, sem gaf út hin dæmalausu brbl. um hinn svokallaða gerðardóm í kaupgjalds- og verðlagsmálum, einmitt á þeim tíma, þegar helzt leit út fyrir, að samningar tækjust milli prentara og prentsmiðjueigenda. Það er óhætt að fullyrða það, að ef ríkisstj. hefði ekki sett þessi l., þá hefðu samningar löngu verið komnir á milli prentara og prentsmiðjueigenda, eins og hjá þeim félögum og atvinnurekendum, sem þessi l. náðu ekki sérstaklega yfir. Það hefur annars staðar á Norðurlöndum komið fyrir, að gefin hafa verið út l., en aldrei brbl., um staðfestingu á samkomulagi milli atvinnurekenda og verkamanna. Það mun hins vegar hvergi hafa átt sér stað í víðri veröld nema í Þýzkalandi, að ríkisstj. hafi gefið út brbl. til þess að koma í veg fyrir, að samkomulag yrði milli atvinnurekenda og verkamanna. Það mun þurfa að leita víða og ekki hægt að finna dæmi þess, nema ef til vill í Þýzkalandi. að ríkisstj. gefi út óþörf brbl. til þess að spilla því, að samkomulag geti tekizt milli atvinnurekenda og verkamanna. Ég vil minnast á þetta í þessu sambandi, af því að það voru þessi gerðardómsl., sem leiddu af sér brblfrv. það, sem hér er til um. um frestun bæjarstjórnarkosninga í Reykjavík.
Þessu næst vil ég fara út í það, að það hefur komið í ljós síðan bæjarstjórnarkosningunum í Reykjavík var frestað, að blöð Sjálfstfl. hefðu getað komið út nokkurn veginn jafnstór og Alþýðublaðið, ef sjálfstæðismenn hefðu kært sig um það. Hæstv. forsrh. hefur sagt, að þetta hafi verið gert til þess að tryggja flokkunum jafnan blaðakost, en það er nú svo, að blaðakostur Sjálfstfl. er þrefaldur á við blaðakost Alþfl., og ég verð að segja það, að þetta er í rauninni ágæt yfirlýsing um hinn veika málstað Sjálfstfl. Um aðrar aðfarir í sambandi við þessi brbl. gerist margt furðulegt. Má þar nefna hina svo kölluðu grg. ráðh. í útvarpinu. Það er farið fjórum sinnum í útvarpið og í rauninni fimm sinnum, ef með er talin nýársræða hæstv. forsrh. Þetta var af almenningi í öllum flokkum úti um land talinn mjög einhliða áróður af hálfu núv. ríkisstjórnar. Svo voru gefin út l. um frestun bæjarstjórnarkosninga í Reykjavík, af því að flokkarnir höfðu ekki jafna möguleika til þess að gefa út blöð, þó að það sýndi sig, að möguleikar voru til þess fyrir Sjálfstfl. að koma út nokkrum blaðakosti. Hins vegar máttu kosningar fara fram víðs vegar úti um landið, þar sem fólkið hafði aðeins hlustað á einhliða áróður hinna fjögurra ráðh. úr stj. í gegnum útvarpið, en Alþfl. gat alls ekki náð til. Þetta er það, sem mér skilst, að hæstv. forsrh. kalli drengilegar leikreglur. Ég fyrir mitt leyti skoða þetta sem ákaflega mikinn misskilning á því, sem kallazt geta drengilegar leikreglur. Ef það bar nauðsyn til að fresta kosningum í Reykjavík, því var þeim þá ekki einnig frestað í öðrum kauptúnum og bæjum, þar sem menn höfðu ekkert um þessi mál heyrt annað en einhliða áróður ríkisstj.?
Í svo kallaðri grg. fyrir þessu lagafrv. er ýmislegt, sem varla hefði getað staðizt í prentaðri grg. fyrir frv. á Alþ., hvað þá að fara með slíka í útvarpið, þar sem enginn er til andsvara. Ég tel þarna hafa verið stórkostlega misnotkun á svo nefndu hlutleysi útvarpsins, þar sem ráðizt var með persónulegum ásökunum á menn, er ekki gátu borið neina hönd fyrir höfuð sér. Og það er ákaflega fjarri því, að þetta sé skoðun mín eingöngu, heldur vil ég ítreka, að svo er litið á þetta um land allt af öllum flokkum. Það er að vísu svo, að ekki er til nein regla um afnot ríkisstj. af útvarpinu. En það hefur verið álitið hingað til, að ríkisstj. væri háð reglunum um ríkisútvarpið alveg eins og aðrir borgarar landsins. Ef á að skilja þessa svo nefndu grg. þannig, að svo sé ekki, þá virðist full nauðsyn á því, að Alþingi setji sérstaka löggjöf um afnot ríkisstj. af útvarpinu, full nauðsyn, ef ríkisstj. er skoðuð yfir það hafin, sem er talið almennt velsæmi gagnvart útvarpinu.
Nú hefur verið upplýst, að ýmsir samningar hafa farið fram í sambandi við þessa frestun bæjarstjórnarkosninganna. Og það er rétt að segja það hér, að þeir samningar, sem þegar hafa farið fram um þetta og birzt hafa, — að sumu leyti án vilja þeirra, sem samningana hafa gert —, hafa vakið nokkurn ugg um það, að samningar þessir séu víðtækari en enn þá hefur komið í ljós. Jafnvel eru ýmsir, sem óttast, að það hafi verið gerðir samningar ekki einasta um bráðabirgðafrestun bæjarstjórnarkosninga, heldur frestun þingkosninga um óákveðinn tíma, ef svo skyldi fara, að íhaldið biði afhroð við bæjarstjórnarkosningarnar. Ég vil á engan hátt leggja dóm á, hvort þessi uggur manna muni vera á rökum byggður. En ég vildi biðja hæstv. forseta að gera þá fyrirspurn mína fram við hæstv. forsrh., hvað hann hafi hugsað sér um alþingiskosningar á þessu vori. hað er vitanlegt, og var viðurkennt, þegar kosningafrestunin var framkvæmd, að grundvöllurinn undir kosningafrestuninni var samstarf þriggja flokka í ríkisstj. og það, að ekki yrði gengið á rétt einstakra stétta. alþfl. hefur lýst yfir — og hann hefur fylgi mikils þorra launastéttanna í landinu — að með svo nefndum gerðardómsl. hafi verið gengið freklega á rétt launastéttanna. Af þeim ástæðum hætti Stefán Jóh. Stefánsson samstarfi í ríkisstj., og þar með var af hans hálfu álitið, að grundvöllurinn undir kosningafrestuninni væri fallinn burt. Ef svo skyldi vera, að öðruvísi væri litið á þetta af hæstv. forsrh., og að þegar til kæmi brysti núverandi stjórnarflokka kjark til að leggja þessi ágreiningsmál undir úrskurð kjósenda, þá væri æskilegt að fá að vita það sem fyrst. Þess vegna vil ég bera þessa fyrirspurn fram. Ég harma það, að hæstv. forsrh. hefur ekki getað verið viðstaddur þessar umr.