25.02.1942
Neðri deild: 5. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í C-deild Alþingistíðinda. (346)
4. mál, frestun bæjarstjórnarkosninganna í Reykjavík
Skúli Guðmundsson:
Það er mikið um stríðsfréttir í blöðum okkar hér, og hefur því miður verið svo um langt skeið. Sem betur fer fyrir okkur Íslendinga hafa nú þessar stríðsfréttir til skamms tíma verið eingöngu frá útlöndum, því að ekki hafa orðið stórkostlegar hernaðaraðgerðir hér á landi. Þó brá svo við í gær, að í blaði kommúnista, sem gefið er út hér í bæ, var frásögn um styrjöld eina mikla, sem annar af ritstjórum þess blaðs taldi sig hafa átt þátt í hér í sölum þingsins. Það mun nú vera óvanalegt nokkuð, ef um mikla og harða styrjöld er að ræða, að annar aðilinn, sem hlut á að máli, hafi lítið eða ekki orðið þess var, að hann ætti í stríði. En svo er það hér. Því að mér er ekki kunnugt um, að ég hafi átt þátt í því handalögmáli, sem hv. 4. þm. Reykv. nefnir svo. Rétt er að vísu, að ég tók frá honum bréf, sem hann var að rýna í. En bréf þetta hafði hann fengið einhvern veginn með óheiðarlegu móti, það var ekki hans eign. Ég hafði meiri rétt til bréfsins. En hann vildi ná því aftur og krafsaði í mig í þeim tilgangi. Nú kom mér vitanlega aldrei í hug að standa í ryskingum við þennan hv. þm., hvorki hér né annars staðar, og því gerði ég það ekki. Þessu bréfi fleygði ég sundurrifnu á gólfið, eins og þeir sáu, sem viðstaddir voru. Og svo er nú sú saga á enda að öðru leyti en því, að þessi hv. þm., sessunautur minn, tíndi upp einhverjar bréfatætlur, sem á gólfinu lágu. Það er nú í sjálfu sér mjög skiljanlegt, að hv. 4. þm. Reykv. geri sér mat úr þessari geysihörðu baráttu sinni, bæði í ræðu og riti, því að þessi merkilegu viðskipti okkar eru vitanlega alveg viðeigandi umræðuefni fyrir hann og hans flokk. Flokkur, sem ekki hefur nýtileg málefni til að ræða og rita um, notar sér til viðurværis slík mál, eins og t.d. það, að bréf, sem einhver hefur stolið, er rifið í sundur. Ég vildi óska þess gjarnan, að þetta stórmerkilega bréfsmál endist þessum hv. þm. og flokki hans sem lengst, bæði blaðinu og einnig sem ræðuefni á þingfundum, enda hefur nú hv. þm. kvatt sér hljóðs, enn um þetta mikla mál. Eins og ég hef tekið fram, þá var þetta bréf illa fengið, og það segir einhvers staðar: „Illur fengur illa forgengur“. Og þó að hann eigi ekki rétt til bréfsins, er ég til með að lána honum betra eintak af þessu, til þess að hann geti birt fleiri kafla úr því ágæta bréfi. Ég held það sé t.d. einhver kafli um kommúnista, sem hann gæti tesið upp.
Þetta mál, sem fyrir liggur, kosningafrestunin í Reykjavík, hefur nú þegar verið mikið rætt á þreanur fundum, og sé ég ekki ástæðu til að tefja þingið með því að fara að ræða um það, því að það, sem ég kynni að segja um það, mundi aðallega verða endurtekning á ýmsu því, sem þegar hefur komið fram.