25.02.1942
Neðri deild: 5. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í C-deild Alþingistíðinda. (349)
4. mál, frestun bæjarstjórnarkosninganna í Reykjavík
*Forsrh. (Hermann Jónasson):
Mér er sagt, að bornar hafi verið brigður á tvö atriði, sem ég skýrði frá í gær. Ég vil þess vegna ekki láta hjá líða að leiðrétta þá missögn, sem fram hefur komið.
Fyrsta atriðið er, að ég hafi sagt, að ráðh. Alþfl., Stefán Jóh. Stefánsson, hafi ekki verið andvígur því, að stj. léti fækka um 800 menn í setuliðsvinnunni, og er það borið fram til sönnunar því, að þar sé ekki rétt frá skýrt, að Sigurjón Olafsson alþm. hafi gert ágreining í n., sem skipuð var til að athuga, hvað fækka ætti mikið, og hafi hann ekki viljað fækka nema um 600. Ég skýrði frá, að þegar stj. byrjaði að reikna tölu þeirra, sem væru í setuliðsvinnunni, hefði komið í ljós, að þótt fækkað hefði verið í janúar um 800 menn, þá væru samt fleiri í setuliðsvinnunni á eftir heldur en á sama tíma í fyrra. Þegar við héldum svo áfram að ræða þetta, kom okkur saman um, að miklu meiri byggingar væru nú en þá og yfirleitt meiri framkvæmdir af Íslendinga hálfu, sem þörfnuðust vinnuafls, en þó hafði málum verið þannig háttað í fyrra, að þótt tala verkamanna í setuliðsvinnunni væri þá lægri og þörf Íslendinga fyrir vinnukraft minni, voru samt veruleg vandræði þá fyrir Íslendinga að fá vinnuafl. M.a. voru veruleg vandræði að fá menn til að byggja bráðabirgðahús, sem reist voru fyrir búsnaðislaust fólk. Eftir þetta gerði ráðh. engar athugasemdir við, að fækkun ætti sér stað, því að það var ekki eins og verið væri að vísa þessum mönnum á atvinnuleysi, heldur aðeins að koma því til leiðar, að þeir Íslendingar. sem þyrftu vinnuafls með vegna framkvæmda, gætu fengið það. Það var því ekki undarlegt, þó að ráðh. teldi skyldu sína að vera ekki á móti þessu eftir þessa útreikninga, enda var hann það ekki. Mér kom ekki til hugar að bera það á mann, sem hefur unnið með okkur í stj. og mér hefur fallið jafnvel við og Stefán Jóh. Stefánsson; — að bera það á hann, sem hann hefur aldrei gert eða sagt. Það var líka skylda hans að vera þessu ekki mótfallinn. Þess vegna var hann ekki á móti því, en atkvgr. fór aldrei fram um þetta, heldur var það þegjandi samkomulag.
En þrátt fyrir það, að fækkað væri eitthvað lítils háttar í þessari vinnu, þá eru samt stórkostleg vandræði vegna fólksleysis, ekki aðeins í sveitum, heldur einnig við útgerðina, svo um t.d. í einni góðri verstöð hafa staðið 15 góðir bátar ónotaðir. Hvaða Íslendingur getur verið því fylgjandi, þegar nóg er að gera við íslenzka framleiðslu, að beita sér fyrir því, að íslenzkt vinnuafl sé notað í þágu setuliðsins og stefna þar með að því að draga saman og eyðileggja íslenzkt atvinnulíf til óbætanlegs tjóns fyrir atvinnulífið og íslenzkan verkalýð eftir styrjöldina?
Ég býst tæplega við, að það sé svo í hernumdum löndum, að þar séu menn og pólitískir flokkar, sem beita sér fyrir því að koma landsmönnum í setuliðsvinnu, þegar það verður til þess, að stórkostlegur samdráttur í atvinnulífinu á sér stað og sumum atvinnuvegunum liggur við hruni, og á ég þar við landbúnaðinn. Satt að segja skil ég ekki, að nokkur stjórnmálaflokkur vilji tengja nafn sitt við slíka starfsemi. Það væri því harla óviðeigandi að fara að bera sakir á ráðh., sem hér átti hlut að máli f.h. Alþfl. Vitanlega gerði hann það, sem sjálfsagt var, en ég tek þetta fram til þess að sýna fram á óheilindin í málflutningi blaða, þar sem deilt hefur verið á stj. fyrir að hafa reynt að koma því til leiðar, að fækkað yrði í setuliðsvinnunni, en hefur ekki tekizt það enn, af því að svo mikið tjón varð af ofviðrinu í vetur, að setuliðið taldi sig þurfa á miklum vinnukrafti að halda og því ekki getað staðið við samninginn.
Þá er þetta atriði í sambandi við útkomu Þjóðvíljans. Eins og hv. þm. muna, þá voru bornar fram hér á þingi aðfinnslur við stj. út af því, að þegar til þess kom, að þrír Íslendingar voru fluttir úr landi, aðallega fyrir ógætileg blaðaskrif, þá var því haldið fram, að stj. hefði átt að sjá svo um, að blaðið skrifaði ekki jafnógætilega í garð setuliðsins og raun hafði á orðið. Þá var upplýst á Alþ., að ágreiningur hefði orðið um þetta í stj. Það var skýrt frá því, að hæstv. félmrh. og ég hefðum viljað koma í veg fyrir þetta, og það voru þessar ráðstafanir. sem ég átti við, þegar ég skýrði frá, að margir hefðu talið rétt, þar á meðal ég, að hefta útgáfu Þjóðviljans eins og hann var skrifaður þá, vegna þess að ég taldi það hættulegt, en Sjálfstfl. hefði verið því andvígur. Hæstv. félmrh. aftur á móti vildi koma í veg fyrir þessi skrif, enda var það í samræmi við skrif Jónasar Guðmundssonar, að sjálfsagt væri að banna útkomu blaðsins. Hér var því ekki verið að skýra frá því, sem nýtt er í þessu sambandi. Það hefur verið sagt, að þetta hafi ekki verið hægt, af því að það væri ekki í samræmi við stjórnarskrána, en það voru skipaðir menn til að athuga þetta, og það er rétt, að álit þeirra var, að það væri ekki í samræmi við stjórnarskrána, heldur yrði að fara aðra teið, sem er í löggjöf annarra landa, sem hafa svo að segja sömu stjórnarskrá og við. Í prentfrelsisl. okkar er ákvæði, sem skipar svo fyrir, að blöð skuli send lögreglunni klukkutíma eftir að byrjað er að dreifa þeim út. Þetta er gamalt ákvaði og óvíða í l. annars staðar, en ef því er breytt þannig, að blöðin skuli send lögreglunni klukkutíma áður en byrjað er að dreifa þeim út, þá er ekki brotið á móti stjórnarskránni, því að sé álitið, að blaðið sé skaðlegt eða hættulegt fyrir þjóðfélagið, þá er látinn dómur ganga um það, En ef blað er stöðvað á þennan hátt dag eftir dag með þeim sektum, sem það hefur í för með sér, þá er það svo að segja alls staðar reynslan, þar sem slíkt hefur komið fyrir, að blaðið hefur hætt að koma út. Hér er því spurningin um aðferð, ekki aðgerðir.
Enn fremur hefur því verið haldið fram, sem er tæpast svaravert, að ráðgert hafi verið að fresta alþingiskosningunum, ef Sjálfstfl. gengi illa við bæjarstjórnarkosningarnar nú. Ég skal ekkert segja um, hvernig fylgi flokkarnir hafa nú. í þessum bæ, en mér finnst réttast fyrir Alþfl., þó að hann geri sér góðar vonir nú, að láta kosningarnar hjá líða, áður en hann lætur slík ummæli falla. Og svo mikið er víst, að það er svo fjarri því, að þetta hafi verið ákveðið, að á þetta hefur aldrei verið minnzt af Framsfl. eða Sjálfstfl., en þetta var eitt af því, sem Alþbl. dreifði út, meðan það var eitt um hituna, fyrst að fresta ætti bæjarstjórnarkosningum, hreppsnefndarkosningum og alþingiskosningum um land allt um óákveðinn tíma, og þegar svo kom aðeins takmörkuð frestun í Reykjavík, þá sagði það, að fresta ætti alþingiskosningunum, þó að ekkert yrði úr þessari ímynduðu allsherjarfrestun Bæjarstjórnarkosninga. Þetta eru því aðeins leifar af gamalli skröksögu, sem mér finnst alveg óþarfi að láta ganga aftur í þingsölunum.