12.05.1942
Neðri deild: 56. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í C-deild Alþingistíðinda. (501)

78. mál, ábyrgð fyrir lánum til rafveituframkvæmda

Frsm. (Skúli (Guðmundsson):

Eins og þetta frv. er nú, hefur það að geyma heimild fyrir ríkisstjórnina um að ábyrgjast lán til rafveituframkvæmda. sem nema 51/2 milljón króna. Nú er til viðbótor brtt. um ábyrgðarheimild sem nemur 4 milljónum kríma. eða eitthvað nálægt því. þannig að hér er um nokkuð stórt mál að ræða.

Nú tel ég það ekkert undarlegt. þótt slíkar tillögur komi fram. Það er alkunnugt. að undanfarin ár hefur ríkið gengið í ábyrgðir fyrir alla stærstu kaupstaði landsins fyrir slíkum lánum. Og er þá eðlilegt, að fram komi tilmæli um slíkan stuðning bæði frá kauptúnum og sveitarfélögum, sem ráðast í slíkar framkvæmdir, en ég vil benda á, að mér þykir óviðkunnanlegt, að fluttar séu brtt., eftir að málið er komið frá þeirri nefnd, sem hafði það til athugunar, og jafnvel skriflegar brtt. við síðustu umr. málsins.

Ég vil skjóta því til forseta, að hann taki málið út af dagskrá og fresti því, þannig að fjhn. geti haft málið til umr. og kynnt sér það. sem fyrir liggur um rafvirkjunarframkvæmdir.