12.05.1942
Neðri deild: 56. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í C-deild Alþingistíðinda. (503)
78. mál, ábyrgð fyrir lánum til rafveituframkvæmda
*Bjarni Bjarnason:
Það er sjálfsagt ástæða til þess að þakka fyrir það, þegar einstaka þm. taka sig fram um að flytja tillögur fyrir sérstök kjördæmi, og er sjálfsagt að þakka hv. 8. landsk. fyrir að flytja till. varðandi kjördæmi mitt.
Mér þykir undarlegt, að hann kemur með þessa till., því að í gær, þegar ég var að athuga með Ólafsvík og Sand, var hann að skyggnast í það, og sýndi ég honum tillöguna, og segi ég við hann, að það þurfi ekki að koma með ábyrgðarheimild fyrir Árnessýslu, því að þeir hafi nóg fjármagn, og segir hann þá: „Já, þeir bera sig borginmannlega.“ Ekkert annað.
Ég veit, að hann ber mikla umhyggju fyrir sýslunni og hefur boðið sig þar fram, en mér finnst óþarfi af honum að koma með þessa tillögu, eftir að við höfum vitað, að þetta félag hefur nægilegt fjármagn. Hitt skaðar auðvitað ekki, að ábyrgðarheimildin sé til fyrir þessu verki, ef til þarf að taka. En þetta sýnir aðeins, hvernig blær verður á þinginu, ef við eigum eftir að lifa það, að þingmenn í tvímenningskjördæmum verði sinn úr hvorum flokki. Við höfum satt að segja um nokkur ár haft nóg af þessum uppbótarþingmönnum, sem hafa elt þingmenn á röndum með yfirboðum og undirferli, — því að ég býst ekki við, að þm. neiti því, að þetta hafi farið okkar á milli í gær og ekki batnar, þegar þar við bætist, að tvímenningskjördæmin fá sinn manninn af hvorum flokki.
Annars mæli ég með því, að þessi till. verði samþ., því að alltaf er til bóta, að ríkisstj. hafi þessa heimild.