21.04.1942
Neðri deild: 39. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í C-deild Alþingistíðinda. (526)
101. mál, friðun æðarfugla
Flm. (Pálmi Hannesson):
Ég þarf ekki að halda hér langa ræðu, því að grg. frv. er nógu skýr. Frv. er flutt skv. ósk sýslunefndar Skagafjarðarsýslu. Ég býst við, að allir sjái, hversu nauðsynlegt er að gera þessar ráðstafanir, ekki sízt, þar sem vörp eru í mikilli hættu vegna erlendra manna, er hér dvelja. Ég vona, að hv. d. samþ. frv. og legg til, að því verði vísað til allshn. að lokinni þessari umr.