06.03.1942
Efri deild: 11. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (59)
3. mál, útsvör
*Frsm. meiri hl. (Magnús Gíslason):
Herra forseti ! Allshn. hefur haft mál þetta til athugunar og ekki getað orðið sammála um afgreiðslu þess. Hv. 2. landsk. hefur skilað nál. á þskj. 28, þar sem hann leggur til, að frv. verði fellt. En við hv. 2. þm. S-M. höfum orðið sammála um að fallast á þær ástæður, sem fyrir frv. eru færðar í grg. þess, og leggjum til, að það verði samþ. óbreytt.
Málið liggur mjög ljóst fyrir. Sú regla gildir nú í öllum kaupstöðum utan Reykjavíkur, að bæjarstjóri, sem kosinn er af bæjarstjórn, skal vera formaður niðurjöfnunarnefndar, og er með því móti tryggt, að þeir, sem fara með meirihlutavald í kaupstaðnum eftir réttum lýðræðisreglum, hafi einnig vald á því á hverjum tíma, hver er formaður nefndarinnar. En í Rvík er skattstjóri ákveðinn formaður í n. og er skipaður af ríkisvaldinu, sem kunnugt er. Þar með er brotin hin viðurkennda lýðræðisregla, sem er meginuppistaða í uppggjöf okkar um bæjar- og sveitarfélög, að réttur þeirra til að ráða sérmálum sínum skuli sem allra minnstum takmörkunum háður og aldrei takmarkaðri hjá einu bæjarfélagi en öðrum. Hér er það engin knýjandi nauðsyn, sem brýtur lög. Þess vegna er óeðlilegt og alrangt réttarfarslega skoðað, að í útsvarsl. skuli vera ákveðin sér stök íhlutun af hálfu ríkisvaldsins í Reykjavík og ekki annars staðar, — gengið á rétt þess bæjarfélags. Þetta getur leitt illt af sér á ýmsan hátt. Þó að einn flokkur hafi meiri hluta í bæjarstjórn og hafi aleinn vandann af stjórnarframkvæmdum, getur hann orðið í minni hluta í niðurjöfnunarn. fyrir því og litlu fengið ráðið um það, sem mörgum skattþegnum bæjarins mun finnast skipta sig einna mest allra stjórnarathafna. Ef það veltur í hvert sinn á atkvæði hins stjórnskipaða formanns, hver útsvarsstigi er notaður, getur það orðið ofan á, sem brýtur bág við meirihlutavilja bæjarstjórnar. Í mörgum einstökum tilfellum hlýtur hinn sami árekstur að geta orðið, t.d. um útsvör iðnfyrirtækja, — hvort á þau skuli lagt og þá eftir hvaða stiga.
Mér virðast svo glögg rök mæla með frv., að ekki þurfi að fara lengra út í efnið. Það hefur verið talin nauðsyn, að skattstjóri væri formaður n. sakir sérstaks kunnugleika síns á öllum framtölum og ýmsu athugaverðu í sambandi við þau. Þetta getur verið gott og blessað. En nú er gert ráð fyrir, að skrifstofustjóri skattstofunnar skuli aðstoða nefndina eftir þörfum við öll hennar störf. Auk þess hefur n. aðgang að öllum framtölum og getur leitað hverrar þeirrar vitneskju um þau, sem skattstofan kann að hafa aflað sér. Þó að það hafi þótt heppilegt einhvern tíma að sameina skattstjórastarf og formennsku n., er skattstjórastarfið nú orðið það umfangsmikið, að ekki er forsvaranlegt að hlaða meira en því einu á einn og sama mann á þeim tíma, sem höfuðannirnar eru bæði í n. og í skattstofunni. Skattstjórastörfin nú eru ekki saman berandi við það, sem var, þegar þetta var fyrst leitt í lög. Ég geri ráð fyrir, að hv. 2. landsk. eigi eftir að skýra sjónarmið sitt betur en á þskj. 28 og færa fleiri rök en þar, og sé ekki ástæðu til að svara honum fyrr en hann hefur talað fyrir máli sínu.