24.02.1942
Neðri deild: 4. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í B-deild Alþingistíðinda. (613)
7. mál, fiskveiðasamþykktir og lendingarsjóður
Flm. (Pétur Ottesen):
Eins og getið er um í grg. frv., er það aðeins um tvö atriði, sem lagt er til, að gerð verði breyt, á l. um fiskiveiðasamþykktir og lendingarsjóði. Fyrri breyt. er á þá leið, að þar sem Akranes hefur fengið bæjarréttindi, skuli fiskiveiðasamþykkt sett af bæjarstjórn Akraness, en fiskiveiðasamþykkt sú, sem nú gildir á Akranesi, er sett af sýslunefnd Borgarfjarðarsýslu. Lög um fiskiveiðasamþykktir og lendingarsjóði heimila aðeins sýslunefndum að gera. slíkar samþykktir, auk þess sem bæjarstjórnir Rvíkur og Vestmannaeyja hafa sams konar heimild. Eftir að Akranes hefur fengið bæjarréttindi, þarf bæjarstjórn Akraness að bætast þar við.
Hin breyt. kemur til af því, að í l. er syo ákveðið, að fiskiveiðasamþykktirnar taki ekki til stærri báta en 60 smál. Nú er svo komið, að bátar hafa stækkað, þannig að þetta ákvæði er orðið úrelt, en nauðsynlegt, að l. geti tekið til allra báta, sem haldið er úti til róðra. Ég legg því til, að þetta hámarksákvæði verði fellt niður.
Þegar á þessari vertíð hefur bólað á því á Akranesi, að opin leið er fyrir báta stærri en 60 smál. að skerast úr leik. Þetta veldur óánægju og truflun á settum reglum um sameiginlegan róðrartíma. En það er hagkvæmt, að bátarnir séu á svipuðum tíma á miðunum, t.d. er það mikils virði í vondum veðrum, að bátarnir geti komið hver öðrum til hjálpar, ef eitthvað ber út af. — Það er lagt ríkt á við mig, að mál þetta geti fengið fljóta afgreiðslu, og menn vildu jafnvel fá sett um það brbl., en ,þar sem svo stutt var til þings, kinokaði ég mér við að fara fram á það við ríkisstj.
Ég vil því mælast til, að sjútvn. sjái sér fært að skjóta á fundi í dag, ef málinu verður vísað til hennar, og ég vona, að hæstv. forseti vilji greiða götu málsins.
Ég vil svo óska, að frv. verði vísað til 2. umr. og sjútvn.