26.02.1942
Neðri deild: 7. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í B-deild Alþingistíðinda. (616)

7. mál, fiskveiðasamþykktir og lendingarsjóður

Pétur Ottesen:

Ég vil nota tækifærið til að þakka sjútvn. fyrir fljóta afgreiðslu þessa máls. N. hefur borið fram eina brtt. við frv., og er ég því fullkomlega samþykkur, að hún nái fram að ganga og það form haft á málinu, sem þar er lagt til.