06.03.1942
Efri deild: 11. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í B-deild Alþingistíðinda. (62)
3. mál, útsvör
*Fjmrh. (Jakob Möller):
Ég get verið þakklátur meiri hl. n. fyrir afgreiðslu málsins, og í sjálfu sér hef ég enga ástæðu til þess að vanþakka minni hl. fyrir afskipti hans af málinu. Í rauninni má segja, að hv. 2. landsk. í nál. sínu staðfesti, þó að það komi aðeins óbeint fram, að sú breyt., sem gerð er hér á gildandi l., sé alveg réttlát. Það er á dálitlum misskilningi byggt, sem hann segir um þetta mál í nál., og hann segir í ræðu sinni: „Það var talið og er talið rétt, að form. skattan. séu form. niðurjöfnunarn.“ Eiginlega væri miklu réttara að segja, að það hafi verið talið rétt og sé talið rétt, að bæjarstj. ráði form. niðurjöfnunarn., þar sem almenn l. um skipun niðurjöfnunan. mæla svo fyrir, að bæjarstjóri skuli vera form. niðurjöfnunarn., en ekki skattan.
Bæjarstjóri er kosinn af bæjarstjórn, og þess vegna ræður hún ekki aðeins, hver verður form. niðurjöfnunarn., heldur einnig skattan., svo að með þessari breyt., sem hér er farið fram á, er ekki gengið eins langt og í hinum almennu l. En svo er hitt, ef það skyldi vera eina „principið“ í þessu máli, að form. þessarar n. væri embættismaður, þá er það bara misskilningur. Nei, það eina, sem hér er spurt um, er það, hvort það skuli gilda annar réttur í Reykjavík en í öðrum kaupstöðum, og ef það á að vera, hvers vegna á það þá að vera?
Hv. 2. landsk. var að tala um mjóu og breiðu bökin. Það er bara engan veginn tryggt, að frekar væri tekið tillit til mjóu bakanna, þó að skipað væri svo fyrir, að bæjarstjóri skyldi vera form. niðurjöfnunarn. Ég get bent hv. þm. á ákveðið dæmi, en það er í Vestmannaeyjum. Hvernig er séð fyrir þessu þar? Þar er bæjarstjóri kosinn af meiri hl. bæjarstjórnar, flokksmeirihl., og er hann formaður niðurjöfnunarn. „Principið“ er þar ekki meira en það, að hann ber ábyrgð á stjórn bæjarins, og það er líka það rétta. Það fer svo eftir atvikum, hvort það eru breiðu eða mjóu bökin, sem bera aðrar byrðar. Ef verulega harðnar á, þá hygg ég, að það verði breiðu bökin, sem verða að taka við byrðunum, enda hefur. sú orðið reyndin bæði hér og annars staðar.
Svo var hv. þm. að tala um það, að sér þættu störf skattstjóra hafa vaxið mikið síðan þetta fyrirkomulag var tekið upp, að hann væri formaður niðurjöfnunarn. Náttúrlega er það um þetta að segja, að höfuðverkefni skattstjóra er að hafa stjórn á hlutunum og skera úr, þar sem um vafaatriði er að ræða, gagnrýna framtöl o.s.frv., og starf hans vex auðvitað eftir því, sem framtölum fjölgar.
Mér þykir annars leiðinlegt fyrir hönd þess flokks, sem hv. þm. heyrir til, að hann skuli nú leggjast á móti þeirri alveg viðurkenndu lýðræðisreglu, að meiri hl. skuli ráða í hverju slíku máli, sem hér um ræðir, og bera ábyrgð á stjórn þess. Ég greip fram í fyrir hv. þm., þegar hann var að hrósa skattstj., og skal ég ekki neitt draga úr því hrósi, ég minnti hann bara á það, að það söng öðruvísi í tálknunum á málgagni flokks hans í fyrra heldur en í hans eigin tálknum nú, því að sannleikurinn er sá, að það var ekki fyrst og fremst vegna starfseminnar, heldur vegna svívirðilegra árása af hálfu þess flokk,. sem hv. þm. heyrir til, að þessi maður hafði nær beðið tjón á heilsu sinni. Ég hef svo ekki meiru við þetta að bæta, þar sem hv. frsm. hefur einnig talað í þessu máli og gert glögga grein fyrir afstöðu meiri hl. nefndarinnar.