06.03.1942
Efri deild: 11. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í B-deild Alþingistíðinda. (65)

3. mál, útsvör

*Fjmrh. (Jakob Möller):

Ég þarf í raun og veru ekki að svara hv. 2. landsk. neinu verulegu. Hann byrjaði með því að lýsa yfir, að líklega hefði enginn skilið, hvað ég var að fara í fyrri ræðu minni. Ég sá á því, sem hann sagði, að hann hefur ekki skilið það. Ég vil þá snúa því við, sem hann sagði, og segja, að hann hafi verið eini maðurinn í hv. d., sem ekki hefur skilið það. Og þetta er allnóg því viðvíkjandi.

En þar sem hann bar fram þá spurningu með allmikilli áherzlu, hvernig Sjálfstfl. hefði náð meiri hluta í niðurjöfnunarn., og sagði, að það hefði verið með því að láta kjósa einn mann nú til viðbótar, í staðinn fyrir formann, og með því náð meiri hl., þá er því til að svara, að það er sagt og viðurkennt af honum sjálfum, að þessi maður sem kosinn var í n., er ekki sjálfstæðismaður, svo að á þann hátt hefur Sjálfstfl. ekki náð meiri hl. í n. Nei. Sannleikurinn er sá, að flokkurinn var búinn að ná meiri hl. í nóv. s.l., og skattstjórinn hefði þá komið inn sem 5. maður. Þá hefðum við haft 3 af 5, en ekki 3 af 4, en þetta notaði Sjálfstfl. sér ekki til að ná meiri hl. Ég bendi á þetta til að sýna fram á, að Sjálfstfl. þurfti ekki að fá þessa lagabreyt. til þess að fá meiri hluta í n., heldur til þess að slá því föstu, að meiri hl. eigi að ráða, eins og í öðrum kaupstöðum, og eitt verði þannig látið yfir alla ganga í þessu efni.

Þegar hv. þm. fór að tala um lýðræðið, þá gerði hann ráð fyrir því, að menn teldu vera lýðræðisskipulag á Ítalíu. Þetta er fyrsti maðurinn, sem ég hef heyrt segja það. Og ég veit með fullri vissu, að Mussolini gerir enga kröfu til þess að vera lýðræðissinni eða vilja halda uppi lýðræðisskipulagi. Hv. þm. skildi þá ekki meira í þeim málum heldur en það, sem ég sagði áðan.

Um lýðræðið hér á Íslandi hélt ég, að allir viðurkenndu, að það væri grundvallað á því, sem hann sagði, að það væri meiri hluti kjósendanna, sem réði, þegar fram hafa farið almennar kosningar með jöfnum atkvæðisrétti. Og það er einmitt þetta, sem er grundvöllurinn undir stjórnskipulagi okkar, alveg eins í bæjarstjórn Reykjavíkur og annars staður. Þess vegna er hér um það að ræða, að lýðræðislegur meiri hl. borgaranna í Reykjavík fái að ráða málum sínum. Þessi hv. þm. segir nei, og er þess vegna ekki fylgjandi lýðræðisskipulagi. Hann vill fá þá undantekningu frá lýðræðisskipulaginu, það gildi ekki um skipun niðurjöfnunarn. í Reykjavík. Þessa skoðun er honum frjálst að hafa, og það kemur mér síður en svo á óvart, en hitt er ekki satt, sem hann sagði, að ég áliti, að lýðræðismálið sé hjartans mál hans og hafa flokksmanna, slíka vitleysu hefur mér aldrei dottið í hug að segja.