20.05.1942
Neðri deild: 62. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í C-deild Alþingistíðinda. (679)
137. mál, hreppamörk Borgar- og Stafholtstungnahreppa o.fl.
*Frsm. (Bergur Jónsson) Ég tók skýrt fram, að meiri hl. sýslunefndarinnar hefði verið þessu samþ. Það er auðséð, að hér er um að ræða smávegis ósamkomulag, en flm. frv. hefur tekið afstöðu með Borgarhreppi, og finnst mér það rétt, því að hér er um að ræða land, sem Borgarhreppur á að mestu leyti. Annars gæti flm. upplýst þetta betur en ég.