23.03.1942
Neðri deild: 24. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í B-deild Alþingistíðinda. (691)

21. mál, lendingarbætur á Stokkseyri

*Eiríkur Einarsson:

Það er mjög smávægilegt atriði, sem ég vil leita skýringa á, af því að ég held, að það hafi ekki enn komið fram í málinu.

Í 2. gr. er hreppsnefnd Stokkseyrarhrepps veitt heimild til að taka allt að 100 þús. kr. lán til lendingarbótanna, en í 7. gr. segir, að hreppsn. megi ekki án leyfis atvmrh. selja eða veðsetja fasteignir lendingarsjóðs, kaupa nýjar fasteignir né taka lán til lengri tím,a en svo, að þau verði greidd af tekjum næsta árs. Það segir sig sjálft, að þarna er átt við smærri lántökur, en ekki þá lántöku, sem er heimiluð í 2. gr. Þetta er ekki tekið fram í frv., en er vitað mál, leiðir svo að segja af sjálfu sér. Mér þykir rétt að benda á þetta atriði til þess að fá á því skýringu, þó að það liggi í hlutarins eðli, hvernig þessu máli er háttað.

Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að ræða þetta mál. Málið er gott og nauðsynlegt, og vona ég, að enginn ágreiningur verði um það, heldur gangi það greiðlega í gegn og verði lögfest.