19.05.1942
Neðri deild: 61. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í C-deild Alþingistíðinda. (713)

140. mál, tollskrá o.fl.

*Flm. (Ísleifur Högnason):

Við umr. um gerðardómslögin boðuðum við fulltrúar Sósfl., að við mundum flytja á þingi till. um það að lækka tolla að allverulegu leyti. Samkv. reikningsyfirliti, sem hæstv. fjmrh. lagði hér fram við 1. umr. fjárl. kom í ljós, að tekjuafgangur ríkissjóðs á árinu, sem nýliðið er, var eitthvað um 15–16 milljónir króna. Fjárl. hafa farið það mikið fram úr áætlun, að þessar tekjur virðast óþarfar til þess að standast útgjöld ríkissjóðs. Hins vegar er það skoðun meginhluta þingsins, að nauðsyn beri til þess að reyna að minnka eitthvað dýrtíðina. Og frv. þau, sem þjóðstjórnarflokkarnir hafa lagt hér fram og ganga undir nafninu gerðardómslög, áttu að koma í veg fyrir, að dýrtíðin ykist. Það hefur að vísu tekizt að halda dýrtíðarvísitölunni niðri. Mér er ekki kunnugt, hvaða ráð hafa verið notuð. Þá munu hafa verið lækkaðir eitthvað lítils háttár tollar og verðlagsn. ákveðið að lækka verð einstakta vörutegunda. T.d. hafa egg verið lækkuð allverulega í verði, og hefur þetta kannske átt sinn þátt í að halda vísitölunni niðri. Annað mál er það, að síðan hefur þessi vara ekki fengizt í verzlunum. Kaupmenn segjast geta fengið tvöfalt verð með því að selja til útlendinga. Það mun því koma í ljós síðar, að þar ráðstafanir, sem gerðar eru til að halda niðri dýrtíðinni, eru ekki verulegar, heldur tilbúningur. og hefur dýrtíðin vaxið, þrátt fyrir vísitöluna, mjög mikið síðan um áramót. Það, sem við leggjum til, er að afnema með öllu toll um ákveðinn tíma á öllum þörfum innflutningsvörum og undanskilja aðeins nokkra liði tollskrárinnar. Með þessu mundi innkaupsverð varanna lækka. Ef tekið er allt árið, munar þetta af okkar áætlun um 20 millj. kr. Þess ber að gæta, að á tollinn leggja heildsalar og kaupmenn sína ágóðaþóknun, og mundi sú fjárhæð, sem þannig sparast, nema að okkar áliti um 2–4 millj. kr.

Enginn vafi er, að ef þessi till. verður samþ., þá mundi mega þegar draga allverulega úr dýrtíðinni og dýrtíðarvísitalan um leið lækka. Tilgangur okkar er að lækka dýrtíðina, og við álitum ekki aðra leið sjáanlega hagkvæmari, enda mun koma í ljós, að dýrtíðin mun réna til mikilla muna við þessa ráðstöfun. Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri, en vona, að hæstv. forseti sjái um, að þetta mál gangi til fjhn. og verði tekið aftur á dagskrá, til þess að við fáum að sjá, hvernig afstaða þm. yfirleitt er til þess.