25.03.1942
Efri deild: 23. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 341 í B-deild Alþingistíðinda. (734)

47. mál, stýrimannaskólinn í Reykjavík

*Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Herra forseti 1 Við 1. umr. þessa máls var þess getið, að sjútvn. mundi bera fram brtt. við þetta frv. Þær er nú að finna á þskj. 99. Fyrri brtt. miðar að því að fella niður 1. gr. frv. En samkv. 2. brtt. n. er 1. gr. alveg óhæf. En aðalbrtt. n. er sú, að aftan við 3. gr. l. um stýrimannaskóla í Reykjavík bætist: „Ráðherra er heimilt, að fengnum tillögum skólastjóra, að ákveða, að aðeins skuli kennd tvö af hinum erlendu tungumálum til farmannaprófs.“ Þessi ráðh. er atvmrh., því að skólinn heyrir undir hann, og er það eftir brtt. lagt á vald þess ráðh., hvort fækka skuli námsgreinum að því er snertir erlend tungumál. N. taldi það heppilegri skipan, að þetta væri sett þannig inn í l. heldur en að binda sig í l. við eitthvert ákveðið erlent mál og fella það undan. Það getur verið hreint matsatriði á hverjum tíma, hvaða mál skuli kennd í þessum skóla og því ekki rétt að fastbinda það í l. Þessi fækkun námsgreina er af skólastjóranum borin fram af því, að það er til of mikils náms ætlazt af nemendum á þeirra takmarkaða námstíma í skólanum að kveða svo á, að þeir skuli læra þrjú erlend tungumál.

Þær breyt., sem lagt er til með frv. að gerðar verði á l., eru aðeins smávægilegar, og er þeirra getið í grg. frv. með feitu letri. Það er bætt inn í kennslu í reikningi því, sem heitir „veldi og rót“. Og einnig er bætt inn í kennslu í „að búa til vaxandi kort“ og kennslu um „sigling eftir stórbaug og stórbaugskort“. Þessi atriði öll hafa verið kennd til farmannsprófs, en það hefur fallið niður að taka þau fram í l., þegar þau voru samin á sínum tíma. En nauðsynlegt er, að ákvæði séu um það í l., að skylt sé að kenna þetta við skólann.

Um hinar aðrar gr., sem frv. gerir till. um breyt. á, talaði ég nokkuð við 1. umr. málsins, t.d. að reynslan, síðan skólinn var stofnaður, hefði sýnt, að ávallt hefði þurft að hafa 3 kennara í siglingafræði við skólann, þegar námsmannafjöldinn hefur verið yfir 30–40 nemendur. Nú er aðsóknin svo mikil við þennan skóla, að þar eru 70–80 nemendur með öllum námsgreinum, sem koma til greina við smáskipapróf, fiskimannapróf, farmannapróf og hið stærsta próf, sem á að gilda á varðskipunum. Þar af leiðandi liggur það í hlutarins eðli, að ofætlun er fyrir 2 menn að annast siglingafræðikennslu, og því er af þeirri ástæðu nauðsynlegt, að einum fastakennara sé bætt við. Hin ástæðan, sem gerir nauðsynlegt að bæta þessum fastakennara við, er sú, að við skólann starfar nú maður, sem kominn er á efra aldur og mun brátt verða að láta af störfum þess vegna. Hann hefur starfað þar um 30 ár. Og nú er verið að fullnuma ungan mann til þess að taka við þessu starfi. Og undirbúningur hans miðar m.a. að því, að hann geti tekið við skólastjórn, ef því er að skipta. En afleiðingin af því er sú, að það verður að tryggja þessum manni fast starf við skólann.

Ég hef nú lýst efni frv. og brtt. við .það, og sjútvn. stendur öll að þessum brtt.