08.04.1942
Efri deild: 28. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í C-deild Alþingistíðinda. (735)

57. mál, skattgreiðsla h/f Eimskipafélags Íslands

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Herra forseti! Mér finnst nauðsynlegt að segja hér við þessa umr. nokkur orð. Mér skildist á hv. 1. þm. N.- M., að fyrir lægju skýrari upplýsingar um efnahag Eimskipafél. Íslands en hér hefur komið í ljós. En það er tilhlýðilegt og nauðsynlegt til þess að flýta fyrir afgreiðslu málsins, að þær upplýsingar, ef fyrir hendi eru, verði gerðar þm. kunnar. Í upphafi voru það efnahagsvandræði félagsins. sem komu af stað þessum skattgreiðsluívilnunum félaginu til handa. Ég minnist þess, að við umr. málsins 1928 flutti ég í Nd. brtt. þess efnis, að skattfrelsið skyldi því skilyrði háð, að ekki væri greiddur arður til hluthafa. Þingið féllst á þessa hugmynd, en breytti henni á þá leið, að arðgreiðslan skyldi takmörkuð við 41/2%. En þetta var aðalskilyrðið fyrir fríðindunum. Siglingar eru brýn nauðsyn fyrir Íslendinga. Gróði Eimskipafélagsins, því að nauðsynlegt er, að það félag sem önnur fyrirtæki sé rekið með ágóða, á að ganga til nýbygginga og kaupa á nýjum skipum. Hins vegar hefur félagið safnað sjóðum, en ekki getað endurnýjað svo skipastól sinn, sem æskilegt væri, en til þess eru ýmsar ástæður, sem kunnugt er. Hins vegar skal ég játa það, að árið 1940 var svo gott ár fyrir félagið og rekstrarafgangur þess svo mikill, að eðlilegt er, að mönnum finnist rétt að taka til nýrrar athugunar, hvort félagið skuli njóta sömu fríðinda hér eftir sem hingað til. Nú hefur mér, sem öðrum þm., borizt greinargerð útgerðarstjórnarinnar í aðalatriðum. Þar kveður við annan tón, hvað snertir afkomuna, en margir munu ætla. En ég hygg, að það mundi flýta fyrir málinu, ef hv. fjhn. vildi upplýsa nánar hag félagsins. Ég hef ákveðið að greiða frv. atkv. við þessa umr., en ég tel mjög æskilegt, að milli umr. væri hægt að fá betri og fyllri upplýsingar um afkomu félagsins.

Hv. 1. þm. N.-M. minntist á, að fyrst félagið uppfyllti ekki skilyrðið um ókeypis mannflutninga. þá ætti það að ákveða lægri farmgjöld á nauðsynjavörum í samráði við ríkisstj. Mér skilst, að þetta sé einmitt gert. Í skýrslu þeirri, sem þm. hefur verið send, segir útgerðarstjórnin, að farmgjald af helztu matvælum sé nú ekki nema rúmar 130 kr. pr. smál. í stað 160 kr. í síðasta stríði. Er þó réttilega á það bent, að nú eru allar siglingar miklu dýrari en þá var. Hér hefur félagið því sýnt tilhliðrunarsemi, sem er góðra gjalda verð. Um gróða félagsins að öðru leyti vil ég fá upplýst, um hvaða aðra starfsemi rekstri félagsins óviðkomandi er að ræða. Því að öðruvísi get ég ekki skilið orð hv. 1. þm. N.-M. en að félagið hefði af slíkri starfsemi ekki óverulegan gróða. Árið 1940 mun félagið óbeint hafa grætt á leiguskipum, en 1941 mun sá gróði hafa verið minni. En eins og ég áður sagði, vil ég fá upplýsingar um, um hvaða aðrar gróðalindir er að ræða.

Hv. 1. þm. Reykv. talaði um þjóðnytjastarf félagsins. Get ég verið honum sammála að nokkru leyfi, en ósammála að því leyti, að um þjóðnýtt fyrirtæki sé að ræða. Sú gagnrýni, sem beinzt hefur að félaginu, stafar einmitt af því, að þjóðin ræður ákaflega litlu um rekstur þess. Ef það væri rekið sem ríkisfyrirtæki t.d., gæti Alþingi ráðið miklu meira um starfsemi þess.

Annars skal ég játa, að félagið hefur jafnan sýnt það, að það ber hagsmuni þjóðarinnar fyrir brjósti. Nægir í því sambandi að benda á það, að það hefur ávallt látið flutninga að og frá landinu og innanlands sitja í fyrirrúmi fyrir öðrum flutningi. Hins vegar er það vitað um mörg erlend skipafélög, að þau sigla þar í heiminum, sem bezt borgar sig, án þess að þau séu að hugsa um að fullnægja flutningaþörf sinnar eigin þjóðar, en það hefur Eimskipafélags Íslands aldrei gert.