08.04.1942
Efri deild: 28. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (741)

57. mál, skattgreiðsla h/f Eimskipafélags Íslands

Erlendur Þorsteinsson:

Herra forseti! Ég skal nú ekki lengja mikið umr. En ég vil strax skýra frá því, að sú afstaða mín, að fylgja þessu frv., byggist ekki fyrst og fremst á því, hvort það er gróði eða tap á rekstri Eimskipafélagsins á hverju ári, heldur hinu, hvað við þennan gróða kann að vera gert. Og þess vegna lít ég svo á, að aðalskilyrðið fyrir því, að þetta skattfrelsi fáist, sé, að hluthöfunum sé ekki greiddur mjög hár arður. Eins og nú er, má vitanlega deila um það, hvort rétt sé að greiða 4% háan arð, þar sem vitað er, að vextir eru ekki nema 2–31/2%, og er því til athugunar, hvort rétt væri að setja um það einhverjar reglur, að greiða megi háan arð.

Þegar sett eru lög um skattfrelsi Eimskipafélagsins, geri ég ekki ráð fyrir, að það hafi mikla þýðingu, hvort fluttir eru 20, 30 eða 60 menn á milli lunda. Að það, út af fyrir sig, geti haft sérstök áhrif á skattfrelsið, fæ ég ekki séð.

Þá er um gróðann að ræða, hvort rétt sé að gera hann skattfrjálsan, af hvaða rótum sem hann er runninn til félagsins. Ég sagði áðan, að gróðinn skipti ekki miklu máli, heldur hitt, hvernig honum er varið. Ef hann er notaður til að byggja félagið upp, útvega því fleiri skip, endurbæta þau, sem fyrir eru o.s.frv., þá er honum réttilega varið. Aftur á móti getur svo hitt orðið álitamál, hvort nægilega tryggilega er um það búið, að raunverulegum tekjum félagsins sé ekki til annars varið en þessa. En það er mát, sem ég treysti mér ekki til að dæma um. Og ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að svo sé gert. Ég verð þess vegna að telja, að gróði félagsins, af hvaða rótum sem hann er runninn, eigi ekki an skattleggjast. á meðan félagið fer ekki út fyrir sín raunverulegu takmörk og á meðan hann er bundinn við rekstur þess.

Út af þeirri till. eða ábendingu hv. 1. þm. N.-M. um, að rétt væri að setja inn í þetta frv. skilyrði fyrir lækkun flutningsgjalda, vil út segja það, að ég man ekki betur en að það sé til heimild í sérstökum lögum, sem voru samþ. her á síðasta þingi, að ríkisstj. megi hafa íhlutun um og ákveða farmgjöld, en af því að hún hefur ekki framkvæmt þetta, þá sé ég ekki, að það batnaði nokkuð við það, þó að sama heimildin yrði endurtekin hér í öðrum lögum.

Hv. 1. þm. N.-M. talaði hér um ýmsa óeðlilegu starfsemi, sem Eimskipafélagið hefði með höndum, en færðist undan því að upplýsa, hver sú starfsemi væri. Á meðan svo er, er ekki ástæða til að deila um það. Mér er sagt, að það sé skipamiðlunarstarfsemi. sem það hefur með höndum. En mér skilst, að það sé að nokkru leyti að tilhlutun ríkisstj. og finnst ekki, að það sé neitt athugavert. Kannske það hafi þá haft miklar tekjur af leiguskipum á árinu 1940? Ég vissi samt ekki betur en að þegar mikil þörf var fyrir flutning nauðsynjavörum frá Ameríku til Íslands, þá hafi ríkisstj. heitt sér fyrir því að fá til þess skip, og þá var það auðvitað í lófa lagið að láta Skipaútgerð ríkisins sjá um þetta. En af einhverjum ástæðum hefur ríkisstj. talið rétt að hafa það í höndum Eimskipafélagsins. Nú hefur framkvæmdastjóri félagsins upplýst það. að á mörgum þessara leiguskipa hafi orðið mikið tap. Af þessu skilst mér, að með þessu hafi ríkisstj. verið að velta tapi af ríkissjóði yfir á Eimskipafélagið.

Það má að sjálfsögðu alltaf deila um það, hvort þessi eða önnur atriði gætu farið betur úr hendi. T.d. hef ég alltaf litið svo á, að Eimskipafélagið ætti að hafa út- og uppskipun úti um land, eins og hér í Reykjavík, en ekki væri rétt að nokkrir menn taki gróðann af þessari starfsemi. En hann er kannske ekki svo stórkostlegur, að það hafi nokkra verulega þýðingu. Það er mín skoðun. að sá gróði, sem af þessu er, væri betur kominn hjá Eimskipafélaginu heldur en einstaklingum en fyrirtækjum, er hafa þessa starfsemi nú.

Hv. 1. þm. N.- M. minntist hér á gróða af því að kaupa nokkur 1 þús. kr. hlutabréf fyrir 1 þús. kr. eða meira og liggja með þau. Ég fæ ekki betur séð en að þetta sé tap og það verði að afskrifast. Ef hv. þm. meinar, að félagið geti selt þau nú á hærra verði, þá er um að ræða greiða. En ef um þriðja atriðið er að ræða. að það hafi keypt bréfin fyrir einhvern einstakling, og liggi siðan með þau fyrir hann og bíði eftir hækkandi verði, þá er hér um að ræða vítavert athæfi. Og ef það er rétt, að Eimskipafélagið noti peninga sína á þennan hætt, því er það verknaður, sem vissulega er þess verður, að hann sé rannsakaður betur ofan í kjölinn. Það má vera, að ég hafi misskilið hv. þm. en ég veit, að ef þetta er rétt, já mun hann vísastur manna til að koma í veg fyrir, að slíkt eigi sér stað. En ég vil ekki ætla framkvæmdastjóra félagsins, að hann framkvæmi verknað sem þennan.

Ég hef áður vikið að því, að það geti verið rétt af hv. þd. að athuga það, hvort ekki geti verið rétt að færa niður arðgreiðsluna til hluthafa, og það mundi þá verða gert fyrir 3. umr. ef menn teldu það fært.