27.04.1942
Efri deild: 41. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í C-deild Alþingistíðinda. (793)

110. mál, orlof

*Frsm. (Sigurjón á. Ólafsson):

Herra forseti.

Ég vil nú byrja á því að þakka hæstv. forseta fyrir það, að hann hefur nú hraðað svo þessu máli að taka það á dagskrá.

Um sögu þessa máls er í stuttu máli það að segja, að samkvæmt þál. sem samþ. var á síðasta haustþingi í Sþ., var skipuð 5 manna nefnd til þess að semja frv. og gera till. um það, sem í þessu frv. felst og við höfum leyft okkur að nefna orlof. En tilefni þessa frv. er það, eins og tekið er fram í grg. frv., að sér á voru landi er þörf á að koma á með l. lágmarksákvæðum um orlof, sem við í daglegu tali höfum kallað sumarfrí, fyrir allt vinnandi fólk í landinu. Fyrirmyndirnar að þessu er að finna á Norðurlöndum, sem í því eins og mörgu öðru, hafa komizt lengst í allri félagsmálalöggjöf og framkvæmd réttindamála fyrir verkalýðinn yfirleitt og starfandi fólk, sem vinnur hjá öðrum.

Nefndin, sem fékk þetta mál í hendur til að vinna að því, varð að vísu fyrir ýmsum löfum vegna sjúkleika einstakra nefndarmanna og fjarvistar sumra þeirra úr bænum um nokkurn tíma. En þrátt fyrir þessar tafir varð að lokum komizt að þeirri niðurstöðu af 4 af 5 nefndarmönnum að leggja fram það frv., sem nú er hér að finna á þskj. 243. Það er rétt að taka það fram strax, að tveir nefndarmanna, sem voru með í að semju þetta frv., höfðu nokkurn fyrirvara því viðvíkjandi, og það er tekið fram í grg. fyrir frv. á bls. 8. En í öllum höfuðatriðum voru þessir 4 nefndarmenn nokkurn veginn sammála nm það takmark, sem vinna bæri að, og því er ekki um verulegan ágreining milli þessara 4 nefndarmanna að ræða. En einn hv. nefndarmaður, fulltrúi atvinnurekenda, hafði hins vegar allmjög þrengra sjónarmið og tók afstöðu til málsins í samræmi við það. Var hann þó sammála hinum nefndarmönnum um það, að rétt væri að setja löggjöf í þessu efni, en vildi ganga í mjög þýðingarmiklum atriðum miklu skemmra með lágmarkskröfur í þessu efni heldur en við hinir nefndarmennirnir 4. En till. frá honum liggja nú ekki fyrir hér á hæstv. Alþingi, þær hafa ekki verið prentaðar. Og enginn af flokksbræðrum hans hefur enn sem komið er talið þörf á að leggja þær fram í frumvarpsformi. — Þannig eru í stuttu máli tildrög þessa máls.

Nú hefði verið eðlilegt, að hæstv. ríkisstjórn hefði flutt þetta mál hér í þinginu. En það leið þó nokkur tími, frá því að málið var afgr. til hennar og þar til við flm. fórum að hreyfa því að flytja málið. Og málið er flutt í samráði við þann hæstv. ráðh., sem hefur tekið að sér þann hluta félagsmálanna, sem þetta mál heyrir undir. Það var sem sagt borið undir hann, hvort hann teldi það ekki í samræmi við ríkisstjórnina. þó að málið væri hér flutt, og taldi hann það vera.

Ég skal taka það fram, að ég hafði ekki búizt við og hafði ekki vænzt þess, þar sem þetta mál kemur fram svona seint á þinginu, að það gæti fengið afgreiðslu nú á þessu þingi. Þó taldi ég og hv. meðflm. minn að frv. rétt, að málið væri sýnt nú og almenningi gæfist kostur á að sjá þetta frv. og kynna sér það á milli þinga. En hins vegar, ef hæstv. Alþ. vill nú ganga lengra en vonir mínar hafa náð í þessu efni, eins og það að láta málið ganga hraðbyri gegnum þingið. Þá mundi ég takal því með mestu þökkum.

Um frv. sjálft er það að segja, að það fjallar aðeins um lágmarksákvæði um orlof. Því að það er vitanlegt, eins og sjá má á þeirri skýrslu, sem fylgir með þessu frv. sem fylgiskjal nr. 5, að gildandi ákvæði eru nú þegar í þessum efnum hjá öllum þorra stéttarfélaga, kannske öllum stéttarfélögum, og hafa þau ákvæði verið sett með samningum milli atvinnurekenda og stéttarfélaganna. Og eins og þar má sjá, þá eru þó nokkur félag og stéttir sem eru fyrir ofan þetta lágmark, sem til er tekið í frv. En lágmarkið er 12 dagar fyrir ársþjónustu, eða m.ö.o. einn dagur fyrir hvern unninn mánuð.

Nú skal ég taka það fram, að fordæmi fyrir þessari lagasetningu er að finna í löggjöf Dana. og þeir munu yfirleitt hafa gengið lengst um þetta lágmark. Töldum við nefndarmenn rétt að fara að þeirra dæmi í þessu efni. Hér hjá okkur hefur þetta verið með ýmsum hætti um orlofin. En nú á seinni árum hefur það í raun og veru sýnt sig, að allur almenningur leggur mjög mikið upp úr því að fá þessi orlof sín aukin, og þeir, sem ekki hafa átt þeirra kosi áður. hafa nú í seinni tíð gert ýtrustu tilraunir til að fá þau ákveðin í samningum. Má í því efni benda á þann samning, sem Dagsbrún gerði við atvinnurekendur um orlof og Hlíf sigldi svo í kjölfarið á eftir um. En þetta orlof, sem þar greinir, er helmingi lægra tiltölulega heldur en orlof hjá öðrum stéttarfélögum bæjarins og jafnvel þótt utan bæjarins sé leitað. Og verkamenn telja, að í þessum Dagsbrúnarsamningi um of lítil orlof að ræða, og því beri að ákveða það hærra en þar var gert. Og í þessu lágmarki frv. um orlof fyrir verkamenn og aðra, sem ekki hafa haft þau með samningum, er farið helmingi lengra en ákveðið er í þeim byrjunarsamningum um orlof, sem gilda fyrir verkamenn í Dagsbrún og verkamenn í Hafnarfirði. En mér er ekki kunnugt um, að verkamenn hafi rétt til slík orlofs annars staðar á landinu, og mundi því löggjöf slík sem þessi verða réttarbót fyrir þá verkamenn, sem ekki hafa getað fengi slíkt fram með samningum.

Það er rétt að geta þess. að þessi löggjöf þegar samþ. verður, er hugsað að nái einnig til verkafalla í sveitum, og er það m.a. fram komið fyrir ósk fulltrúa framsóknarmanna hér á Alþ. Því að við undirbúning þessa máls, með samþ. þál., sem ég áður hef greint frá, var þess beinlínis óskað, að starfandi fólk í sveitum, vinnufólk m.a., skyldi einnig koma undir þessa löggjöf. Og fulltrúi sveitanna í nefndinni, Jón Hannesson í Deildartungu, var á því, að ekki væri hægt að mismuna fólki í þessu efni, hvort sem það er í bæ eða byggð.

Ég skal ekki fara út í einstakar greinar frv.

En það er rétt, að það komi fram, að nefndinni var það fullkomlega ljóst, að orlof, sem skal kostað af viðkomandi atvinnurekanda slíkt sem f frv. getur, það þýðir 4% til gjalda í kaupgreiðslur fyrir hvern einstakan atvinnurekanda. Og það er að sjálfsögðu matsatriði hjá hv. þm., hvort svo langt skuli gengið. Og þar var höfuðágreiningurinn um milli fulltrúa atvinnurekendur í n. og meiri hluta n. Fulltrúi atvinnurekenda vildi ekki fara hærra en í 2% í þessu efni. en meiri hluti n. vildi ekki falla frá því, að þessi kostnaður næmi 4%.

Ég skal enn fremur geta þess, að um framkvæmd þessara l. er sumpart gert ráð fyrir í frv. sjálfu, beinlínis með ákvæðum, en svo er gert ráð fyrir, að fylla beri upp í ýmsar eyður framkvæmdaatriðanna með reglugerð. En í höfuðatriðum er í þessu frv. farið eftir þeim reglum, sem gilda í Danmörku og víðar á Norðurlöndum um framkvæmd þessara mála, að svo miklu leyti sem við teljum það geta samrýmzt okkar staðháttum hér. Ég skal einnig taka það fram, að það má segja, að þetta frv. sé í einu atriði nokkuð rýmra heldur en á sér stað í sams konar löggjöf á Norðurlöndum, og það er í því fólgið, að við ætlumst til, að allir þeir sjómenn, sem ráðnir eru upp á hlut úr afla eða eftir hlutaskiptingum, geti komið undir ákvæði þessara l., en ef um hrein hlutaskipti er að ræða, þá sé það þannig, að báðir verði að greiða kostnaðinn að jöfnu, útgerðarmaður og hlutarmaður. Hins vegar skal ég líka taka fram, eins og sjá má í gr. frv., að hér er skilgreining á því, hvað telja megi hrein hlutaskipti, þ.e. þegar hluttaki tekur þátt í útgerðarkostnaðinum að meira eða minna leyti. Og er það eftir gamalli venju skilgreiningin á því, hvað telja beri hrein hlutaskipti. Þó að hér sé gengið nokkru lengra en annars staðar, þá teljum við flm., að það beri einnig að tryggja sjúmönnum orlof, því að þeir hafa einnig þörf á að njóta hvíldar, og þess, sem e.t.v. er aðalatriðið með orlofunum, að fólk geti hreyft sig eitthvað frá þeim stað, þar sem það vinnur, og frá því daglega striti, sem það hefur fyrir því að afla sér brauðs, og nota sín orlof á þann veg, að það geti komizt út í náttúruna lengra eða skemmra. eftir því sem efni standa til, og aukið með því nokkuð þekkingu sína og víðsýni með því að ferðast eitthvað og sjá sig um. Og hér er gert ráð fyrir því, að sparaðir séu peningar, sem fólkið geti varið til þess að taka sér ferð á hendur í orlofi sínu og notið skemmtunar. Það var tilætlun mín og annarra, sem þáltill. fluttu á sínum tíma um þetta, að reyna að finna út skynsamlegar aðferðir til þess að létta undir með öllum almenningi um orlofsferðir. En n. fór ekkert inn á það svið að leita til þeirra, sem halda uppi samgöngum hér í kringum landið, hvorki þeirra, sem hafa l. samkvæmt með höndum fólksflutninga með bifreiðum, né þeirra, sem ráða yfir þeim skipum, sem fara með ströndum fram, né heldur að ræða við félag eins og Ferðafélag Íslands um þetta efni. En að taka þetta allt til athugunar og ræða við þessa aðila er e.t.v. nauðsynlegt á sama tíma, sem samþ. er löggjöf slík sem þessi hér á Alþ., þannig að reynt sé að tryggja það, að hægt sé að gera öllum almenningi orlofsferðirnar sem ódýrastar og greiðastar.

Ég hygg, að löggjöf slík, sem hér er lagt til að gerð verði, mundi verða afar vinsæl. Og slík löggjöf er nauðsynleg og í samræmi við kröfur tímans, að hver einstakur þjóðfélagsþegn þurfi ekki að gefa sig svo að sínu starfi og striti, að hann geti ekki lyft sér upp og notið sinna frístunda. Orlof eru þekkt í okkar þjóðfélagi um langt skeið, þó með nokkuð öðrum hætti sé heldur en hér er gert ráð fyrir. Það var sú venja til sveita, að hjúin á heimilunum fengu svo og svo langan tíma til þess að heimsækja frændur í næstu sveit eða sýslu, sem sagt fara eitthvað út af bænum sér til hressingar og upplyftingar. Og það er ekki minni ástæða til þess nú á þessum tímum, að fólkið, sem í bæjunum býr, og jafnvel þótt í sveitum sé, eigi sér þess kost að lyfta sér upp frá daglegu striti og safna nýjum kröftum. Og þetta er höfuðatriði þess frv., sem hér liggur fyrir.

Hér er um lágmarksstill. um orlof að ræða í frv. En heimilt er þar fyrir, þó að þetta verði samþ., fyrir hvert stéttarfélag að semja um meira orlof heldur en í frv. er gert ráð fyrir, enda eru til stéttir og félög, sem eru hærri með orlof sín samkv. samningum heldur en hér er gert ráð fyrir með því lágmarki, sem hér greinir.

Skal ég svo ekki hafa fleiri orð um þetta frv., en geri að till. minni, að því, að lokinni þessari umr., verði vísað til 2. umr. og allshn. Og ef hæstv. Alþ. er sér þess meðvitandi, að hér sé um réttlætismál að ræða og því heri að samþ. þetta frv., þá mundi ég vera hinu háa Alþ. þakklátur, ef það treysti sér til að samþ. frv. nú, enda þótt mig hafi ekki dreymt um, að svo hratt gæti gengið setning slíkrar löggjafar sem þessarar.