23.03.1942
Efri deild: 21. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 352 í B-deild Alþingistíðinda. (802)

25. mál, íþróttakennaraskóli Íslands

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Herra forseti ! Ég kvaddi mér hljóðs m.a. af því að um þetta mál fjallar n., sem Alþfl. á engan fulltrúa í. Og það vill nú vera svo, að maður athugar kannske ekki eins gaumgæfilega málin, þegar maður er ekki í n., sem um þau fjalla. En ég vildi gera örfáar fyrirspurnir í sambandi við þetta frv. Ég skal taka það fram, að ég tel hugmyndina um þennan skóla góða. Staðinn fyrir skólann geta menn náttúrlega deilt um. En því ber ekki að neita, að sá staður, sem hér er tilnefndur fyrir skólann, er fyrir margra hluta sakir mjög ákjósanlegur. Ég hygg, að hann hafi þau skilyrði, sem íþróttakennsla útheimtir, flesta tíma árs. Hins vegar er ekki því að neita, að það er að mörgu leyti heppilegt vegna nemendanna sjálfra að hafa skólann ekki langt frá þéttbýlinu, svo að þeir eigi greiðara með að stunda nám í honum: Þess vegna er spurningin um það, hvort það sé beinlínis nauðsynlegt að setja það í l., hvar heimili skólans er. Ég álít, að þetta eigi að koma til nánari athugunar. Gæti vel verið, að hægt væri að finna fleiri staði á landinu, sem hefðu slíka kosti og svipuð skilyrði sem þessi tilnefndi staður.

Ég vildi svo í sambandi við 4. gr. gera fyrirspurn um það, hvort það væri ekki réttur skilningur hjá mér, að kennsluárið sé 9 mánuðir og að menn eigi þá að útskrifast eftir 9 mánaða nám. Það kemur í huga minn sú spurning, hvort þetta sé nægilegur námstími eftir þeim námsgreinum, sem til eru teknar í frv. (JJ: Það er gert ráð fyrir, að þeir, sem á íþróttaskólanum eru, hafi próf frá kennaraskólanum, en það kemur ekki fram í frv.) Og þá vildi ég spyrjast fyrir um það, sem stendur í sömu gr. (4. gr.), þegar talað er um deildir skólans, að þar skuli vera starfræktar tvær ársdeildir: „Önnur fyrir íþróttakennara, sem einir , hafa rétt til starfa við ríkisskólana ....“ Er þá meiningin, að allir þeir kennarar, sem nú starfa við ríkisskólana, verði umsvifalaust settir frá störfum, þegar búið er að baka nýja kennara frá þessum skóla? (JJ: Þetta kemur ekki til greina. Það bara verkar fram á við.)

Þá verð ég að taka undir það, sem hér hefur verið sagt, að um svona mál sem þetta, sem varðar íþróttir í landinu yfirleitt, hefði ég kunnað betur við, að það hefði verið lagt fyrir Íþróttasamband Íslands til umsagnar. Þó að íþróttafulltrúi sé hér annars vegar, þá er hulið fyrir mér, að hve miklu leyti hann hefur samband við Íþróttasamband Íslands. Finnst mér heppilegast, að þeir, sem kunnugastir eru íþróttamálum hér á landi, létu uppi sitt álit um svona stórt mál.

Það getur að mínu áliti orkað tvímælis, hvort skólan. eigi að vera skipuð svo sem hér er gert ráð fyrir. Ég sé ekki nauðsyn þess, að það sé endilega skólastjóri héraðsskólans á Laugarvatni, sem eigi að sitja í þessari n.

Ég hef ekki haft tækifæri til þess að fara verulega rækilega yfir þetta frv., en vildi aðeins benda á þessi atriði til athugunar fyrir þá n., sem ætlar að taka málið til rækilegrar athugnar.

Ákvæðið um kennslugjald virðist mér að ætti að fella niður, þar sem þetta er ríkisskóli.