27.04.1942
Efri deild: 41. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í B-deild Alþingistíðinda. (858)

33. mál, sala á prestsmötu

Fram. (Bernharð Stefánsson):

Það gleður mig, að hv. 1. þm. N.- M. er búinn að afla sér þeirra upplýsinga sjálfur, sem hann var að biðja n. að afla við 1. umr. Ég býst ekki við, að hans vegna þurfi að gera meira í því máli. Það er rétt hjá hv. þm., enda hafði ég tekið það fram áður, að prestsmöturnar voru upprunalega ætlaðar til að launa prestana, eða sennilega í fyrstu beinlínis til að standast kostnað af fæði þeirra, meðan þeir voru eins konar vinnumenn kirkjueigenda. En ég sé bara ekki, að það sé nein röksemd á móti frv., því að það er ekki fram komið til að ræna prestana neinu. Þeir missa einskis í af launum sínum. Það, sem fengist með samþykkt frv., er, að ríkið styrkir þjóðkirkjuna meira en orðið er.

Önnur aðalröksemd hv. 1. þm. N.- M. er sú, að frv. komi ekki að notum nema hluta af kirkjum landsins. Það kann rétt að vera, en þær kirkjur, sem einskis njóta af samþykkt frv., standa ekki verr að vígi en áður. Frá þeim er ekkert tekið. Til þess að þær stæðu jafnt að vígi þyrfti ekki annað en veita tilsvarandi upphæð til þeirra, og sé ég ekki, að það væri nein goðgá, úr því að verið er að halda uppi þjóðkirkju á annað borð. Þegar á það er litið, að allar líkur eru til, að til einnar einustu kirkju í Reykjavík verði varið úr ríkissjóði eins hárri upphæð og allri prestsmötunni, sem frv. fjallar um, ætti ríkisvaldinu ekki að blæða það í augum að styrkja þær, sem ekki njóta hlunninda samkv. þessu frv., til jafns við þær, sem hlunnindin fá.

Hv. þm. efaðist um, að Alþ. hefði leyfi til að setja þessi lög. Ég mundi taka undir þann efa, ef ætti að taka prestsmöturnar og nota til almennra þarfa ríkisins eða einhvers þess, sem ekki kæmi þjóðkirkjunni við, en ég fæ ekki séð annað en að með frv. sé þjóðkirkjan efld og styrkt, og því er frv. alveg í anda þeirra, sem í fyrstu gáfu prestsmötuna, því það hefur vissulega verið tilgangur þeirra að styðja kirkju og kristnihald í landinu.

Ég sé ekki ástæðu til að gera þetta að kappsmáll. Það er auðheyrt, að hv. 1. þm. N.-M. hefur kynnt sér málið, og ég skal játa, að hann er fróðari um sum atriði þess en ég. En það er einn af prestum þjóðkirkjunnar, sem bar þetta frv. fram, og þó að hv. 1. þm. N.-M. sé fróður, hygg ég, að sá kirkjunnar þjónn sé um þetta enn fróðari.

Hv. þm. segir, að einfaldast sé að hækka kirkjugjöldin. Það getur satt verið, en þau eru nefskattur, og þó að hann sé ekki hár, býst ég við, að almenningi finnist með öllu öðru, að þau vera nógu há.

Það verður hver að gera upp við sjálfan sig, hvernig hann snýst við þessu frv., en n. finnst sanngjarnt, að kirkjan njóti þeirra eigna, sem henni hafa verið ætlaðar frá upphafi, og að ríkissjóður taki að sér að launa presta eins og aðra embættismenn.